bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Að selja bíl úr landi - Frumvarpið samþykkt!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=32596
Page 1 of 4

Author:  zazou [ Thu 23. Oct 2008 01:51 ]
Post subject:  Að selja bíl úr landi - Frumvarpið samþykkt!

Ég rakst á grein á mbl.is um það að þeir væru eitthvað að skoða það í þinginu um endurgreiðslu aðflutningsgjalda eðavsk á bifreiðar sem seldar væru úr landi. Finn hana bara ekki fyrir mitt litla líf.

Veit einhver meira um þetta mál (eða er etv. til annar þráður um þetta)?

Author:  bebecar [ Thu 23. Oct 2008 06:23 ]
Post subject: 

Það er eins og þetta hafi bara dottið upp fyrir. Það er talsverð gagnrýni á þetta þar sem margir telja að þarna sé verið að hygla þeim sem síst skyldi hygla.

Svo er reyndar illmögulegt að selja þá bíla sem þarf helst að flytja út um þessar mundir og skiptir þá litlu hvar í heiminum það er.

Það er hinsvegar augljóst að það er betra að flytja bíla út á klink og fá gjaldeyri heldur að þeir grotni niður á einhverri bílasölu.

PS, er ekki bensínið að lækka nógu mikið heima til þess að það sé hægt að kaupa OG reka alvöru þyrsta bíla :D

Nýjustu spár er að tunnan fari í 50 dollara sem er engin smáræðis viðsnúningur.

Author:  Axel Jóhann [ Thu 23. Oct 2008 12:09 ]
Post subject: 

bebecar wrote:

Ég var að gera það, kostar 2000 kalli meira að fylla nýja heldur en 525 meðan bensin var í 180kallinum. 8)

Author:  BlitZ3r [ Thu 23. Oct 2008 12:25 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Það er eins og þetta hafi bara dottið upp fyrir. Það er talsverð gagnrýni á þetta þar sem margir telja að þarna sé verið að hygla þeim sem síst skyldi hygla.

Svo er reyndar illmögulegt að selja þá bíla sem þarf helst að flytja út um þessar mundir og skiptir þá litlu hvar í heiminum það er.

Það er hinsvegar augljóst að það er betra að flytja bíla út á klink og fá gjaldeyri heldur að þeir grotni niður á einhverri bílasölu.

PS, er ekki bensínið að lækka nógu mikið heima til þess að það sé hægt að kaupa OG reka alvöru þyrsta bíla :D

Nýjustu spár er að tunnan fari í 50 dollara sem er engin smáræðis viðsnúningur.

Það versta er að það á seint eftir að skila sér í verð á dælunna.

Author:  íbbi_ [ Thu 23. Oct 2008 13:25 ]
Post subject: 

jááá.. rigth ekki hjálpa þeim sem eru í vandræðum, útaf því að þeirra ástæða er ekki eftir bókini hjá einhverjum,

djöfull er ég orðinn þreyttur á þessu attitudei hérna um að allir sem tengjast bílasölu eða braski á einn hátt eigi bara skiliðáð fara á hausinn og séu fjárglæpamenn og ég veit ekki hvað..

Author:  Kull [ Thu 23. Oct 2008 13:37 ]
Post subject: 

Þeir sem stunda bílabrask eða annað brask hljóta að gera sér grein fyrir því að það er viss áhætta fólgin í því.

Menn hafa væntanlega grætt ágætlega á þessu og núna þegar dæmið snýst við er varla hægt að ætlast til að ríkið komi til bjargar svo þeir tapi ekki.

En vissulega er meira vit í að flytja þessa bíla aftur úr landi frekar en að þeir sitji óhreyfðir í einhver ár.

Author:  Einarsss [ Thu 23. Oct 2008 13:44 ]
Post subject: 

Kull wrote:
Þeir sem stunda bílabrask eða annað brask hljóta að gera sér grein fyrir því að það er viss áhætta fólgin í því.

Menn hafa væntanlega grætt ágætlega á þessu og núna þegar dæmið snýst við er varla hægt að ætlast til að ríkið komi til bjargar svo þeir tapi ekki.

En vissulega er meira vit í að flytja þessa bíla aftur úr landi frekar en að þeir sitji óhreyfðir í einhver ár.

Ég tel ekki fólk sem tekur bílalán.. braskara.

Hvað með jón og guggu útí bæ sem tók bíla lán til að stækka bílinn hjá sér útaf þriðja krakkanum og vildi eiga öruggan bíl í ábyrgð. Höfðu ekki efni á að staðgreiða bílinn þannig að þau tóku erlent lán og gerðu ráð fyrir sveiflum.

Allt í einu fer allt í fokk og lánið ríkur upp og afborganir verða óviðráðanlegar ásamt að ekkert selst í dag.

Örugglega stór hluti af fólki með svona lán sem sjá fram á vanskil á láninu. Finnst ekkert að því að endurgreiða vsk af bílum sem eru fluttir úr landi, gjaldeyrir eykst, útflutningur eykst og einhevrjar fjölskyldur fara ekki á hausinn útaf einhverjum skitnum bílum

Author:  arnibjorn [ Thu 23. Oct 2008 13:56 ]
Post subject: 

Já bring it.. mig vantar meira til að flytja út! :lol:

Hundleiðinlegt að flytja bara fisk.. væri fínt að fá einhverja flotta BMW-a líka :)

Author:  íbbi_ [ Thu 23. Oct 2008 14:16 ]
Post subject: 

Kull wrote:
Þeir sem stunda bílabrask eða annað brask hljóta að gera sér grein fyrir því að það er viss áhætta fólgin í því.

Menn hafa væntanlega grætt ágætlega á þessu og núna þegar dæmið snýst við er varla hægt að ætlast til að ríkið komi til bjargar svo þeir tapi ekki.

En vissulega er meira vit í að flytja þessa bíla aftur úr landi frekar en að þeir sitji óhreyfðir í einhver ár.

hárétt, éf tek sjálfan mig sem dæmi þá var það að sjálfsögðu vitað að það væri viss áhætta fólgin í því, alveg eins og með hvers konar "rekstur"

en þetta eru nú orðnar dáldið sérstakar aðstæður, mér finnst varla hægt að lasta menn fyrir að hafa ekki bókstaflega reiknað með að þetta færi akkurat sona, ég t.d sit uppi með 2 bíla sem báðir voru eingöngu ætlaðir í sölu og ég hafði og hef ekki minnsta áhuga á sjálfur,
ég geri mér vel grein fyrir því að ég tók þá áhvörðun að taka áhættuna og hef tekið og er að taka afleiðingunum,
ég reiknaði með versnandi ástæðu og sló af mestan partinn af því sem ég var og ætlaði mér að gera,
það gleymist dáldið að skellurinn fyrir þá sem voru að braska/versla með bíla kom í febrúar/mars, þá missti ég einmitt 2 vinnur og lenti í að allt hækkaði og svo var krafist innborgunar á lánin ef það átti að nafnabreyta, þá strax var breytt verulega um áherslur og farið í að laga til og hreinsa upp, og það hófst með alveg helling af vinnu,
svo núna kemur annar skellur og maður missir aftur vinnua og afborganirnar á því sem voru eftir og voru á engann hátt vandamál hafa tvöfalldast, og það ekki í fyrsta skiptið, það munar 100þúsund á afborgunum hjá mér núna og fyrir þetta, plús það að 3 vinnur og aukavinnan eru bara horfnar ásamt fyrirtækjunum flestum,
þannig að það fer dáldið í taugarnar á mér þegar fólk er að segja við mann að "hefðir brahh ekkert átt að vera kaupa bíl sem þú hafnir ekkert efni á.." og þræta á móti einhverju sem gæti bjargað fullt af fólki sem er í vondum málum, það er fullt af mönnum sem hafa stundað alltof áhættusöm eða jafnvel misgáfuleg viðskipti, en það eru fjölskyldur sem fara oftast niður með þeim, og það kostar þjóðarbúið eflaust ekkert miklu minn að díla við brunarústirnar af fjölskyldum útúm allan bæ í meira mæli en nú þegar er að koma til,

Author:  Kull [ Thu 23. Oct 2008 14:19 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Ég tel ekki fólk sem tekur bílalán.. braskara.

Hvað með jón og guggu útí bæ sem tók bíla lán til að stækka bílinn hjá sér útaf þriðja krakkanum og vildi eiga öruggan bíl í ábyrgð. Höfðu ekki efni á að staðgreiða bílinn þannig að þau tóku erlent lán og gerðu ráð fyrir sveiflum.

Allt í einu fer allt í fokk og lánið ríkur upp og afborganir verða óviðráðanlegar ásamt að ekkert selst í dag.

Örugglega stór hluti af fólki með svona lán sem sjá fram á vanskil á láninu. Finnst ekkert að því að endurgreiða vsk af bílum sem eru fluttir úr landi, gjaldeyrir eykst, útflutningur eykst og einhevrjar fjölskyldur fara ekki á hausinn útaf einhverjum skitnum bílum

Það er verið að tala um þá braskara sem hafa stunda innflutning á bílum til að selja og sitja núna uppi með marga bíla sem þeir geta ekki selt.

Einnig verða menn að gera sér grein fyrir að það er áhætta að taka erlend lán, af hverju á frekar að hjálpa þeim en allir sem tóku ekki áhættuna og tóku innlend lán eiga bara blæða og horfa á lánin sín hækka og hækka útaf verðbólgu?

Author:  zazou [ Thu 23. Oct 2008 15:54 ]
Post subject: 

Image

Time out :!:

Þetta er orðinn royal pirrings þráður.

Býr einhver yfir upplýsingum um upphaflegu spurninguna :?:

Ég rúllaði lauslega yfir frumvörp á althingi.is og fann ekkert að gagni.

Author:  bebecar [ Thu 23. Oct 2008 18:45 ]
Post subject: 

:lol:
Time out, rétt þetta...

Eins og ég segi, þá er ekkert að gerast í þessu akkúrat núna. Ég fór í gagnagrunnin á Mogganum og fann bara nix um þetta.

Það síðasta sem ég man eftir var að það átti mögulega að setja þetta í nefnd. Ef þetta gengur í gegn þá verður það örugglega ekki alveg á næstu vikum einfaldlega vegna anna.

Held þetta sé bara ennþá á algjöru frumstigi.

Author:  Steini B [ Thu 23. Oct 2008 20:11 ]
Post subject: 

Var þetta ekki inná visir.is ?

Author:  Jónas [ Fri 24. Oct 2008 08:04 ]
Post subject: 

Veit ekki betur en að allur þessi bílainnflutningur var góður partur af viðskiptahallanum, sem að flestir vita að gengur ekki til lengri tíma.

Útflutningur á að greiða fyrir innflutning. Þegar að innflutningur er orðinn 105% af útflutningi þarf að taka stór lán erlendis til að borga þennan innflutning. Íslendingar lifðu alltof stórt og þurfa núna að taka afleiðingunum.

Flestir tóku þátt í þessu með innflutningi af öllum toga.

Author:  bimmer [ Fri 24. Oct 2008 09:33 ]
Post subject: 

http://m5.is/?gluggi=frett&id=62841

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/