Page 1 of 4

Eyðslugrannir BMWar?

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 09:55
by srr
Ein pæling sem er að veltast um í hausnum á mér....

Hvað væri eyðslugrannasti BMWinn sem kostar undir 200-300.000 ?
Er þá að spá í langkeyrslu Keflavík-Reykjavík-Keflavík, 100 km., einu sinni á dag.
Einnig, hverjir væru heppilegastir hvað varðar slit/viðhald etc.

(Skoða einnig hugmyndir um aðra bíla ef þeir eru á þessu verðbili.)

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:06
by Einarsss
ég á ford focus station ekinn 73k árg 2000.... eyðir fáranlega litlu í langkeyrslu og líka í innan bæjar akstri

Fer um 600km á tankinum í blandaðri keyrslu ... eflaust um 700+ í þessum akstri sem þú ert að tala um.

Hann er til sölu ef þú hefur áhuga... reyndar aðeins dýrari en 300k

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:07
by Einarsss
annars get ég ekki bent þér á eyðslu lítinn bmw sem er ekki diesel ... því ég hef aldrei átt eyðslugrannan bensín bmw :lol:

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:08
by gunnar
Ég myndi reyna að finna mér E36 320i í svona æfingar.

Hann væri ekki að eyða nema 7-8 í langkeyrslunni hjá þér. Minn E36 320 var að fara með eitthvað svoleiðis í langkeyrslu

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:15
by Einsii
Ég hugsa að E36 sé besti bíllinn fyrir veskið, Bara með litlum mótor svo hann eyði ekki miklu.

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:22
by srr
Eru E36 316i/318i til með diskabremsum að aftan?

Ég nefnilega HATA skálabremsur :lol:

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:29
by arnibjorn
Eyðsluminnstu BMWarnir sem ég hef átt voru E30 316i og E36 316 compact.. maður keyrði bara og keyrði :)

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:31
by srr
Hvað ættu E36 316i og 318i að vera eyða í langkeyrslu ?

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 10:39
by gunnar
srr wrote:Hvað ættu E36 316i og 318i að vera eyða í langkeyrslu ?


Ég hugsa að 4cyl bílarnir eyðir því sama eða jafnvel meira í langkeyrslu og 6 cyl bílarnir.

E36 316 er auðvitað bara máttlaust og þú þarft að þenja þetta hressilega.

Ég man alla vega að 320i eyddi 12 lítrum í innanbæjarakstri.

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 11:13
by ValliB
minn 320 dettur niður í 7.5 á milli akureyrar og húsavíkur en hengur í 12 lítrum innanbæjar. Svona ef maður er ekki að gefa honum neitt rosalega inn.

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 12:34
by BirkirB
mymojo wrote:minn 320 dettur niður í 7.5 á milli akureyrar og húsavíkur en hengur í 12 lítrum innanbæjar. Svona ef maður er ekki að gefa honum neitt rosalega inn.


Og það er ekkert víkurskarð á reykjanesinu.

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 12:39
by crashed
er með E36 325 og er að keyra þessa leið daglega framm og til bakka og er að fara með ca 9 - 10 lítra á hundraði ef ég nenni að dóla þetta á 90 - 100

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 12:59
by srr
crashed wrote:er með E36 325 og er að keyra þessa leið daglega framm og til bakka og er að fara með ca 9 - 10 lítra á hundraði ef ég nenni að dóla þetta á 90 - 100

KK-xxx ?

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 13:11
by GunniT
srr wrote:
crashed wrote:er með E36 325 og er að keyra þessa leið daglega framm og til bakka og er að fara með ca 9 - 10 lítra á hundraði ef ég nenni að dóla þetta á 90 - 100

KK-xxx ?


Nei ov310

PostPosted: Thu 25. Sep 2008 13:13
by GunniT
annars var ég að keyra garðveginn daglega á e30 með m42 og hann var að hanga í 8lítrum.. þannig ég myndi veðja á að e36 með m42 væri góður kostur.. þannig ég held að bíllinn sem xtract er með hérna væri góður kostur í þetta..