bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hringtorgaakstur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=31645
Page 1 of 4

Author:  ta [ Wed 03. Sep 2008 22:58 ]
Post subject:  Hringtorgaakstur

Er það ekki rétt hjá mér að sá sem fer inní hringtorg , frá vinstri akrein og inní innri hríng, hann má ekki fara út í fyrsta "exiti"
Lenti í því aðan að ung erlend kona svínaði þannig fyrir mig, ég rétt náði að afstýra árekstri,
en við snertumst þó, með rispum og nuddi.
Fékk hjá henni númer og bílnúmer, og hitti hana svo til skýrslugerðar. (3 tímum síðar)
Þá segir hún að hún sé í rétti en vill samt ekki skrifa undir neina skýrslu. :?
Finnst ég bara vera ósanngjarn, leiðindi og vesen. Hennar bíll sé meira skemmdur og ég
átti að gefa stefnuljós,,

Ég for semsagt samsíða henni inni hringtorgið, á ytri akrein, og ætlaði út á 3ja exiti.
Þegar við förum hjá því fyrsta, skellir hún sér í hliðina á mér. (frambrettið)

Við skildum þannig að við ætluðum að meta tjónin á bílunum, og
talast eftir það.

Author:  Djofullinn [ Wed 03. Sep 2008 23:01 ]
Post subject: 

Ég hef alltaf skilið það þannig að innri hringurinn megi ekki fara strax út. Veit þó ekki hvernig lögin eru

Author:  bjornvil [ Wed 03. Sep 2008 23:02 ]
Post subject: 

Ég veit ekki betur en að innri hringurinn eigi alltaf réttinn.

Author:  Bjössi [ Wed 03. Sep 2008 23:04 ]
Post subject: 

eftir minni bestu vitund er bannað að fara út á fyrsta exiti ef þú ferð á innri hring, þ.e. skv. ökunámsbókinni

Author:  maxel [ Wed 03. Sep 2008 23:07 ]
Post subject: 

Ég hélt þessi þráður væri um drift :lol:

Author:  Kull [ Wed 03. Sep 2008 23:11 ]
Post subject: 

Þú ert í rétti samkvæmt TM allavega, skoðaðu neðstu myndina :)

http://www.tryggingamidstodin.is/forvar ... r//nr/1054

Author:  birkire [ Wed 03. Sep 2008 23:26 ]
Post subject: 

Mér finnst samt svo kjánalegt þegar fólk fer í ytri og fer út á öðru eða þriðja.

Author:  Elnino [ Wed 03. Sep 2008 23:29 ]
Post subject: 

birkire wrote:
Mér finnst samt svo kjánalegt þegar fólk fer í ytri og fer út á öðru eða þriðja.


sama hér.

Ég fer alltaf innri hring, nema þegar ég ætla að beygja út strax. Þá fer ég á ytri. Ég hef alltaf haldið að innri hringur ætti alltaf réttinn út úr hringtorgi.

Author:  Lindemann [ Wed 03. Sep 2008 23:34 ]
Post subject: 

það er ekkert kjánalegt við það að fara á ytri hring í hringtorg og fara út á 2. exit.......ef fólkið á innri hring fylgir því sem er rökréttast(að fara ekki á innri hring ef það ætlar strax út) þá komast miklu fleiri bílar í gegnum hringtorgið og allt gengur greiðar fyrir sig.

ég man að ökukennarinn minn sagði mér að innri hringur mætti ekki fara út á 1. exit en ég hef það ekki frá neinu öðru..........það er bara svo hrikalega rökrétt.

Author:  Thrullerinn [ Wed 03. Sep 2008 23:35 ]
Post subject: 

birkire wrote:
Mér finnst samt svo kjánalegt þegar fólk fer í ytri og fer út á öðru eða þriðja.


Allt í lagi að fara út á öðru, annars gengi umferðin ekki neitt! Þriðja held
ég að sé ólöglegt..

Author:  HPH [ Wed 03. Sep 2008 23:46 ]
Post subject: 

það sem ég hata mest er fólk sem á hægri akrein keirir beint inn í innrihringinn og út um ytri svo það kemur út aftur á hægri(keirir þvert í gegn).
En já ég held að þú eigir réttinn allavegna var mér kent að maður eigi aldrei að fara á innri akrein og út á fyrsta.

Author:  _Halli_ [ Wed 03. Sep 2008 23:57 ]
Post subject: 

Thrullerinn wrote:
birkire wrote:
Mér finnst samt svo kjánalegt þegar fólk fer í ytri og fer út á öðru eða þriðja.


Allt í lagi að fara út á öðru, annars gengi umferðin ekki neitt! Þriðja held
ég að sé ólöglegt..


Ólöglegt? En ef að mesta umferðin er á þriðju götunni? Þá hlýtur maður að mega fara á ytri ef maður vill...

Ég keyri oft Skeiðarvoginn yfir Miklubraut (frá Réttarholtsvegi í átt að Skeifu) og við hringtorgið Skeiðarvogur-Suðurlandsbraut-Skeifa myndast oft grííííðarlega löng röð á vinstri akrein þegar allir eru að keyra yfir brúna og á leiðinni inn á Suðurlandsbraut. Þá tek ég oftast ytri og slepp við biðröðina og hef sjaldan þurft að stoppa fyrir fólki sem er á leiðinni í Skeiðarvoginn á innri.

Author:  SteiniDJ [ Thu 04. Sep 2008 00:05 ]
Post subject: 

Bjössi wrote:
eftir minni bestu vitund er bannað að fara út á fyrsta exiti ef þú ferð á innri hring, þ.e. skv. ökunámsbókinni


Skv. lögunum þarftu að vera hálfri bílslengd fyrir framan bílnum sem er í ytri hring til að eiga réttinn.


Annars er þetta atvik frekar fáranlegt, tjón er tjón, sama hversu stórt það er. Ef hún er með stæla og neitar að skrifa undir, þá myndi ég bara hringja í lögguna og fá hennar álit á þessu.

Author:  Brútus [ Thu 04. Sep 2008 00:31 ]
Post subject: 

Ef að ég hefði verið í þínum sporum þá hefði ég hiklaust hringt í lögregluna og fengið hana á staðinn um leið.
Annars þá á sá sem að er í innri hring réttinn.
Fékkstu vitni ?

Author:  Axel Jóhann [ Thu 04. Sep 2008 01:25 ]
Post subject: 

Sá sem er í innri hring á alltaf réttinn.

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/