bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 21. May 2025 16:28

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 
Author Message
 Post subject: BMW 535i V8 1999
PostPosted: Mon 20. Oct 2003 13:24 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 13. Jul 2003 22:43
Posts: 158
Location: Kópavogur
Tók í þennan skemmtilega bíl í hádeginu, það sem er óvenjulegt við þennan bíl er að hann er beinskiptur.

Þetta er mjög gott eintak, lítið ekinn og með talsvert mikið af aukabúnaði.

Það var nú ekki farinn það stór rúntur að hægt væri að taka hann mikið til kostanna, enda líka mikil umferð í hádeginu, en hann er að svínvirka og er mjög skemmtilegur akstursbíll.
Það eina sem hugsanlega mætti finna að bílnum er hann mætti vera með kassa sem líkist meira kassanum í M5.

En ég var alveg sáttur eftir bíltúrinn og gæti alveg hugsað mér að eiga svona tæki.

_________________
SE
Porsche 911 Carrera 3.2 ´85
Mercedes Benz ML 270 CDI ´00

Jeremy Clarkson wrote:
It's pouring down with rain because not enough people have Range Rovers.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 20. Oct 2003 13:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Held að þeir séu nú ófáir hér á spjallinu sem gætu hugsað sér að eiga svona tæki, allavega hefði ég ekkert á móti því að eiga svona tæki

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 20. Oct 2003 13:40 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég skal kaupa hann á víkjandi láni :wink:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 20. Oct 2003 18:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Þessi bíll ((held að það sé hann)) var keyptur af Herði Sigurgestssyni
<<EIMSKIP>> og keyrir hann BARA beinsskipta bíla!!!!!
Síðasti eigandi sem ég vissi um var Katrín Fjeldsteð ,,læknir og fyrrv. borgarfulltrúi,, huggulegur bíll og vel búinn
en enginn......................................540..............


(((((((((((((((((((segi nú bara svona))))))))))))))))))

Sv.H :D


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 20. Oct 2003 19:00 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það munar nú reyndar nokkuð littlu á hröðun í 100 kmh eða 6.2 sek fyrir 540 á móti 6.9 sek fyrir 535. Hinsvegar hefur 540 100 auka NM sem ætti nú að skila sér afskaplega vel í framúrakstri og slíku.

Ég held reyndar að bíllinn sé ENN í eigu Eimskip???

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 20. Oct 2003 19:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
muhahha ég á NÆSTUM svona :D

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 20. Oct 2003 21:09 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 13. Jul 2003 22:43
Posts: 158
Location: Kópavogur
Ég hef því miður ekki samanburðin á 535 og 540 - en vonandi breytist það einhverntímann. En ég get borið hann saman við Benz E420.
Þessir tveir bílar eru svipað þungir ca. 1650kg. og með svipaða hröðun í 100km. BMW gefin upp 6,9 - Benz gefin upp 7,2.
Báðir bílarnir eru mjög skemmtilegir akstursbílar en með gerólíkan karakter.
Benzinn er mjög hljóðlátur, mjúkur og mjög þægilegur í öllum akstri, rífur sig algjörlega áreynslulaust áfram þegar vel er gefið í, liggur vel en hefur lítið fyrir hlutunum. Þetta er einn skemmtilegasti bíll sem ég hef ekið.

Biminn er auðvitað líka hljóðlátur og mjúkur í akstri, rífur sig auðvitað áfram þegar vel er gefið í en maður er meira að keyra bílinn, finnur meira fyrir akstrinum. Bæði er það sennilega út af beinskiptingunni og svo heyrir maður meira í vélinni á hærri snúning. Það er allt annar "fílingur" að keyra bimman.
Benzinn er einn skemmtilegast bíll sem ég hef ekið og Biminn kemst alveg í flokk með honum þó ólíkur sé eftir þennan stutta prufutúr.

_________________
SE
Porsche 911 Carrera 3.2 ´85
Mercedes Benz ML 270 CDI ´00

Jeremy Clarkson wrote:
It's pouring down with rain because not enough people have Range Rovers.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group