Ég held að BMW sé á fullu að reyna afgreiða þetta vandamál
http://technology.newscientist.com/article/dn13077
http://climate.weather.com/articles/eur ... 60608.html
Þarna kemur fram 130g af CO2. Í dag er 335i E92 með 218g CO2
neðst hjá BMW er 318i 142g enn lægsti díesel bílinn er með 123g
Þessi 130g eða 120g verða meðaltöl. Semsagt BMW og allir hinir þurfa að finna leið til að keyra selja einn 100g bíl fyrir hvern 150g bíl til að ná 125g meðaltali. Ekki beint auðvelt sem myndi líka þeyta 335i beint útum gluggann sem og öðrum stærri bílum.
AMG og Mercedes finnst mér eru að henda út eins mikið af bílum eins og hægt er áður enn þessi reglugerð nær þeim. Sem mun þá þýða minni sala eftir 2012 því að fólk mun þá ekki kaupa nýjan 350hö AMG þegar hægt er að fá 600hö AMG sem er 4ára, hvað þá 170hö C-class þegar eitthvað aðeins eldra sem kostar minna og er sprækari er til.
VAG á þetta ekki svona erfitt því að þeir eru með svo ofboðslega stórann díesel markað sem og smá bíla sem jafna út meðaltalið.
Audi hefur þar af leiðandi ekki sama vandamál og BMW og Benz því að innan þeirra veggja er auðvitað VAG og allt smá bíla batterýið.
Hvað verður úr þessu "vandamáli" fyrir bílaframleiðendur á eftir að koma í ljós, enn það er ljóst að BMW og Benz eru ekki að fara sömu leið.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
