bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Draumabíllinn!!!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=310
Page 1 of 2

Author:  Moni [ Wed 13. Nov 2002 11:39 ]
Post subject:  Draumabíllinn!!!

Mig langar að vita hvernig draumabílar ykkar eru?

Draumabílarnir mínir eru í raun þrír:

1. BMW 750 E38
2. BMW M5 E34, E39 og E60
3. Ford F250 Superduty

Hvað með ykkur?

Author:  saemi [ Wed 13. Nov 2002 11:54 ]
Post subject: 

Ég er einhvernveginn þannig gerður að draumabílarnir mínir eru bílar sem ég hef fræðilega efni á að eignast. Þannig að það kemur ekki til greina bíll eins og E39 M5, Z8 osfrv. En listinn væri eitthvað þessu líkur...

E34 M5, 3.8L

M635csi

E3 (Cs bílarnir á undan 6 línunni)

2002

E23 745i Highline

Og svo hægt að halda áfram lengi..... :roll:

Author:  bebecar [ Wed 13. Nov 2002 12:01 ]
Post subject: 

Sammála því sem Sæmi sagði og vil bæta við E30 M3.

Annars er ég verulega veikur fyrir E3.....

Nema, ég er ekki upptekinn af því að E34 M5 sé 3.8 umfram 3.6... hef prófað hvorutveggja og lítill munur ef nokkur.

Author:  saemi [ Wed 13. Nov 2002 15:08 ]
Post subject: 

Hehe, já, E30 M3 ætti líka að vera þarna.

Ég hef bara prufað 3.8L, en kannski 3.6 sé ekki svo fjarri lagi....

Alltof mikið er mátulegt.... þegar maður er að tala um hö

sæmi

Author:  Moni [ Wed 13. Nov 2002 23:54 ]
Post subject: 

Én maður verður líka að eiga sér DRAUMAbíl... einhvern bíl sem mann langar alveg geðveikt í og sem maður myndi kaupa ef maður ynni í víkingalóttóinu 250 millur:)
Geðveikan BMW stóran og öflugan, eða stóran upphækkaðan amerískan pick-up á 44"...

...Comon þið hljótið að eiga ykkur draum? :)

Author:  GHR [ Thu 14. Nov 2002 00:09 ]
Post subject: 

Moni wrote:
Én maður verður líka að eiga sér DRAUMAbíl... einhvern bíl sem mann langar alveg geðveikt í og sem maður myndi kaupa ef maður ynni í víkingalóttóinu 250 millur:)
Geðveikan BMW stóran og öflugan, eða stóran upphækkaðan amerískan pick-up á 44"...

...Comon þið hljótið að eiga ykkur draum? :)


Nei, svo sem ekki. Ég er bara mjög sáttur við minn bíl og ætla gera hann nákvæmlega eftir mínu höfði :D
En maður væri svo sem ekkert á móti nýjum M5 ,en það er bara fjarlægður draumur

Author:  saemi [ Thu 14. Nov 2002 00:30 ]
Post subject: 

Aaaa, ég er bara svo skrítinn.. draumurinn um 250.000.000.- króna bílinn kemur þegar ég er með þær í vasanum :) .....

Author:  Moni [ Thu 14. Nov 2002 00:39 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Aaaa, ég er bara svo skrítinn.. draumurinn um 250.000.000.- króna bílinn kemur þegar ég er með þær í vasanum :) .....


True True... :)

Author:  bebecar [ Thu 14. Nov 2002 10:16 ]
Post subject: 

250 milljónir... hmmm. Það ætti að duga fyrir súper eintaki ef E34 M5 Touring!

Eða CSL Batmobile.

Eða M1

Eða F40

Eða 959...

Nahhhh, CSL og M5, væri alveg nóg, kannski einn E30 M3 líka svona í brautina sem ég myndi láta gera fyrir mig!

Author:  Moni [ Thu 14. Nov 2002 10:21 ]
Post subject: 

Er M5 til touring, er það ekki STW(stationwagon)??

Author:  saemi [ Thu 14. Nov 2002 10:49 ]
Post subject: 

Jújú, það er "station wagon".. nema það heitir Touring :)

Það er til M5 sem er touring, ... eitthvað varð að gera fyrir kallana sem eiga hund, og golfsett, og ....

Sæmi

Author:  Svezel [ Thu 14. Nov 2002 11:07 ]
Post subject: 

Er ekki E34 M5 "the ultimate sleeper" :D

Mínir drauma bílar eru flestir klassískir bimmar og ef ég ætti 250 millur yrði nú valið dálítið langt. Er ekki skemmtilegra að kaupa nokkra flotta "gamlingja" en einn "nýgræðing" :wink: T.d.

E34 M5 eða B10 BiTurbo
E24 635, M6 eða B7S Turbo
E30 M3
E39 540
og afgang í bensín og tryggingar

Author:  bebecar [ Thu 14. Nov 2002 11:37 ]
Post subject: 

Jú, auðvitað er miklu meira vit í að kaupa nokkra gamla góða en einn nýjann og fokdýrann sem rýrnunar svo um helming á 3 árum!

OG ÉG GLEYMDI EINUM...

Alpina B7S hlýtur að vera efst á listanum hjá mér! Whoooha!

Author:  hlynurst [ Thu 14. Nov 2002 12:57 ]
Post subject: 

Ég verð nú að segja að mig hefur dreymt um að eignast M3 blæju... þetta verður vonandi að veruleika einhverntímann þegar maður á pening (ef maður eignast hann einhverntímann).

Author:  bebecar [ Thu 14. Nov 2002 13:08 ]
Post subject: 

Já, mig langar nú alltaf dálítið í blæjubíl líka, en mér finnst mjög mikilvægt að þeir séu 4 sæta þannig að maður geti tekið einhvern með sér... kannski er M3 blæju líka góður kostur.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/