bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
tryggingafélag.. vitleysa https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=30808 |
Page 1 of 1 |
Author: | íbbi_ [ Fri 18. Jul 2008 11:59 ] |
Post subject: | tryggingafélag.. vitleysa |
í vor var ég að keyra úr innkeyrsluni hjá mér, á glænýjum bíl eknum tæplega 1þús metnum á 5m+ ég er varla kominn úr innkeyrsluni þegar pólskur farandverkamaður bakkar úr nærliggjandi innkeyrslu inní hliðina á bílnum hjá mér, höggið var lítið, en Þar sem hann bakkaði á bílin hjá mér á ferð þá krumpast bíllinn frá þeim stað á frambrettinu sem hann bakkar inní og afturúr, mér reyndar fannst hálf fyndið þegar ég mætti í póstinn daginn eftir að gera skýrslu að gerandi hafði sagt mig í ofsaakstri, eða s.s mjög hratt!, sem er mjög fyndið meðað við að hann bakkaði útúr innkeyrsluni í þarnæsta húsi við mig, inní hliðina hjá mér sem var kannski búinn að keyra 15-20m.. bíllinn næði nú öruglega ekki nema hámarkshraða á þessum spotta ef ég hefði reynt það, ég fer með bílin á verkstæði, og skil hann eftir þar, enda var ég að fara í flug út morgunin eftir, þegar ég kem aftur og fer að garfa í málinu, þá er búið að meta tjónið og allt það og greinilegt að þetta fellur inn á "viðgert" zone, ég er hinn ósáttasti, og tala við vís, og segji að ég óski eftir því að fá bílin ekki viðgerðan, þetta sé nýr bíll, ekinn 1þús, og ég hafi bara engan áhuga á að eiga hann eftir þetta, þeir taka ekki vel í það og vilja laga bílin, en höfðu samt tekið sér góðan tíma í að áhveða hvað væri gert, á meðan beið ég bíllaus, og var svo úthlutað polo bílaleigubíl, svo veit ég ekki hver andskotinn fer að ske í þessu, en ég er búinn að bíða núna eftir bílnum í um 4 mánuði, ég fór að spá hvort bílaleigubíllinn sé ekki búinn að vera dáldið lengi á svæðinu, þá er mér tilkynnt að vís borgi ekki bílaleigubílin meðan ég bíð eftir varahlutum, og fékk ég senda himinháa rukkun fyrir bílaleigu bílnum á þessu tímabili sem ég er búinn að bíða, og núna er ég með annan bíl á leigu til að komast til vinnu, ég er svo ósáttur að það kraumar í hausnum á mér.. , ég rétti vís formlega löngu töngina áðan, og grýti eggjum í þetta lið ef þetta bull heldur áfram |
Author: | BMW_Owner [ Sat 19. Jul 2008 16:46 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() gamlir bílar :ftw: ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Sun 20. Jul 2008 20:31 ] |
Post subject: | |
Allt að gerast hjá Ívari.... ![]() ![]() |
Author: | Sumarliði M5 [ Sun 20. Jul 2008 21:11 ] |
Post subject: | |
Já leiðindamál. Er þetta heljarinnar tjón? Ég held að það sé svona almennt stefna hjá tryggingafélögum að gera við bílinn ef viðgerðarkostnaðurinn er undir 50% af heildarverði bílsins. Gangi þér vel með þetta. |
Author: | Gunnar H [ Sun 20. Jul 2008 21:28 ] |
Post subject: | |
Þessar % tölur voru bara vinnureglur hjá þeim, þeim er alveg stætt á því að gera við bílinn hjá þér þó viðgerðin fari í gangverð bílsinns eða meira því þeir borga fagmönnum fyrir vinnuna og þeir eiga geta skilað þér bílnum í sama ástandi og hann var. En hins vegar ef þér finnst á þig halla eftir uppgjör á tjóninu áttu hiklaust að sækja það á þann sem olli þér tjóninu þetta er möguleiki sem því miður er aldrei nýttur því þá fyrst myndu tryggingafélögunum bregða í brún. En varðandi bílaleigubílinn þá átti verkstæðið að kynna þér þetta, tryggingafélögunum er ekki skilt að lána þér bíl á meðan beðið er eftir varahlutunum heldur umboðið. því miður eru verkstæðin ekki nógu dugleg í að vinna í þessum málum fyrir viðskiptavini sína oft vegna þess að þeir eiga stóran hlut að máli (Vitlaust pantað, gleymst að panta) Því miður er það orðið þannig í dag að lendi maður í tjóni er það ávísun á tap fjárhagslega fyrir þann sem verður fyrir tjóninu. |
Author: | Spiderman [ Mon 21. Jul 2008 19:28 ] |
Post subject: | |
Gunnar H wrote: En hins vegar ef þér finnst á þig halla eftir uppgjör á tjóninu áttu hiklaust að sækja það á þann sem olli þér tjóninu þetta er möguleiki sem því miður er aldrei nýttur því þá fyrst myndu tryggingafélögunum bregða í brún. Af hverju í ósköpunum á tjónþoli að reyna sækja bætur á tjónvald, í stað þess sækja þær til viðkomandi tryggingafélags ![]() Gunnar H wrote: En varðandi bílaleigubílinn þá átti verkstæðið að kynna þér þetta, tryggingafélögunum er ekki skilt að lána þér bíl á meðan beðið er eftir varahlutunum heldur umboðið.
What....ábyrgðartryggjandi ökutækis ber að bæta þér allt það tjón sem þú verður fyrir, hvort sem það er bílaleigubíll eða bætur fyrir afnotamissi ökutækis. Þetta kemur því viðkomandi umboði nákvæmlega ekkert við. |
Author: | Gunnar H [ Mon 21. Jul 2008 19:45 ] |
Post subject: | |
Teljir þú þig ekki fá þitt tjón bætt, áttu auðvitað kost á því að sækja það til þess sem olli þér því. Varðandi hitt þá er það umboð bílsinns sem á að geta þjónustað bílinn samkvæmt neytendalögum, geti þeir það ekki ber þeim að bæta það upp. |
Author: | Spiderman [ Mon 21. Jul 2008 20:02 ] |
Post subject: | |
Gunnar H wrote: Teljir þú þig ekki fá þitt tjón bætt, áttu auðvitað kost á því að sækja það til þess sem olli þér því.. Þú endar samt alltaf í hring, það er ekkert hagræði í því að sækja bæturnar til einstaklings, þegar lög um vátryggingasamninga gera ráð fyrir því að þú sækir bæturnar til ábyrgðartryggjanda, þó svo að hin leiðin sé auðvitað fær. Gunnar H wrote: Varðandi hitt þá er það umboð bílsinns sem á að geta þjónustað bílinn samkvæmt neytendalögum, geti þeir það ekki ber þeim að bæta það upp...
Það kemur tjónþola samt sem áður ekkert við, hann á bara að þurfa að sækja sínar bætur til tryggingafélagsins. Umboðið er ekki skuldbundið til þess að geta útvegað varahlut í bifreið sem er eldri en 2 ára og hvað þá innan einhvers ákveðins tíma. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |