Page 1 of 1

Breytingar á skilmálum kaskótrygginga hjá Sjóvá

PostPosted: Wed 16. Jul 2008 22:16
by bimmer
Var að fá plagg frá Sjóvá þar sem segir:

"Eftirfarandi breyting hefur verið gerð á vátryggingunni: Vátryggingin
bætir því aðeins tjón af völdum þjófnaðar að tjónsatburður eigi sér
stað á Íslandi"

Eru hin félögin með það sama?

Veit einhver hvað triggeraði þessa breytingu - voru menn að fara með bíla út og
láta þá hverfa í stórum stíl eða?

Er eiginlega mjög ósáttur við þessa breytingu hjá þeim.

PostPosted: Wed 16. Jul 2008 22:23
by SteiniDJ
Veit einhver hvað triggeraði þessa breytingu - voru menn að fara með bíla út og
láta þá hverfa í stórum stíl eða?


Það kæmi mér a.m.k. ekkert á óvart eins og málin standa í dag. Getur þú ekki reynt að tala við Sjóvá og sjá hvort þú getir dílað við þá?

PostPosted: Wed 16. Jul 2008 22:33
by KFC
Ég er hjá Sjóvá og er orðinn ekkert smá þreyttur á þeim, alltaf einhvað vesin og svo eru þeir líka ornir alveg skuggalega dýrir miðað við aðra. Er mikið að pæla í því að skifat um félag. Hvar eruð þið og með hverju mælið þig?

PostPosted: Wed 16. Jul 2008 22:36
by gstuning
Ég var búinn að deala við VÍS um M3 inn í UK,. enn svo varð ekkert úrþví,
þær myndu ekki einu sinni hækka þótt maður væri í öðru landi

:o

PostPosted: Thu 17. Jul 2008 01:25
by fart
Maður kaupir bíl (t.d. RR Supercharged) fyrir 13kúlur og leggur út tvær á móti Tryggingafélagi sem fjármagnar rest. Samið maður getur ekki borgað afborganir(eða getur borga, en vill samt losna við bílinn) og fer með bílinn með sér til útlanda. Þar er honum stoðið, eða látið líta út fyrir þjófnað (gegn greiðslu til þjófsins, eða eigandi fær greiðslu fyrir bílinn(selur fyrir 40-50k euro)). Sami maður snýr heim með sárt ennið og tilkynnir tryggingafélaginu að bílnum hafi verið stolið. Tryggingafélagaið gerir upp lánið og greiðir viðkomandi upp næstum alla (stundum alla) útborgunina.

Svo gerist það að tryggingafélaið fer að rannsaka þar sem að þetta er orðið aðeins of algengt (þetta og skyndisjálfsíkveikjur bíla) og biður því manninn sem keypti RR Supercharged um aukalykla og önnur möguleg fylgigögn eða fylgihluti. Þá kemur í ljós að viðkomandi hefur á ótrúlegan hátt annaðhvort týnt eða hent þeim.

allavega.. skemmdu eplin skemma fyrir hinum. :?

PostPosted: Thu 17. Jul 2008 01:27
by arnibjorn
Vlad sagan var betri Fart :wink:

PostPosted: Thu 17. Jul 2008 01:29
by fart
hmm :roll:

PostPosted: Thu 17. Jul 2008 08:52
by Bjarki
Var ekki í fréttum saga af fólki sem var með húsbíl í Evrópu lengur en í 3mánuði og svo var brotist inn í bílinn og öllum verðmætum stolið og þau fengu ekkert bætt útaf svipaðri klausu í skilmálum.
Minnir að þetta hafi verið ca svona. Ég var að setja bíl í kaskó hjá Sjóvá sem verður á erlendri grundu og hugsaði með mér hvað ég vildi ekki vera hjá VÍS en ég var þar áður. Þar fór það...

Ég gerði verðsamanburð hjá öllum tryggingafélögunum í janúar og fór yfir til Sjóvá eftir þá könnun.
Hringdi á milli og fékk verð og hringdi þá aftur og sagði hvað hinir buðu. En það hafði einnig áhrif á val mitt hversu lengi félögin voru tilbúin til að gefa út grænt kort.

PostPosted: Thu 17. Jul 2008 20:58
by siggik1
hef allamína tíð verið hjá TM og er að borga lítið og líka það vel

PostPosted: Thu 17. Jul 2008 21:43
by Bjarki
siggik1 wrote:hef allamína tíð verið hjá TM og er að borga lítið og líka það vel


Hvað er lítið í dag?

PostPosted: Thu 17. Jul 2008 22:51
by siggik1
Bjarki wrote:
siggik1 wrote:hef allamína tíð verið hjá TM og er að borga lítið og líka það vel


Hvað er lítið í dag?


jah, allavega er ég að borga minna en vinur minn sem er hjá sjóvá með OPC, og hann gerði price check hjá öðrum og sjóvá var mun dýrara fyrir hann

er nú ekki með nákvæmar tölur á mínum tryggingum en líka vel hjá TM