Sælir
Mig langar að setja dekkri filmur í öftustu þrjár rúðurnar í bílnum en veit ekki hvert best er að fara. Ég hringdi fyrir nokkrum í AMG Aukaraf og þá sögðu þeir að þetta myndi kosta í kringum 35.000 kall. Svo hringdi ég í gær og spurði aftur og þá sögðu þeir 50-55.000 kr. af því það væri svo mikið vesen að taka rúðurnar úr BMW. Svolítið mikil hækkun á 3-4 vikum...
Eruð þið með einhverjar hugmyndir um hvert best er að fara til að láta gera þetta? Ég er á BMW 325i 2004.

