bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Breytingar á skilmálum trygginga hjá Elísabetu https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=30745 |
Page 1 of 2 |
Author: | Lindemann [ Tue 15. Jul 2008 20:14 ] |
Post subject: | Breytingar á skilmálum trygginga hjá Elísabetu |
Ég var að fá sent frá þeim tilkynningu um breytingar á skilmálum og verðlækkun, er reyndar ekki í viðskiptum þar lengur. Ég las lauslega yfir þetta og leist ágætlega á allt nema það sem stóð neðst............... Quote: VIÐBÓTARIÐGJALD VEGNA KEPPNI OG ÆFINGA Á KEPPNISBRAUTUM.
Elísabetu er nú heimilt að rukka viðbótariðgjald vegna keppni eða æfinga á bílum sem tryggðir eru hjá Elísabetu. (gr. 9.1 í skilmálum skyldutryggingar). Iðgjaldið er til að byrja með 15.000 kr. fyrir hvert skipti. Ástæðan fyrir þessu er sú aukna áhætta sem felst í að tryggja þá bíla sem skráðir hafa verið til keppni og æfinga. Ég ætla svosem ekki að nöldra mikið yfir að það þurfi að borga fyrir viðaukann................en 15þús krónur fyrir hvert skipti????? ![]() Þetta er náttúrulega bara rip off! |
Author: | Jón Ragnar [ Tue 15. Jul 2008 20:18 ] |
Post subject: | |
HAHA þeir missa ALLLLLLLLLLLA kvartmílukallana og driftarana ![]() |
Author: | Lindemann [ Tue 15. Jul 2008 20:20 ] |
Post subject: | |
Ég mun allavega ekki tryggja hjá þeim aftur á meðan þetta er svona....hvort sem ég muni keyra á braut eða ekki. |
Author: | fart [ Tue 15. Jul 2008 20:48 ] |
Post subject: | |
Samt goóður díll, ég get ekki fengið tryggingaviðauka í LÚX. |
Author: | Lindemann [ Tue 15. Jul 2008 21:09 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Samt goóður díll, ég get ekki fengið tryggingaviðauka í LÚX.
En þetta er það sem við þurfum til að geta keyrt uppá akstursbraut eða kvartmílubraut............. En ég er forvitinn um eitt........er það skylda samkvæmt lögum að klúbbar sem halda æfingar í mótorsporti krefjist tryggingaviðauka? Það var umræða á öðru spjalli um þetta og þar var því haldið fram að það væri ekki skylda, og mótorhjólamenn hafa ekki þurft tryggingaviðauka á road race æfingum...a.m.k. ekki þeirri sem var á rallýkrossbrautinni um daginn. Það gilda væntanlega sömu reglur um bíla og hjól. |
Author: | bimmer [ Tue 15. Jul 2008 21:23 ] |
Post subject: | |
Mér skildist á þeim AÍH mönnum sem voru út á braut á föstudaginn að það styttist í að menn þurfi ekki viðauka þar. |
Author: | fart [ Tue 15. Jul 2008 22:05 ] |
Post subject: | |
hjá mér þarf bíllinn bara að vera tryggður, en aftur á móti er hann líklega ekki tryggður á braut. Það er samt deilumál hvort það á við ef ekki er verið að keppa eða taka tíma. |
Author: | Einarsss [ Tue 15. Jul 2008 22:11 ] |
Post subject: | |
Ef þetta gildir yfir skilmála hjá TM þá mun ég hætta þar og fara annað ef þeir fylgja þessu fram við mig. (3 bílar, líf og sjúkdóma, innbú etc etc... allur pakkinn) |
Author: | íbbi_ [ Tue 15. Jul 2008 22:12 ] |
Post subject: | |
þessi viðaukaregla má nú alveg fara hverfa, ég veit að þetta er ekkert mál en þetta er engu síður alveg óþolandi ef aíh verða með viðaukalausa daga þá eiga þeir lof fyrir |
Author: | ValliFudd [ Tue 15. Jul 2008 22:17 ] |
Post subject: | |
AÍH ræður þessu ekki, og jú mótorhjólamenn þurfa þetta líka. Þetta er bundið við lög. http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=950d6871-c956-4ead-aa8f-89624ebf7673 8. gr. Quote: Ábyrgðartryggingar ökutækja.
Ökutæki sem taka þátt í aksturskeppni skulu ábyrgðartryggð sérstaklega vegna þeirrar áhættu sem í keppni felst. Þá skal keppnishaldari leggja fram hæfilega tryggingu vegna ábyrgðar á framkvæmd keppninnar. Ennfremur skal keppnishaldari kaupa slysatryggingu vegna starfsmanna við keppni utan vega er greiði bætur við dauða eða varanlega örorku. Heimilt er í því sambandi að kaupa ábyrgðartryggingu er gildi fyrir ákveðið svæði til æfinga og æfingakeppni. Viðskiptaráðuneytið ákveður árlega vátryggingarfjárhæðir ábyrgðartryggingar vegna framkvæmdar á aksturskeppni og slysatryggingar, svo og vátryggingarfjárhæð fyrir ákveðin svæði. Held að það hafi verið þessi klausa sem bindur þetta í lög, hvort sem það eru hjól eða bílar. |
Author: | bimmer [ Tue 15. Jul 2008 22:32 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: AÍH ræður þessu ekki, og jú mótorhjólamenn þurfa þetta líka. Þetta er bundið við lög.
Held að þeir hafi átt við leikdaga. |
Author: | Axel Jóhann [ Tue 15. Jul 2008 22:46 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: ValliFudd wrote: AÍH ræður þessu ekki, og jú mótorhjólamenn þurfa þetta líka. Þetta er bundið við lög. Held að þeir hafi átt við leikdaga. Það væri bara þægilegt. ![]() |
Author: | Lindemann [ Tue 15. Jul 2008 22:52 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: AÍH ræður þessu ekki, og jú mótorhjólamenn þurfa þetta líka. Þetta er bundið við lög.
http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=950d6871-c956-4ead-aa8f-89624ebf7673 8. gr. Quote: Ábyrgðartryggingar ökutækja. Ökutæki sem taka þátt í aksturskeppni skulu ábyrgðartryggð sérstaklega vegna þeirrar áhættu sem í keppni felst. Þá skal keppnishaldari leggja fram hæfilega tryggingu vegna ábyrgðar á framkvæmd keppninnar. Ennfremur skal keppnishaldari kaupa slysatryggingu vegna starfsmanna við keppni utan vega er greiði bætur við dauða eða varanlega örorku. Heimilt er í því sambandi að kaupa ábyrgðartryggingu er gildi fyrir ákveðið svæði til æfinga og æfingakeppni. Viðskiptaráðuneytið ákveður árlega vátryggingarfjárhæðir ábyrgðartryggingar vegna framkvæmdar á aksturskeppni og slysatryggingar, svo og vátryggingarfjárhæð fyrir ákveðin svæði. Held að það hafi verið þessi klausa sem bindur þetta í lög, hvort sem það eru hjól eða bílar. Þeir töluðu einmitt um að þetta þyrfti einungis þegar um keppnir væri að ræða en ekki æfingar. Hérna er linkurinn á þráðinn sem ég var að tala um: http://ruddar.spjallbord.net/yaf_postst3525_Road-Race-230fing-fimmtudaginn-10-j250l237.aspx |
Author: | ValliFudd [ Tue 15. Jul 2008 22:55 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: ValliFudd wrote: AÍH ræður þessu ekki, og jú mótorhjólamenn þurfa þetta líka. Þetta er bundið við lög. Held að þeir hafi átt við leikdaga. Jú ég geri mér grein fyrir því, þetta er skrifað fyrir allar akstursíþróttir, ekki bara kvartmílu ![]() Og svo var eitthvað vesen með skilgreiningu á hvað er keppni og hvað er æfing o.s.frv.. En ef það væri hægt að sleppa viðaukanum, flott mál.. ![]() En það er bara spurning hvort það "megi" sleppanum lagalega séð.. |
Author: | Lindemann [ Tue 15. Jul 2008 22:57 ] |
Post subject: | |
spurning hvort það hafi ekki bara "gleymst" að setja klausu í lögin um æfingar fyrst það virðist ekkert vera minnst á þær. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |