bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Kvartmílukeppni Laugardaginn 12 júlí. Skráning hafin! ;) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=30638 |
Page 1 of 1 |
Author: | Ingsie [ Wed 09. Jul 2008 23:48 ] |
Post subject: | Kvartmílukeppni Laugardaginn 12 júlí. Skráning hafin! ;) |
Sælir Félagar Góðir nú er komið að annari keppni sumarsins. Jóakim og Gísli hafa fengið það verkefni að sjá um skráningar fyrir keppnina. Vinsamlegst sendu okkur eftirfarandi upplýsingar á netfangið joakim@sund.is Nafn Kennitala Keppnistæki Flokkur GSM tökum einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu( Kimi og Gilson). nánari upplýsingar í síma 660-0888 Jóakim / 858-7911 Gísli SKRÁNINGU LÝKUR Á FIMMTUDAGSKVÖLD Á SLAGINU 24:00 þegar skráningu er lokið verður EKKI hægt að skipta um flokk nema að flokkurinn innihaldi aðeins einn keppanda. dagskrá keppninar verður birt annað kvöld. Keppnisgjöld verða greidd á æfingu fyrir keppni sem verður á Fimmtudaginn (tími auglýstur síðar) Enginn fer niðrí pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd einnig ætla ég að biðja sem flesta að reyna að millifæra keppnisgjöldin Reikningsnúmerið er: #1101-26-111199 Kennitala: # 660990-1199 Keppnisgjaldið er 2500kr KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA það þarf að greiða keppnisgjöld í síðasta lagi á fimmtudagsæfinguni Keppendur undir 18 ára aldri þurfa skriflegt leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum Muna eftir Tryggingarviðauka, félagsskírteini og ökuskírteini, þarf að sýna þetta þrennt Jæja strákar, það var EINN BMW sem tók þátt í síðustu keppni, endaði í öðru sæti í sínum flokk... Trúi ekki öðru en það verði fleiri núna! |
Author: | Aron Andrew [ Thu 10. Jul 2008 01:02 ] |
Post subject: | |
Verður að vera skráður í keppni til að taka run á æfingunni? |
Author: | Ingsie [ Thu 10. Jul 2008 01:07 ] |
Post subject: | |
Já, æfingin á Fimmtudaginn er aðeins fyrir keppendur Laugardagsins. ![]() |
Author: | ValliFudd [ Thu 10. Jul 2008 09:35 ] |
Post subject: | |
Mig vantar hjálp frá team google ![]() Ég er búinn að vera að googla en finn ekki. Þar sem ég er afar slakur tölvuteiknari ákvað ég að googla frekar... ![]() Mig vantar semsagt keyrslublöð... Þetta heitir "ladder" en það þýðir víst fleira hehe.. Það sem ég er að meina er semsagt þetta þarna efst. Upp að 16 bílum. Ef það er fyrir færri er það í lagi, þá verðum við bara að gera eins og síðustu ár og líma saman blöð ef það eru fleiri. Endilega látið mig vita ef þið finnið eitthvað nothæft.. Það þarf semsagt að vera hægt að merkja við hvor vann ferðina, þetta er bara svona fyrir áhorfendur. Það sem ég þarf er meira fyrir turninn til að merkja við hver vann hvaða ferð. ![]() |
Author: | einarornth [ Thu 10. Jul 2008 09:38 ] |
Post subject: | |
http://www.google.is/search?q=bracket+template&ie=utf-8&oe=utf-8&aq=t&rls=org.mozilla:en-US:official&client=firefox-a |
Author: | ValliFudd [ Thu 10. Jul 2008 09:55 ] |
Post subject: | |
einarornth wrote:
Ahh.. Þakka þér ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |