bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
FELGUM STOLIÐ... Racing Dynamics https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=30504 |
Page 1 of 8 |
Author: | saemi [ Wed 02. Jul 2008 22:21 ] |
Post subject: | FELGUM STOLIÐ... Racing Dynamics |
Haldið þið ekki að felgunum mínum hafi verið stolið! Ég var með þessar felgur inni í 525ix touring bílnum mínum í Ferjuvogi og einhver bíræfinn besefi braust inn í bílinn með að brjóta hliðarrúðuna að framan í honum. Greip svo felgurnar mínar (og dekkin á þeim) með sér. Ég er nokkuð viss um að þetta hafi gerst í nótt (aðfaranótt 2 júlí), en gæti þó hafa gerst 1-2 nóttum fyrr. Þetta eru einu felgur sinnar tegundar á landinu svo það væri gaman að fá að vita ef þið sjáið þessar felgur á ferðinni. Ætti ekki að vera erfitt að finna sökudólginn ef hann spókar sig um á þessum hér á landi. Nú en ef þið sjáið þetta, þá er bara að hringja í lögregluna eða mig 699-2268. Þá áttu mig fyrir besta vin næst þegar þig vantar varahlut í BMW-inn þinn heim frá útlöndum ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 02. Jul 2008 22:27 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | shadow [ Wed 02. Jul 2008 22:28 ] |
Post subject: | |
Mjög líklegt að þetta sé á leiðinni úr landi.. fer líklega sjóleiðina þá þannig ég myndi tala við eimskip/tvg samskip/jónar. Örugglega glatað að lenda í þessu, en þetta er víst orðið fáranlega algengt að menn séu að lenda í þessu í dag. ![]() |
Author: | srr [ Wed 02. Jul 2008 22:28 ] |
Post subject: | |
Þjófurinn er ekki alveg með á hreinu hverju hann var að stela greinilega. Svona felgur FARA EKKI fram hjá neinum. Gangi honum vel að koma þessu í verð og/eða koma þessu undir bíl án þess að enginn kraftsmeðlimur taki ekki eftir því. Með von um að þú fáir felgurnar þínar aftur! Ég mun amk hafa augun opin.... |
Author: | Raggi M5 [ Wed 02. Jul 2008 22:30 ] |
Post subject: | |
Helvítis pönkarar! Og að brjóta frammrúðuna???? WTF, afhverju ekki alveg eins bara skera þakið af bílnum ![]() |
Author: | Djofullinn [ Wed 02. Jul 2008 22:41 ] |
Post subject: | |
Alveg kjánalegt. Gangi þeim vel að selja/nota þetta ![]() Vonandi nást þeir sem fyrst. |
Author: | zazou [ Wed 02. Jul 2008 22:43 ] |
Post subject: | |
Skítt að heyra, var aðkoman eitthvað í áttina að þessu? http://www.visir.is/article/20080702/LI ... 2581794255 |
Author: | Arnarf [ Wed 02. Jul 2008 22:43 ] |
Post subject: | |
Maður er núna alltaf að sjá þetta í fréttunum að það sé verið að stela felgum Síðast í dag, stolið felgum af Golf GTI Er kominn business á íslandi að stela felgum og senda þær út? |
Author: | saemi [ Wed 02. Jul 2008 22:47 ] |
Post subject: | |
Raggi M5 wrote: Helvítis pönkarar! Og að brjóta frammrúðuna???? WTF, afhverju ekki alveg eins bara skera þakið af bílnum
![]() sorrý, ég meinti hliðarrúðuna að framan ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Wed 02. Jul 2008 22:51 ] |
Post subject: | |
Damn þetta er alveg mega vont! En það verður easy að spotta þennan gæja og skal hafa augun með mér, Spurning ef maður sér hann á kranabílnum að taka bara bílinn með líka ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 02. Jul 2008 22:51 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() |
Author: | HelgiPalli [ Wed 02. Jul 2008 23:01 ] |
Post subject: | |
Un-PC að segja svona, en -> www.ebay.pl ![]() Passar þetta annars undir eitthvað annað en BMW? Ef þetta voru íslendingar á ferð sem ætla að nota þær hérlendis þætti mér líklegt að þær yrðu málaðar, eða amk. miðjunni skipt út. |
Author: | gstuning [ Wed 02. Jul 2008 23:15 ] |
Post subject: | |
Þetta er komið í kassa og á leið út, eða einhver alveg ótrúlega vitlaus ætlar að runna þetta á bílnum sínum, Talaðu við lögregluna og svona, útskýra það að þær séu einstakar á landinu og þú sért smeykur við að þær fari út. Myndi halda að þessu hafi þá verið hvað rænt um helgina og komið í flutning á síðasta mánudag?? |
Author: | elli [ Wed 02. Jul 2008 23:22 ] |
Post subject: | |
Fokkings dónar ![]() Þar sem augun verða opin gæti verið gott fyrir okkur að vita: Er til mikið af þessum felgum hér, er þetta ekki eina 19" settið sem vitað er um á ísl.? |
Author: | íbbi_ [ Wed 02. Jul 2008 23:37 ] |
Post subject: | |
nú er það bara að hafa augun opinn, þetta er ekki ásættanlegur hlutur að búa við.. |
Page 1 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |