bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Líf eftir ML https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=30435 |
Page 1 of 2 |
Author: | bjarkovic [ Sun 29. Jun 2008 23:51 ] |
Post subject: | Líf eftir ML |
Ath. Þessi þráður er líka á www.blyfotur.is, en ég vil endilega fá innlegg frá Kraftafólkinu. Þannig er staðan að ég er að fara að uppfæra bílinn minn. Ég er með Mercedes Benz ML 320 árgerð 2000 (sem er einmitt til sölu á þessum vef). Þessi bíll hefur reynst einstaklega vel, en við hjónin erum þó sammála um að yngja aðeins upp og fá okkur eitthvað skemmtilegt. Við viljum ekki eldri bíl en 2004, en strax eftir það greinir okkur á um hvað við viljum kaupa. Draumurinn okkar er bara ML í nýja boddíinu (seint 2005 eða síðar) en þeir eru samt of dýrir fyrir okkur ennþá. Kannski næst. Hvað á að gera í millitíðinni? Ég byrjaði á að skoða Touareg. Þeir eru mjög skemmtilegir, en þeir sem líta vel út eru V8 bílarnir. Ég er alveg til í V8 bíl, en ég hef heyrt draugasögur af þessum bílum. Rafkerfi, loftpúðafjöðrun og einstaklega óhófleg bensíneyðsla í V8 bílunum eru að draga úr þeim kosti. Áður hafði ég skoðað Jeep Grand Cherokee. Mér finnst þeir í grunninn frekar flottir, en innréttingarnar eru kannski helst til plastlegar og standard felgur t.d. ekkert mjög spennandi. Laredo bílarnir finnst mér lítt spennandi þannig að Hemi kemur til greina, nema hann eyðir víst sjaldan undir 20. Endilega leiðréttið mig ef þið vitið betur. Svo kom allt í einu hringing sem heillaði mig óvænt. Bílar sem ég hef aldrei skoðað (enda of dýrir). Porsche Cayenne. Þá er einn slíkur á sölu, S bíll (aftur V8, sem kemur mögulega til greina. Þótt Cayenne og Touareg byggi á sömu grind, þá hefur mér reyndar þótt Touareg heldur fallegri ef eitthvað er. En Cayenne bíllinn er þó virkilega skemmtilegur, mjög huggulega farinn og fínn go það sem kom mér mest á óvart er eyðslan. Þegar ég sótti bílinn til prufu stóð meðaleyðslan í 14.2 á hundraðið. Ég keyrði hann í tæpa klukkustund og þegar ég skilaði honum á planið stóð 14.3 á tölvunni. Ekki slæmt það! Það má alveg verða ögn meira fyrir þessa vél, þess vegna. Þá kemur skoðun konunnar. Hún vill CR-V. Ouch. Fínir bílar og allt það, en þegar þið sjáið hvað ég hef verið að skoða, þá má skilja hve mig verkjar í sálina þegar þessi kemur til tals. Hann er sparneytinn, praktískur, plastlegur og karakterslaus. Hvað finnst ykkur? Hver er ykkar reynsla? Endilega póstið! Kv, Bjarki |
Author: | IceDev [ Mon 30. Jun 2008 00:02 ] |
Post subject: | |
Ég kem með klassíska BMWkraftssvarið X5 eða þá...ugh....X3 Mjög áræðanlegar vélar Lág bilanatíðni Ágætis framboð |
Author: | Geirinn [ Mon 30. Jun 2008 00:03 ] |
Post subject: | |
IceDev wrote: Ég kem með klassíska BMWkraftssvarið
X5 Þú ert ekki að hjálpa honum neitt nema að rökstyðja svarið. |
Author: | bjarkovic [ Mon 30. Jun 2008 00:15 ] |
Post subject: | |
Mér finnst X3 reyndar svo ljótir að ég held að ég færi jafnvel frekar í CR-V. Ég haf alltaf verið veikur fyrir X5, reyndar. Það er samt ekkert ægilegt framboð á þeim á þokkalegum verðum - ég er til í að skoða öll tilboð ef einhver er að reyna að skipta... ![]() En ég er líka bara forvitinn að heyra reynslusögur? Hverjir hafa átt X5? Hvað hefur verið að klikka? Eða ekki að klikka? Ég er frekar smeykur við Touareg eftir að hafa heyrt um rafkerfisbilanir, loftpúðavesen o.fl. Kannski er það bara bull líka. B. |
Author: | Axel Jóhann [ Mon 30. Jun 2008 02:08 ] |
Post subject: | |
Hvað er að Range Rover? ![]() |
Author: | bjarkovic [ Mon 30. Jun 2008 07:45 ] |
Post subject: | |
Seg þú mér! Ég er til í að skoða það líka. Er rafkerfið þar ekki samt einhver akkilesarhæll? Hver er reynslan af þeim? Viðhald og eyðsla? |
Author: | SteiniDJ [ Mon 30. Jun 2008 09:35 ] |
Post subject: | Re: Líf eftir ML |
bjarkovic wrote: Hvað finnst ykkur? Hver er ykkar reynsla?
Endilega póstið! Kv, Bjarki Pabbi átti 2003 X5 4.4i sem hann keypti á Heimsbílum. Við áttum bílinn í "langan" tíma (2 - 3 ár ef ég man rétt) og ég held að eina bilunin sem ég man eftir var þetta skemmtilega pixel vandamál. Bílinn var með US rafkerfi og strákarnir í B&L voru því frekar langan tíma að koma kúlunni undir bílinn, enda höfðu þeir ekki gert þetta áður á þetta rafkerfi. Þessi bíll þurfti ekki mikið viðhald, en þó eitthvað - sem kemur ekki á óvart. Eyddi ca. 18l/100 innanbæjar við hressilegan akstur, en getur farið yfir 20l/100 ef ökumaður er í virkilega góðu skapi. ![]() Eftir að við seldum hann fengum við okkur nýlegan Range Rover Sport HSE. Það var nú meira draslið, þessi bjó bókstaflega uppi á verkstæði og það sem fyllti mælinn var þegar hann fór að pústa framhjá, þá var ákveðið að fá sér nýjan X5 sem er betri en sá fyrri, og þá er verið að segja mikið. Það er mjög mikið til af eldri X5 á heimskulega góðu verði, farðu á bilaland.is og skoðaðu PZ866 (2003 4.6i X5) sem dæmi, ég held að þeir gerist ekki betri. |
Author: | BlitZ3r [ Mon 30. Jun 2008 12:29 ] |
Post subject: | |
Faðir minn á 2005 árg af Jeep Grand Cherokee. ókei innréttingin er soldið slöpp í gæðum og þetta er soldið svagt enda amerískur bíll, þeir eru allir þannig. En hann er með öllu NEMA hemi vélinni s.s 4.7l V8 sem skilar í kringum 240hp. Flott orka og hljóðið er með því fallegra sem ég hef heyrt úr v8 en aldrei of hátt bara mjög nett. græjunar eru orginal frá alpine og infiniti hátlarar. mjög flott hjóð úr því. Það eina sem mér fynst vanta í svona bíla er rafmagnsstýri en það er ekki til í þeim og það eina sem er ekki rafmagn í. Snilldar krúser. Kanin hefur komið langa leið frá gömlu mublunum sínum. eyðslan á honum er í kringum 23l en við erum í eyjum og hér eyða allir bílar fáranlega miklu. er í mikluminna á fasta landinu Og ekki skemmir fyrir að þeir eru oft talsvert ódýrari en stóru þýsku vagnarnir |
Author: | zazou [ Mon 30. Jun 2008 12:56 ] |
Post subject: | |
Ég átti RR með 3.0 BMW dísil, geggjaðir bílar. Örugglega hægt að fá þá á flottum verðum í dag. Þurfti þó að punga út 90k fyrir einn fokkíng ABS skynjara ![]() |
Author: | íbbi_ [ Mon 30. Jun 2008 14:11 ] |
Post subject: | |
ég er búinn að prufa alla þessa $$$ jeppa og keyri flesta þeirra daglega, þægilegustu bílarnir að mínu mati eru ML og GL bílarnir frá benz, ísetan, fjöðrun sæti og flr eru með því þægilegasta sem ég hef prufað, ég persónulega færi í slíkan bíl, og tæki hann 320cdi m/sportpakka, toareg bílana fíla ég vel, sparibíll á eflaust einn loadaðasta toareq sem ég hef séð með R5 diesel, v8 bílarnir bryðja skiptingar, bilanatíðni á toareq er yfir meðallagi, meirasegja samanborið við þýskan bíl, X5 er brilliant bæði gamli og nýji, ótrúlega þéttir og solid bílar, hafa áberandi betri aksturseiginleika á mikilli ferð heldur en allir nema cayanne, cayanne = bestur, turbo og S bílarnir eru bara brill, ég myndi reyna halda mig frá 03/04, innrétingarnar eru eins en úr ódýrari efnum sem var breytt v/kvartana, lang skemmtilegustu bílarnir af þessu, RR=stórt virðulegt og þægilegt, bilanatíðni skelfileg, en hún er það sömuleiðis á öllu jeppunum sem þú ert búinn að telja upp, að keyra stóra RR er mjög valdsmannslegt, sportinn er i.m.o ekki jafn skemmtielgur bíll, en poser factorinn er mikill |
Author: | bjarkovic [ Mon 30. Jun 2008 14:17 ] |
Post subject: | |
SteiniDJ, þessi BMW X5 á Bílalandi er virkilega fallegur. Verst að það er ekki stórkostlegur kostur að láta bíla uppí hjá umboðum, en ég ætla að heyra í þeim og kíkja aðeins á hann. Íbbi, takk fyrir þessa útlistun. Gaman að heyra þetta frá einhverjum sem er í þessum runum daglega. Ég gæti alveg hugsað mér þennan. http://v1.bilasolur.is/Car.asp?show=CAR ... _ID=178622 Hér er einn sem ég hef verið að skoða (sem dæmi). Kv, Bjarki |
Author: | FinnurKarls [ Mon 30. Jun 2008 14:36 ] |
Post subject: | |
mér finnst RR sport mun skemmtilegri heldur en stóri, í vissum tilfellum,, til dæmis betri í beygjum og öllu svoleiðis en hinn er mun skemmtilegri uppá krúsið að gera og þú ert ,,,,, BIG BOSS ,,,, á stórum range rover supercharged,,,,, en athugaðu að V8 díselvélarnar eru ekki að eyða neinu hjá þeim en samt hrikalega skemmtilegt tog í þeim,,,, myndi ekki gera neitt án þess að prófa þessa bíla allavegana |
Author: | SteiniDJ [ Mon 30. Jun 2008 15:16 ] |
Post subject: | |
bjarkovic wrote: SteiniDJ, þessi BMW X5 á Bílalandi er virkilega fallegur. Verst að það er ekki stórkostlegur kostur að láta bíla uppí hjá umboðum, en ég ætla að heyra í þeim og kíkja aðeins á hann.
Þessi X5 er svart gull. ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Mon 30. Jun 2008 15:18 ] |
Post subject: | |
Bíddu þar til í haust, gætir fengið góðan jeppa á góðu verði. Annars er eru X5 og Cayenne ekki miklir jeppar sem slíkir hér á Íslandi. Mín reynsla af jeppum þá er þungt að reka þá.. ![]() (þegar litið er á bensínmælinn þ.e.a.s. ![]() |
Author: | Lilja [ Mon 30. Jun 2008 15:25 ] |
Post subject: | |
SteiniDJ wrote: bjarkovic wrote: SteiniDJ, þessi BMW X5 á Bílalandi er virkilega fallegur. Verst að það er ekki stórkostlegur kostur að láta bíla uppí hjá umboðum, en ég ætla að heyra í þeim og kíkja aðeins á hann. Þessi X5 er svart gull. ![]() Ég verð að vera ósammála, finnst þeir alltaf nefna svívirðilegar tölur. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |