bimmer wrote:
Skv. umræðunni á L2C er þetta deila um eignarhald.
Hverjir deila um það?
Árið 2002 bað Hafnarfjarðarbær mótorsportmenn um að sameinast í undir eina reglhlíf sem yrði þá viðræðu aðili við bæjinn. Þá var ákveðið að stofna AÍH. Það var gert í fljótræði og var ákveðið að allir klúbbar yrðu sjálfstæðir með allt. Síðan lýður tíminn og ekkert var gert í málum aíh,,, síðan hefjast leikdagar hjá okkur og þá allt í einu sjá stjórnarmenn að þarna sé stórgróði og vilja þá kaupa brautina af brautareigendum. Þeir fengu nei við þeirri ósk og þá datt þeim það í hug að breyta um nöfn í stjórnum Rallykross klúbbsin og Mótorsportklúbbsins. Þetta var strax dæmt ólöglegt. En áfram halda þeir og vilja meina að þeir geti yfirtekið klúbba ynnan aíh sem ekki skili ársskýrslu,, rétt er það,,, aldrei hef ég skilað þessari ársskýrslu,, einfaldlega af því að ég var aldrei, ALDREI, boðaður á neinn fund og þar af leiðandi hef ég aldrei vitað að ég átti að skila neinni skýrslu. En af því að þeir sáu engan pening í að yfirtaka Mótorsportklúbbinn þá ráku þeir mig úr aíh. En af því að þeir sáu pening í að yfirtaka Rallykrossklúbbinn þá rembast þeir núna eins mikið og þeir geta. Núna byrjar þetta fyrir alvöru,, menn ná sér í lögfræðing og fara með þetta fyrir dómsstóla.
Eitthvern veginn efast ég um að þessir aular í aíh séu menn til að standa á bak við það sem er að byrja. Þar fyrir utan eru þeir ekki borgunaraðilar fyrir þeirri skuld sem er á brautinni.Þannig að þessi barátta þeirra er fyrirfram töpuð. Þeir eru líka ekki borgunarmenn fyrir skuldinni sem er á brautinni. Það eina sem þeir ná að gera er að eyðileggja fyrir okkur gott sumar.