Page 1 of 1

Leikdagur no. 10 2008 Föstudagur 20. Júní

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 11:33
by Porsche-Ísland
Föstudaginn 20. Júní þá verður Leikdagur númer 10 í ár.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í Tryggingarviðauka. Fyrr frekar en síðar.

En annars er bara stöðluð auglýsing.

Föstudaginn 20. Júní verður leikdagur á Akstursbrautinni.
Við munum hafa opið frá 20-og eitthvað fram eftir nóttu.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.
Það er engin undanþága frá þessari reglu.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.
Og ekki gleyma hjálminum. Líka þeir sem ætla bara að fá far verða að muna eftir hjálminum.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í Halldór (Dóra) í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer á Akstursbrautinni árið 2008.


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.
Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
_________________

Image

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 12:08
by Geysir
VÚHÚ!!!
Loksins er maður í fríi og kemst.

Tryggingarviðaukinn kominn í hús og miklar líkur á því að maður mæti (hvort sem maður keyrir brautina eða ekki.)

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 13:03
by arnibjorn
Ég kemst ekki :bawl:

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 18:16
by Aron Andrew
Ég kem og mökka feitt 8) 8)

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 18:24
by Alpina
Aron Andrew wrote:Ég kem og mökka feitt 8) 8)


Ekki ég,, verd á AUTOBAHN, og smyr toyo 265 á gula í asfaltid,,,

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 21:13
by Einarsss
ég mæti ábyggilega og klára dekkin frá drift keppninni

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 21:19
by zazou
Still no sportscar here :cry:
Einn í vinnunni var að kaupa gamla IceDev, kannski ég reyni að plata kútinn uppeftir.

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 13:00
by Porsche-Ísland
Mér þykir það leitt að tilkynna en Akstursbrautin hefur verið lokað og verður það um óákveðin tíma.
Menn sem berjast á móti mótorsporti á Íslandi hafa lagt fram kröfur til lögreglustjóra sem í framhaldi tók leyfin af okkur af okkur.
Skil ég stöðu lögreglustjóra í þessu máli.
Í stað þess að fara með þetta rétta leið í gegnum dómskerfið þá urðum við blórabögglar í þessari baráttu.
Við erum á fullu að vinna í þessu máli og vonandi munum við opna sem fyrst.

Þeir sem eru að skemma fyrir okkur eru stjórn AÍH.
Þar eru helstu menn:
Aron Reynisson, Gunnar Bjarnason, Hilmar Þráinsson, Kristján Geir Mathiesen, Gunnar Hjálmarsson og Kristinn Sveinsson.

Þessir menn vilja ekki að íslenskt mótorsport blómstir heldur leggist niður.

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 13:03
by arnibjorn
:? :? :? :?

ÖMURLEGT að heyra!

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 13:04
by bimmer
Porsche-Ísland wrote:Mér þykir það leitt að tilkynna en Akstursbrautin hefur verið lokað og verður það um óákveðin tíma.
Menn sem berjast á móti mótorsporti á Íslandi hafa lagt fram kröfur til lögreglustjóra sem í framhaldi tók leyfin af okkur af okkur.
Skil ég stöðu lögreglustjóra í þessu máli.
Í stað þess að fara með þetta rétta leið í gegnum dómskefrið þá urðum við blórabögglar í þessari baráttu.
Við erum á fullu að vinna í þessu máli og vonandi munum við opna sem fyrst.

Þeir sem eru að skemma fyrir okkur eru stjórn AÍH.
Þar eru helstu menn:
Aron Reynisson, Gunnar Bjarnason, Hilmar Þráinsson, Kristján Geir Mathiesen, Gunnar Hjálmarsson og Kristinn Sveinsson.

Þessir menn vilja ekki að íslenskt mótorsport blómstir heldur leggist niður.


Þetta er ömurlegt og þessir gaurar eiga að skammast sín!!!!

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 14:15
by srr
Porsche-Ísland wrote:Þeir sem eru að skemma fyrir okkur eru stjórn AÍH.
Þar eru helstu menn:
Aron Reynisson, Gunnar Bjarnason, Hilmar Þráinsson, Kristján Geir Mathiesen, Gunnar Hjálmarsson og Kristinn Sveinsson.

Þessir menn vilja ekki að íslenskt mótorsport blómstir heldur leggist niður.

Hilmar Þráinsson = HK Racing?

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 14:19
by F2
srr wrote:
Porsche-Ísland wrote:Þeir sem eru að skemma fyrir okkur eru stjórn AÍH.
Þar eru helstu menn:
Aron Reynisson, Gunnar Bjarnason, Hilmar Þráinsson, Kristján Geir Mathiesen, Gunnar Hjálmarsson og Kristinn Sveinsson.

Þessir menn vilja ekki að íslenskt mótorsport blómstir heldur leggist niður.

Hilmar Þráinsson = HK Racing?


Aha,,,,

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 14:20
by arnibjorn
Ég var beðinn um að læsa þessum þræði, óþarfi að vera með tvo þræði um þetta mál.

Ef að menn vilja ræða um akstursbrautina notum þá þennan þráð hérna:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 9&start=15

:)