bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Innfluttningur á aukahlutum (Komið til íslands) *Hjélp* :( https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=30191 |
Page 1 of 1 |
Author: | Jónas Helgi [ Tue 17. Jun 2008 21:35 ] |
Post subject: | Innfluttningur á aukahlutum (Komið til íslands) *Hjélp* :( |
Ég fékk sent bréf í póstinum í gær sem er merkt: Tilkynning um sendingu frá útlöndum Þarna eru einhverjar upplýsingar um sendinguna, þyngd, dagsettning o.s.fl. Ég pantaði mér framstuðara, K&N Síu og M6 felgur. Þetta sem er komið er síann. Hún var send á undan vegna þess að þeir áttu sjálfir eftir að fá stuðarann og felgurnar en það er í sendingu núna. Ég borgaði þetta allt saman á einu bretti í gegnum paypal, þess er þetta allt saman á sama reikning. Allaveganna, þessi tilkynning er að biðja mig um upplýsingar um sendinguna sem ég á að senda þeim í tölvupóst eða faxi sem er svohljóðandi: Til að tollafgreiða sendinguna vantar okkur upplýsingar frá þér! Sendu okkur tölvupóst á tollmidlun@postur.is *Settu viðtökunúmerið í efni (subject) *Láttu vörureikning fylgja (sýnir verðmæti innihalds og flutningskostnað) *Láttu staðfestingu á greiðslu fylgja *Láttu 'item' númer frá Ebay fylgja Eða sendu okkur fax bla bla bla.... Getur einhver aðstoðað mig hvað ég á að senda þeim nákvæmlega, ég er ekki svo klár á þetta ![]() Takk kærlega -Jónas |
Author: | IceDev [ Tue 17. Jun 2008 21:37 ] |
Post subject: | |
Til að tollafgreiða sendinguna vantar okkur upplýsingar frá þér! Sendu okkur tölvupóst á tollmidlun@postur.is *Settu viðtökunúmerið í efni (subject) *Láttu vörureikning fylgja (sýnir verðmæti innihalds og flutningskostnað) *Láttu staðfestingu á greiðslu fylgja *Láttu 'item' númer frá Ebay fylgja Svona..þetta ætti að lýsa því sem þú ættir að gera ![]() |
Author: | Stebbimj [ Tue 17. Jun 2008 21:40 ] |
Post subject: | |
sendu bara allt sem þú fékkst um þetta í e-maili til þeirra, ég gerði það við felgurnar á föstudegi og fékk þetta heim að dyrum á mánudegi. |
Author: | jon mar [ Tue 17. Jun 2008 21:53 ] |
Post subject: | |
dugar ágætlega að senda þeim bara afrit af paypal kvittunni |
Author: | Zeus [ Tue 17. Jun 2008 22:58 ] |
Post subject: | |
Þú þarft bara að senda þeim paypal kvittunina þína í tölvupósti. Taktu fram að sían er ekki inn í þessari sendingu! Svo þú sért ekki að fara borga toll + virðisauka á síuna líka. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |