bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Leikdagur no. 9 2008 Sunnudagur 8. Júní
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=29968
Page 1 of 4

Author:  Porsche-Ísland [ Thu 05. Jun 2008 09:10 ]
Post subject:  Leikdagur no. 9 2008 Sunnudagur 8. Júní

Sunnudaginn 8. Júní þá ætlum við að hafa brautina opna.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í Tryggingarviðauka. Fyrr frekar en síðar.

En annars er bara stöðluð auglýsing.

Sunnudaginn 8. Júní verður leikdagur á Akstursbrautinni.
Við munum hafa opið frá 13-17.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.
Það er engin undanþága frá þessari reglu.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.
Og ekki gleyma hjálminum. Líka þeir sem ætla bara að fá far verða að muna eftir hjálminum.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í Halldór (Dóra) í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer á Akstursbrautinni árið 2008.


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.
Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
_________________

Author:  Einarsss [ Thu 05. Jun 2008 09:15 ]
Post subject: 

ætla reyna að mæta og slátra dekkjunum frá seinasta leikdegi 8)

Author:  arnibjorn [ Thu 05. Jun 2008 09:39 ]
Post subject: 

Ég mæti og keyri ef það verður þurrt :D

Author:  Tommi Camaro [ Thu 05. Jun 2008 09:46 ]
Post subject: 

ég mæti ekki á bíll :cry:

Author:  Einarsss [ Thu 05. Jun 2008 09:53 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
ég mæti ekki á bíll :cry:


ryðgaði hann í sundur? :shock:

Author:  Tommi Camaro [ Thu 05. Jun 2008 09:54 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Tommi Camaro wrote:
ég mæti ekki á bíll :cry:


ryðgaði hann í sundur? :shock:

nei hann seldist :argh:

Author:  Axel Jóhann [ Thu 05. Jun 2008 12:13 ]
Post subject: 

ÉG MÆTI OG DREP 2 STK DEKK! 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8)

Author:  Saxi [ Thu 05. Jun 2008 13:18 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
ÉG MÆTI OG DREP 2 STK DEKK! 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8)


Kominn með læst?

Author:  Lindemann [ Thu 05. Jun 2008 22:57 ]
Post subject: 

Saxi wrote:
Axel Jóhann wrote:
ÉG MÆTI OG DREP 2 STK DEKK! 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8)


Kominn með læst?


nei það eru bæði hægri og vinstri beygjur í brautinni :lol:

Author:  Axel Jóhann [ Thu 05. Jun 2008 23:36 ]
Post subject: 

Saxi wrote:
Axel Jóhann wrote:
ÉG MÆTI OG DREP 2 STK DEKK! 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8)


Kominn með læst?




negative, ég þarf ekki LSD til að drifta. 8) 8) 8) 8)


















Það væri samt betra að hafa það en bíllinn stendur sig MJÖG vel án þess :)

Author:  Einarsss [ Fri 06. Jun 2008 08:11 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
Saxi wrote:
Axel Jóhann wrote:
ÉG MÆTI OG DREP 2 STK DEKK! 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8)


Kominn með læst?




negative, ég þarf ekki LSD til að drifta. 8) 8) 8) 8)


















Það væri samt betra að hafa það en bíllinn stendur sig MJÖG vel án þess :)


þangað til drifið fer í klessu :lol:

Author:  Porsche-Ísland [ Fri 06. Jun 2008 08:35 ]
Post subject: 

Það vita allir hvað á að gera í dag svo þeir geti komið á sunnudaginn, er það ekki?









Blessaður viðaukinn.
Muna eftir honum.

Author:  Axel Jóhann [ Fri 06. Jun 2008 10:07 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Axel Jóhann wrote:
Saxi wrote:
Axel Jóhann wrote:
ÉG MÆTI OG DREP 2 STK DEKK! 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8) 8)


Kominn með læst?




negative, ég þarf ekki LSD til að drifta. 8) 8) 8) 8)


















Það væri samt betra að hafa það en bíllinn stendur sig MJÖG vel án þess :)


þangað til drifið fer í klessu :lol:




Þá er bara enn meiri pressa á að fá sér LSD.






Enn ég er búinn að græja tryggingaviðauka! 8) 8) 8) 8)

Author:  Steini B [ Sat 07. Jun 2008 16:28 ]
Post subject: 

Ég er með viðauka, svo kemur bara í ljós hvort maður láti vaða á morgun... :)

Author:  Axel Jóhann [ Sat 07. Jun 2008 16:35 ]
Post subject: 

Steini B wrote:
Ég er með viðauka, svo kemur bara í ljós hvort maður láti vaða á morgun... :)



Um að gera að mæta og prófa. 8)

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/