Page 1 of 1

VIP passar fyrir Bíladaga 2008

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:02
by Þórður Helgason
VIP passar (armbönd) fyrir alla viðburði á Bíladögum 2008 eru seldir í OLÍS í Álfheimum, OLÍS í Fellabæ, og Ellingsen á Akureyri, og kosta kr. 3.000.- Það jafngildir 25% afslætti á alla burðina, og að auki opnar VIP-passinn leið framhjá biðröðunum í miðasölunni, sem hafa því miður myndast hjá okkur undanfarin ár. Og opnar að auki aðgang að stúkusætum á BurnOutinu og aðgang að nýjum sérsmíðuðum áhorfendapöllum á Götuspyrnunni, hægra megin við ráslínu, þ.e.a.s. á besta stað.
Þetta fyrirkomulag með passana reyndist mjög vel í fyrra.

Verð aðgöngumiða:

14. júní Götuspyrnan, kr. 1.000.- á staðnum.
15. júní Driftið, kr. 1.000.- á staðnum
16. júní BurnOutið kr. 1.000.- á staðnum
17. júní Bílasýningin. kr. 1.000.- á staðnum..

Með von um að sjá ykkur öll í sólinni.

Með kveðju
F.h. Bílaklúbbs Akureyrar

Þórður Helgason

www.ba.is

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 23:26
by Jón Ragnar
Búinn að kaupa 8)

PostPosted: Wed 04. Jun 2008 00:36
by Axel Jóhann
Ætla kaupa þegar ég kem í bæjinn.

PostPosted: Thu 05. Jun 2008 23:41
by Einari
hvenær eru nákvæmari tímasetningar væntanlegar á þessa atburði?? :)

PostPosted: Thu 05. Jun 2008 23:43
by Steini B
Ég fór í gær og þau vissu varla hvað maður var að tala um.... :lol:

ha, bíla hvað?

PostPosted: Sun 08. Jun 2008 23:34
by Þórður Helgason
Steini B wrote:Ég fór í gær og þau vissu varla hvað maður var að tala um.... :lol:


Þú hefur vonandi fengið passann samt. Menn eru auðviðtað misvel með á nótunum.
ÞH