Page 1 of 5

Leikdagur no. 7 2008 Sunnudagur 25. Maí

PostPosted: Mon 19. May 2008 19:23
by Porsche-Ísland
Sunnudaginn 25. Maí þá ætlum við að hafa brautina opna.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í Tryggingarviðauka.

En annars er bara stöðluð auglýsing.

Sunnudaginn 25. Maí verður leikdagur á Akstursbrautinni.
Við munum hafa opið frá 13-17.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.
Það er engin undanþága frá þessari reglu.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.
Og ekki gleyma hjálminum. Líka þeir sem ætla bara að fá far verða að muna eftir hjálminum.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer á Akstursbrautinni árið 2008.



Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.
Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
_________________

PostPosted: Mon 19. May 2008 19:26
by arnibjorn
Ég er farinn út að tilkeyra!! :o 8)

PostPosted: Mon 19. May 2008 20:16
by Svezel
Glæsilegt þetta! Sjáumst á brautinni, jafnvel á 2 bílum bara :D

PostPosted: Mon 19. May 2008 20:34
by Ingsie
JEYJ :D Ég mæti! 8)

PostPosted: Mon 19. May 2008 21:56
by íbbi_
hahaha 350Z seld :x

PostPosted: Mon 19. May 2008 22:00
by sh4rk
Það er aldrei að vita nema maður kikji, ef maður er ekki búinn að sökkva sér í E23 bílinn

PostPosted: Mon 19. May 2008 23:00
by Jón Ragnar
íbbi_ wrote:hahaha 350Z seld :x



Fékkst nú EKKI vondan bíl í staðinn 8)

PostPosted: Mon 19. May 2008 23:08
by íbbi_
Jón Ragnar wrote:
íbbi_ wrote:hahaha 350Z seld :x



Fékkst nú EKKI vondan bíl í staðinn 8)


MJÖG trú..

PostPosted: Mon 19. May 2008 23:42
by Húni
mindi mæta og horfa á en er að fara á hellutorfæruna

PostPosted: Tue 20. May 2008 00:32
by Dóri-
Þarf bíllinn að vera skoðaður ? :oops:

PostPosted: Tue 20. May 2008 00:43
by Aron Andrew
Úff það verður erfitt að vakna...

Fæ ég ekki að keyra frítt ef ég mæti með stúdentahúfuna? :lol:

PostPosted: Tue 20. May 2008 01:18
by arnibjorn
Aron Andrew wrote:Úff það verður erfitt að vakna...

Fæ ég ekki að keyra frítt ef ég mæti með stúdentahúfuna? :lol:


Við mætum náttla klárlega báðir með húfur 8)

PostPosted: Tue 20. May 2008 01:31
by Porsche-Ísland
Dóri- wrote:Þarf bíllinn að vera skoðaður ? :oops:


Já hann þarf að vera með skoðun.

PostPosted: Tue 20. May 2008 02:14
by Dóri-
Porsche-Ísland wrote:
Dóri- wrote:Þarf bíllinn að vera skoðaður ? :oops:


Já hann þarf að vera með skoðun.


Má það vera endurskoðun ? :oops:

PostPosted: Tue 20. May 2008 07:07
by Porsche-Ísland
Dóri- wrote:
Porsche-Ísland wrote:
Dóri- wrote:Þarf bíllinn að vera skoðaður ? :oops:


Já hann þarf að vera með skoðun.


Má það vera endurskoðun ? :oops:


Það má ver endurskoðun en ekki á öryggishlutum,, svo sem bremsum, fjöðrun eða stýrisgang.