Page 1 of 1

Tollur á Framstuðara, bremsukitti, spoler og felgum.

PostPosted: Wed 14. May 2008 22:09
by azid
Enn einn tollaþráðurinn..
Ég fór í leit bæði hér og á live2loose en finn ekkert nema frá 2005-2006, veit ekki hvort maður ætti að hengja sig uppá hvort að það sé rétt eður ei.
Ég er búinn að vera að velta fyrir mér, að panta þetta frá bandaríkjunum.
Er einhver með prósentu tölu á toll fyrir framstuðara, spoler, bremsukitti og felgum? er ódýrara að kaupa þetta frá U.K. eða..
Ég var búinn að púsla saman ágætis pakka frá modbargains.com sem hljómaði uppá $2200 dollara og mig langaði svona að reyna finna út hvað þetta væri allur pakkinn með toll og öllu heimkomið :)
Takk takk.

PostPosted: Wed 14. May 2008 22:23
by jon mar
tollur er væntanlega 7.5%
Vörugjöld 15%
Vaskur 24.5%

PostPosted: Wed 14. May 2008 22:29
by saemi
Ekki gleyma að setja flutningskostnaðinn fyrir framan summuna áður en þú margfaldar.

PostPosted: Wed 14. May 2008 23:44
by azid
Það er semsagt á öllum auka eða varahlutum alltaf
tollur er væntanlega 7.5%
Vörugjöld 15%
Vaskur 24.5%
.....

Hvernig er það, bróðir minn rekur fyrirtæki sem ég vinn nú fyrir (Pípulagnir), er eithvað hægt að panta í gegnum það til að fá vaskinn endurgreiddan eða sleppa að greiða hann? einhver sagði það við mig, ætlaði bara að forvitnast hvernig það virkaði, hvort það væri hægt að kaupa eithvað svona í gegnum svona fyrirtæki, hvort það væru ekki bílaumboð, verkstæði o.s.fv.

saemi wrote:Ekki gleyma að setja flutningskostnaðinn fyrir framan summuna áður en þú margfaldar.

Er tollur, vörugjöld og vaskurinn á fluttningsgjaldi?

PostPosted: Thu 15. May 2008 00:36
by jon mar
Veit ekki hvernig er með svona fyrirtækisdót, en ég reikna með að það ætti að vera hægt á sama hátt og með aðrar vsk endurgreiðslur.

Tollar og önnur gjöld leggjast ofan á heildarupphæðina, sumsé kaupverð og flutning.

kaupverð + flutningur = x
x*7.5% * 15% * 24.5% = Lokaverð.
(x*1.075*1.15*1.245)

Allavega aldrei brugðist hjá mér hingað til.

PostPosted: Thu 15. May 2008 00:44
by gstuning

PostPosted: Thu 15. May 2008 02:03
by BirkirB
Felgur eru allavega svona:
verð vörunnar á vörureikningi x 1.075 + flutningskostnaður x 1.15 x 1.245

En framstuðari og spoiler ættu að vera í auka og boddýhlutatollaflokki en felgur og bremsur í varahlutaflokki? og tollur á auka og boddýhlutum er hærri en á varahlutum...

Ég mæli líka með þessu: http://tollur.is/displayer.asp?cat_id=704
Talar bara live við einhvern hjá tollinum...

Og af hverju er þetta frá gstuning ekki sticky?

PostPosted: Thu 15. May 2008 09:15
by arnibjorn
Jarðsprengja wrote:Felgur eru allavega svona:
verð vörunnar á vörureikningi x 1.075 + flutningskostnaður x 1.15 x 1.245

En framstuðari og spoiler ættu að vera í auka og boddýhlutatollaflokki en felgur og bremsur í varahlutaflokki? og tollur á auka og boddýhlutum er hærri en á varahlutum...

Ég mæli líka með þessu: http://tollur.is/displayer.asp?cat_id=704
Talar bara live við einhvern hjá tollinum...

Og af hverju er þetta frá gstuning ekki sticky?

Það er sticky :lol:

PostPosted: Thu 15. May 2008 09:17
by fart
azid wrote:Það er semsagt á öllum auka eða varahlutum alltaf
tollur er væntanlega 7.5%
Vörugjöld 15%
Vaskur 24.5%
.....

Hvernig er það, bróðir minn rekur fyrirtæki sem ég vinn nú fyrir (Pípulagnir), er eithvað hægt að panta í gegnum það til að fá vaskinn endurgreiddan eða sleppa að greiða hann? einhver sagði það við mig, ætlaði bara að forvitnast hvernig það virkaði, hvort það væri hægt að kaupa eithvað svona í gegnum svona fyrirtæki, hvort það væru ekki bílaumboð, verkstæði o.s.fv.
saemi wrote:Ekki gleyma að setja flutningskostnaðinn fyrir framan summuna áður en þú margfaldar.

Er tollur, vörugjöld og vaskurinn á fluttningsgjaldi?

Það verður áhugavert að sjá hvernig bróðir þinn réttlætir framstuðara í bókhaldinu hjá sér :D

PostPosted: Thu 15. May 2008 11:47
by Aron Fridrik
fart wrote:

klessti á eitthvað á vinubílnum sem er greinilega með aftermarket hluti frá bmw :lol: