Page 1 of 1

Prius ekki að meika það

PostPosted: Sun 11. May 2008 13:39
by freysi

PostPosted: Sun 11. May 2008 13:48
by KFC
Snild. :lol: :lol: :lol: :lol:

PostPosted: Sun 11. May 2008 13:51
by ömmudriver
Þetta var vitað mál af minni hálfu :)

En mikið er gaman að sjá metnaðinn hjá blaðamönnum, setja inn mynd af 3 línu en ekki 5 línu eins og talað er um í keppninni :lol:

PostPosted: Sun 11. May 2008 14:01
by HAMAR
Það var video af þessari tilraun á netinu fyrir einhverjum vikum síðan,
mjög gaman að horfa á það.
Meðan BMWinn keyrði á 160 km. hraða hélt Príusinn varla umferðar hraðanum.

PostPosted: Sun 11. May 2008 14:31
by Hlynzi
Príus er bara markaðssetning og ekkert annað.

Þessi bíll er svo langt frá því að vera umhverfisvænni en aðrir.
Hann hefur aukaþyngd á rafgeymum, hleður þá upp með vélarorku og fer að keyra á því svo.

Meikar ekki sens í mínum bókum.

PostPosted: Sun 11. May 2008 14:41
by JonHrafn
Prius er ekkert að meika það fyrr en það verður hægt að stinga honum í samband yfir nóttu til að hlaða geymana.

Seinast þegar ég vissi var það aukabúnaður upp á eina kúlu, takk fyrir takk.

PostPosted: Sun 11. May 2008 14:46
by HAMAR
Heyrst hefur að verksmiðjan í Kanada sem framleiðir rafgeymana fyrir Prius (og sennilega aðra líka)
sé eitt mesta umhverfisslys í sögu landsins.
Gríðarleg mengun í kringum fyrirtækið.

PostPosted: Sun 11. May 2008 15:13
by Lindemann
JonHrafn wrote:Prius er ekkert að meika það fyrr en það verður hægt að stinga honum í samband yfir nóttu til að hlaða geymana.

Seinast þegar ég vissi var það aukabúnaður upp á eina kúlu, takk fyrir takk.


það þýðir líka lítið að hlaða geymana, því hleðslan endist svo bara í besta falli örfáa km og þá tekur bensínmótorinn við.

PostPosted: Sun 11. May 2008 15:17
by freysi
Það voru nú líka miklir gallar í þeirri bifreið sem fyrst kom og margar útgáfur litu dagsins ljós áður en að sú bifreið sem við þekkjum núna kom á markaðinn.

Gefa þessu bara tíma

PostPosted: Sun 11. May 2008 15:50
by Kristjan
HAMAR wrote:Heyrst hefur að verksmiðjan í Kanada sem framleiðir rafgeymana fyrir Prius (og sennilega aðra líka)
sé eitt mesta umhverfisslys í sögu landsins.
Gríðarleg mengun í kringum fyrirtækið.


Það er nickel verksmiðja en þeir eru nú samt að skipta yfir í lithium.

PostPosted: Mon 12. May 2008 02:13
by Brútus

PostPosted: Mon 12. May 2008 02:44
by Stanky
Lindemann wrote:
JonHrafn wrote:Prius er ekkert að meika það fyrr en það verður hægt að stinga honum í samband yfir nóttu til að hlaða geymana.

Seinast þegar ég vissi var það aukabúnaður upp á eina kúlu, takk fyrir takk.


það þýðir líka lítið að hlaða geymana, því hleðslan endist svo bara í besta falli örfáa km og þá tekur bensínmótorinn við.


Hleður ekki bensínmótorinn rafgeymana? Svo þetta virkar alltaf á móti hvor öðru? Heyrði síðan líka að það ætti að búa til rafmagn þegar maður bremsaði á Prius (sel það ekki dýrara en ég keypti það).

Ágætis bílar, fínt fyrsta skref í átt að þessu blessaða "mengunarvandamáli og hitnun jarðar" ;)

PostPosted: Mon 12. May 2008 09:32
by gunnar
Hef aðeins verið í kringum tengiltvinnbílinn sem er hér fyrir norðan. Það er sem sagt Toyota Prius með öðrum geymum og er hægt að stingja honum í samband við rafmagn. Sú breyting kostaði handlegg en á víst að koma mjög vel út hérna í innanbæjarakstri.

Ég einmitt skrifaði ansi stóra ritgerð um umhverfisvænt eldsneyti í háskólanum og niðurstöðuna sem við fengum út úr þeirri rannsókn okkar var að tengiltvinn tæknin væri sjálfsagt næsta skrefið.