Page 1 of 1

Ráðleggingar í kaupum?

PostPosted: Fri 09. May 2008 15:28
by Láki
Blessaðir verið þið spjallmeðlimir, ég er að spá í kaupum á bíl, fyrsta bílnum mínum og þar sem frændi minn kom mér upp á BMW langar mig virkilega að fyrsti bílinn verði góður og þar kemur að ykkur.

Hvað er besti bílinn til þess að kaupa sér fyrst, hann frændi minn sem er mikill bílakall sagði til dæmis við mig að kaupa mér aldrei þrist vegna þess að þeir bila svo mikið og allt þar fram eftir götunni, en ég er ekki að kaupa það.

Þannig að ég spyr ykkur, hvað mynduð þið mæla með svona fyrst?

Með von um skjót svör, Láki.

PostPosted: Fri 09. May 2008 15:29
by Alpina
E39

Re: Ráðleggingar í kaupum?

PostPosted: Fri 09. May 2008 15:31
by Einarsss
Láki wrote:Blessaðir verið þið spjallmeðlimir, ég er að spá í kaupum á bíl, fyrsta bílnum mínum og þar sem frændi minn kom mér upp á BMW langar mig virkilega að fyrsti bílinn verði góður og þar kemur að ykkur.

Hvað er besti bílinn til þess að kaupa sér fyrst, hann frændi minn sem er mikill bílakall sagði til dæmis við mig að kaupa mér aldrei þrist vegna þess að þeir bila svo mikið og allt þar fram eftir götunni, en ég er ekki að kaupa það.

Þannig að ég spyr ykkur, hvað mynduð þið mæla með svona fyrst?

Með von um skjót svör, Láki.



altaf gaman að svona kommentum :lol:

Held að allir bílar geti bilað mikið ef fyrri eigendur hafi ekki hugsað vel um þá

PostPosted: Fri 09. May 2008 15:32
by Axel Jóhann
Fáðu þér flottann E39 5 línu eða heilann E34 5 línu.

PostPosted: Fri 09. May 2008 15:35
by totihs

PostPosted: Fri 09. May 2008 15:47
by FinnurKarls
ég segi e46 lítið ekinn,, top bílar,, félagi minn fékk sér e39 um daginn (reyndar keyrður yfir 200þús) en hann er í endalausum vandamálum
ps. fyrri eigandi hugsaði mjög illa um hann

PostPosted: Fri 09. May 2008 15:58
by íbbi_
Alpina wrote:E39


x2

E39. bara frábær ökutæki
s.s 5 línan frá 96-03

PostPosted: Fri 09. May 2008 16:08
by Alpina
íbbi_ wrote:
Alpina wrote:E39


x2

E39. bara frábær ökutæki
s.s 5 línan frá 96-03


BESTU KAUPIN

PostPosted: Fri 09. May 2008 16:25
by Djofullinn
E39 facelift 540 m-tech 8)


Annars held ég þristarnir bili svona einna minnst frekar en öfugt.
E46 væri sniðugur, 320d þá helst

PostPosted: Fri 09. May 2008 16:25
by Kull
Ég myndi athuga þennan hérna: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=29072

Ég þekki ekkert til bíls né eiganda, bara flottur bíll á góðu verði að mínu mati.

PostPosted: Fri 09. May 2008 16:26
by arnibjorn
e30 335, bilar aldrei!

.

PostPosted: Fri 09. May 2008 16:26
by Wolf
Heitir frændi þinn nokkuð Einar :lol:

Annars held ég að ég verði að benda þér á þennan sem bestu fyrstu E39 kaupin,,, allt fyrir peninginn :!: :wink:


http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=29072


Ó sé að Kull var 1 mín á undan mér,,, góður 8)

PostPosted: Fri 09. May 2008 16:51
by Mánisnær
Ég keypti mér facelift e39 525 sem fyrsta bíl og sé ekki eftir því.

Nema, ég mæli frekar með 3.0 diesel.

Þokkalegur kraftur á mót lítilli eyðslu = bara hamingja.

Þetta eru rosalega solid kerrur

PostPosted: Fri 09. May 2008 18:21
by oddur11
eg held að þa skipti bara ekki neinu máli hvernig bíl marr fær ser ef þa er verið að hugsa um bilunartiðni... eins og er buið að vera að segja þa fer þa bara eftir hversu vel fyrrverendu eigendurnir hugsuðu um bílinn :wink:

(er sjalfur búinn að brenna mig á þessu)