bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Ekki minn dagur ! hitamælir
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=29292
Page 1 of 1

Author:  hemmih [ Tue 06. May 2008 10:30 ]
Post subject:  Ekki minn dagur ! hitamælir

Shi, byrjaði á því að fara í próf og skeit uppá mig! :x
Svo var ég að keyra heim úr skólanum og bílinn er semí kaldur og síðan ríkur hitamælirinn bara í botn!
Ég var akkurat við hliðiná Grillturninum og lagði þar og drap á bílnum. Ég beið í smá stund og ætlaði svo að setja hann í gang og aftur ríkur hitamælrinn bara upp, ég villdi ekki keyra á þessu þannig skildi bara bílinn eftir og röllti heim.

Vitið þið e-ð hvað þetta getur verið ?
Þetta er BMW 735 e38
Árgerð 1999 ekinn 132000

Author:  Eggert [ Tue 06. May 2008 10:35 ]
Post subject: 

Gæti verið loft í kælikerfinu? Er viftukúplingin að gera sitt?

Byrja á þessu segi ég.

Author:  hemmih [ Tue 06. May 2008 10:48 ]
Post subject: 

Ætla bara láta fara með hann uppí TB og láta þá fara yfir hann allan og tjékka hvað þetta er !

Author:  gstuning [ Tue 06. May 2008 13:31 ]
Post subject: 

ætli vírinn sé bara ekki bilaður.

Author:  hemmih [ Tue 06. May 2008 16:39 ]
Post subject: 

Ég loftæmdi hann og fyllti vatnskassan og svona .. og ekkert skéði, hann var búinn að standa í 6 klukkutíma og þegar ég svissaði á hann hraukk mælirinn strax upp, ég ákvað að hringja í B&L og þeir sögðu að bílinn gæti ekki hitnað svona og ef sögðu mér að það væri skynjari hjá forðabúrinu sem þyrfti að smyrja reglulega og þrífa og þetta væri bara hann, og þeir sögðu að það væri í góðu lagi að keyra hann aðeins .. ég ákvað að próf keyra hann uppí B&L og á miðri miklubrautinni hrökk mælirinn á sinn stað aftur, ég talaði við þá í B&L og þeir sögðu bara að þetta væri skyjarinn.

Þannig þetta er ekki alvarlegra.
Þeir sögðu að ef talvan væri ekkert búin að segja neitt þá væri vélin ekkert að hita sig. Síðan keyrði ég í góðan hálftíma eftir þetta og mælirinn var góður eftir það.
En þakka ykkur fyrir ábendingar :wink:

Author:  Eggert [ Tue 06. May 2008 17:35 ]
Post subject: 

Gott að allt er í góðu. Hefði verið fúlt að grilla heddin...

Author:  hemmih [ Tue 06. May 2008 18:13 ]
Post subject: 

já rétt, það er allavega hægt að grilla e-ð skemmtilegra en það !

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/