bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

LPG.... CNG CPG
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=29180
Page 1 of 2

Author:  saemi [ Thu 01. May 2008 22:39 ]
Post subject:  LPG.... CNG CPG

Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér varðandi Metan sem eldsneyti.

Þekkir einhver hér, eða veit um einhvern hér sem veit hvernig svona virkar.

Í Evrópu er mikið notað LPG, eða Liquid Petroleum Gas. Við erum ekki með þannig lagað á bíla okkar hér á Íslandi. En við höfum CNG, Compressed Natural Gas, eða Metan.

Eru þessi kerfi eins, er hægt að nota petroleum kerfi fyrir jarðgas?

Getur maður keypt LPG bíl og notað á hann Metan?

Þetta er áhugaverð pæling, maður fær afslátt á innflutningi bíls sem er með svona kerfi og allez :wink:

Hér er áhugaverður tengill:

http://cgi.ebay.de/Erdgas-BMW-735-i-TUV ... dZViewItem

Ef maður skellti sér á svona fyrir 1500 EUR, flytur þetta heim og fær afslátt af innflutningnum gæti maður verið að horfa á svona 300 kall fyrir bílinn heim kominn!

Það væri gaman að fá að vita hvað menn sem VITA EITTHVAÐ um þetta hafa að segja. Hinum sem vita lítið en vilja endilega skrifa eitthvað er velkomið að láta ljós sitt skína líka :lol:

Author:  gstuning [ Thu 01. May 2008 22:50 ]
Post subject: 

LPG and SNG

LPG has a higher calorific value (94 MJ/m³ equivalent to 26.1kWh/m³) than natural gas (methane) (38 MJ/m³ equivalent to 10.6kWh/m³), which means that LPG can not simply be substituted for natural gas. In order to allow the use of the same burner controls and to provide for similar combustion characteristics, LPG can be mixed with air to produce a synthetic natural gas (SNG) that can be easily substituted. LPG/air mixing ratios average 60/40, though this is widely variable based on the gases making up the LPG. The method for determining the mixing ratios is by calculating the Wobbe index of the mix. Gases having the same Wobbe index are held to be interchangeable.

LPG-based SNG is used in emergency backup systems for many public, industrial, and military installations, and many utilities use LPG peak shaving plants in times of high demand to make up shortages in natural gas supplied to their distributions systems. LPG-SNG installations are also used during initial gas system introductions, when the distribution infrastructure is in place before gas supplies can be connected. Developing markets in India and China (among others) use LPG-SNG systems to build up customer bases prior to expanding existing natural gas systems...

http://en.wikipedia.org/wiki/Liquified_petroleum_gas

Semsagt
þú þyrftir 2.5 sinnum meira metan til að gera svipað og lpg.
Það þýðir að þú þyrftir að skipta um spíssanna sem gefa af sér gasið.

Author:  saemi [ Thu 01. May 2008 23:14 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Semsagt
þú þyrftir 2.5 sinnum meira metan til að gera svipað og lpg.
Það þýðir að þú þyrftir að skipta um spíssanna sem gefa af sér gasið.


Ég var kannski að meina smá "hands-on" þekking á þessu, ekki bara google :)

Ég er ekki til í að kaupa mér LPG kit á þessum forsendum einum saman

En ágætis innlegg samt sem áður

Author:  gstuning [ Thu 01. May 2008 23:17 ]
Post subject: 

Þetta var ekki beint google.
heldur wikipedia.

Þetta segir bara að orkuinnihaldið í metan er 0.45% af lpg.
það þýðir hreinlega að þú verður að dæla meira af því inn til að
runna ekki lean og eða vera afl laus.

Alveg sama saga og að runna E85 "bensín"
það er minni orkuinnihald í ethanol heldur enn bensín og því þarf meira af því.

Author:  Steini B [ Thu 01. May 2008 23:29 ]
Post subject: 

Ég sá einmitt í gær venjulegann fólksbíl (man ekki tegundina) vera að taka metan, fannst það ansi merkilegt....

Author:  Lindemann [ Thu 01. May 2008 23:32 ]
Post subject: 

nú hef ég ekkert kynnt mér LPG, en er þetta ekki bara metan í vökvaformi? þ.e. miklu meira þjappað saman?

ég hélt að flestir notuðu venjulegt metan. Benz framleiða t.d. bíla sem ganga á metani, allavega stærri bíla. Allavega 3 eða 4 Benz vörubílar sem ganga á metani, við höfum verið að þjónusta einn hjá Ræsi og þetta er miklu líkara bensín mótor en nokkurn tíman dísel, enda vinnslan eftir því.

Það var einum bíl breytt í borgarholtsskóla fyrir áramót, ég var ekki í þeim hóp en mér skildist að þetta væri ekkert rosalega flókið. Mesta málið var að koma fyrir kútunum í skottinu, svo þurfti að leggja lagnir frammí, bora í soggreinina fyrir auka spíssum og svo þurfti að koma fyrir tölvu sem fylgdi með kitinu sem var keypt.
Það eru allavega tveir kennarar þarna sem hafa verið að kynna sér þetta töluvert og annar þeirra allavega farið á námskeið úti, þú gætir prófað að hringja þangað og athuga hvort þú fáir ekki einhverjar upplýsingar hjá þeim.

Author:  gstuning [ Thu 01. May 2008 23:41 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
nú hef ég ekkert kynnt mér LPG, en er þetta ekki bara metan í vökvaformi? þ.e. miklu meira þjappað saman?

ég hélt að flestir notuðu venjulegt metan. Benz framleiða t.d. bíla sem ganga á metani, allavega stærri bíla. Allavega 3 eða 4 Benz vörubílar sem ganga á metani, við höfum verið að þjónusta einn hjá Ræsi og þetta er miklu líkara bensín mótor en nokkurn tíman dísel, enda vinnslan eftir því.

Það var einum bíl breytt í borgarholtsskóla fyrir áramót, ég var ekki í þeim hóp en mér skildist að þetta væri ekkert rosalega flókið. Mesta málið var að koma fyrir kútunum í skottinu, svo þurfti að leggja lagnir frammí, bora í soggreinina fyrir auka spíssum og svo þurfti að koma fyrir tölvu sem fylgdi með kitinu sem var keypt.
Það eru allavega tveir kennarar þarna sem hafa verið að kynna sér þetta töluvert og annar þeirra allavega farið á námskeið úti, þú gætir prófað að hringja þangað og athuga hvort þú fáir ekki einhverjar upplýsingar hjá þeim.


Ef þú lest aftur það sem ég quotaði að þá er þetta klárlega ekki það sama, þar sem að orku innihaldið er ekki einu sinni nálægt.

Author:  Stebbtronic [ Thu 01. May 2008 23:57 ]
Post subject: 

Það var ágætis grein um þetta í síðustu útgáfu af Skrúfunni(blað útskriftarnema í Vélskólanum) þar sem Íslenska gámafélagið og vélamiðstöðin breyta Dodge pickup. Þar nota þeir allan búnað frá þessu fyrirtæki :arrow: http://www.ecofuel.com/

Author:  Axel Jóhann [ Fri 02. May 2008 03:11 ]
Post subject: 

Stebbtronic wrote:
Það var ágætis grein um þetta í síðustu útgáfu af Skrúfunni(blað útskriftarnema í Vélskólanum) þar sem Íslenska gámafélagið og vélamiðstöðin breyta Dodge pickup. Þar nota þeir allan búnað frá þessu fyrirtæki :arrow: http://www.ecofuel.com/



Já, las einmitt þessa grein og ég væri alveg til í að kynna mér þetta betur, tala nú ekki um ef maður fengi bíl ódýrari heim með svona systemi.





E34 M5 væri svalur á Metan gasi. 8)

Author:  JOGA [ Fri 02. May 2008 12:48 ]
Post subject: 

Þetta er mjög áhugavert.
En er einhver hér sem liggur á nákvæmum upplýsingum um hverning maður býr til Ethanol Fuel? Veit að sykurinn er unninn úr og svo er þetta "fermented" skv. ákveðnum leiðum og svo unnið úr því ethanol en langar í nákvæmari lýsingar.

Pabbi gamli er með skemmtilega hugmynd í kollinum og mig langar að sjá hvað ég get fundið handa honum.

Author:  bebecar [ Fri 02. May 2008 13:56 ]
Post subject: 

Ég hef allavega keyrt Metan bíl og fyllt á hann líka.

Hekla selur nýja svona bíla (ekki marga af þeim) og ég myndi halda aðalmálið væri að fá bíla utan frá sem tæki við áfyllingarbúnaðinum. Það væri því kannski ráð að senda póst á Sorpu og spyrja hvort þeir hafi einhverjar tæknilegar upplýsingar.

Hands on get ég sagt þér að á 100 hestafla bíl finnst lítill sem engin munur í afli þegar keyrt er á metaninu en mig minnir að einn rúmmetri af metani sé álíka og 1,3 lítrar af bensíni (ef ég man þetta rétt en þetta má eflaust sjá á heimsíðu Sorpu eða Heklu).

Bíllinn getur keyrt bæði á bensíni og Metani og það er fyrirtaks fyrirkomulag. Hann skiptir svo sjálfur yfir á Bensín þegar metanið er búið.

Ég hef verið að velta þessu fyrir mér líka, svona upp á snatt og þannig leiðindi að gera og strandaði eiginlega á sama stað og þú.

Ég held hinsvegar að þú verðir að finna CNG bíla í þetta og svo tékka á hvort áfyllingargatið sé eins og þarf fyrir áfyllingarbúnaðinn heima.

En já í praktík þá er þetta bara afar hagkvæmur og einfaldur kostur. Ekkert sem þú finnur mun á en auðvitað ennþá bara ein áfyllginarstöð en það stendur víst til bóta. Það er líka aldrei röð á dæluna og eldsneytið er innlent og alltaf á sama verði (86 kall sirka ef ég man rétt) 8)

Author:  ValliFudd [ Fri 02. May 2008 15:37 ]
Post subject: 

Mér finnst samt ansi spes að það hafi kviknað í allavega 2 af metanbílum Póstsins í akstri..
Konan mín var einmitt að vinna hjá Póstinum þegar annar þeirra brann, hún neitaði að keyra þetta drasl, sem betur fer því daginn eftir kviknaði í honum á ferð.. :shock:

Author:  Bjarkih [ Fri 02. May 2008 16:09 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
mig minnir að einn rúmmetri af metani sé álíka og 1,3 lítrar af bensíni 4


Þegar búið er að þjappa metani hvað er þá 1 rúmmeter margir lítrar?

Author:  gstuning [ Fri 02. May 2008 16:15 ]
Post subject: 

Bjarkih wrote:
bebecar wrote:
mig minnir að einn rúmmetri af metani sé álíka og 1,3 lítrar af bensíni 4


Þegar búið er að þjappa metani hvað er þá 1 rúmmeter margir lítrar?


Fer eftir hvað er mikið þjappað ;)

Author:  Stebbtronic [ Fri 02. May 2008 17:53 ]
Post subject: 

Í greininni sem að ég vísa í hérna ofar í þræðinum fullyrða þeir að 1Nm3 af hreinsuðu metan = 1,12L af 95oct en þeir tala ekki um þrýstinginn á metaninu, en þar er eflaust miðað við einhvern staðlaðan þrýsting sem að metanið er afgreitt við á stöðvunum. En metanið við þennan þrýsting hefur lægra varmagildi heldur en 95oct, eldsneyti ca 3-7% lægra svo að það þarf meira af því en bensíni til að vélin verði ekki aflminni.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/