http://www.tires.com eða
http://www.discounttire.com
(Sama síðan)
Ég hef keypt dekk í gegnum þessa og látið shopusa senda það heim. Hefur virkað fínt að gera það, tekur reyndar meira en mánuð en ég hef fengið dekk fyrir sirka helming af því sem þau myndu kosta hér heima.
Ég hef bæði pantað góð "performance" dekk og fáránlegar stæðir sem ekki fást hérna heima (t.d. 205/75 14)
Ég hef ekki pantað felgur en þeir eru með ágætis úrval.
Ég hef farið inn í tvær svona verslanir úti í USA og ætlaði að kaupa mér felgur en þær sem ég ætlaði að fá voru ekki til á lager og átti að taka nokkra daga að skaffa þær, ég hafði því miður ekki tíma fyrir það þá.
Á báðum stöðum voru þessar verslanir mjög snirtilegar og þjónustan var afbragð.
Allavega ég hef ekkert nema gott að segja um þessar verslanir.