Angelic0- wrote:
Svona 1800cc bíll ætti aldrei að kosta meira en 700þ.... ekkert LSD og EKKERT GAMAN

Ég er svo sem sammála því að umræddur bíll sé vel "over-priced". Hins vegar finnst mér menn aðeins mega róa sig niður varðandi verð á Z3-bifreiðum.
"ALDREI meira en 700 þús" segirðu. Við verðum að athuga að þrátt fyrir að slagrýmið sé einungis 1800cc þá eru þessir bílar ekki að keppa á sama markaði og 318i.
Blæjubílar höfða til sérstaks kaupendahóps.
Við höfum séð e30 325i fara á háum verðum undanfarin ár. Þar er um ákveðið "cult" að ræða. Sama á við um þá sem velja sér blæjubíla.
Einstaklingur sem hyggst fá sér blæjubíl er helvíti fljótur að klífa upp stigann í verðum ef hann skoðar hvað er í boði.
Gamlar (´91) Mazda Miata-bifreiðar eru orðnar "cult" líkt og e30 325i og því fulldýrar vegna þess, miðað við að þær eru líkt og e30 325 bifreiðarnar um 20 ára gamlar.
Ef hámarksverð á Z3 með 1800 vél er 700 þúsund, þá gefurðu í skyn að venjuleg eintök séu almennt að fara á lægri verðum. Ég held ég geti fullyrt að það sé ekki í samræmi við raunveruleikann.
Bottom line: Umræddur bíll er allt of dýr, en það þýðir ekki að menn eigi að fullyrða að allar 1800cc Z3-bifreiðar séu komnar á einhverja brunaútsölu.
p.s. á sjálfur eitt stykki Z3

_________________

Núna: Z3.
Áður: E21, E30, E36, E38.