Það er/var til 300E 4matic með LOTEC turbo 87/88/89 model man ekki
allveg hvaða árgerð,, Prófaði þennann bíl,, var virkilega að spá í honum
átti þá E-34 2.5L m/turbo-interc. og vægt til orða tekið þá virkaði Mercedes bíllinn töluvert betur,, Stærsti lösturinn á þeim bíl var að hann var 5 gíra beinsk,, minn var sjsk. Þessi Mercedes var á 16" LORINSER.
Þessi M1 er alveg ótrúlegur.´Hann stendur nýjum ofurbílum ekkert að baki í útliti eða afli. Hann er pínku skrítinn að innan, but who cares.
Þarna sér maður líka hve ótrúleg þessi hönnun er. Ég var rétt í þessu að skipta út aðaldraumabílnum mínum úr 959 í M1 Það eru allavega ódýrari felgurnar og dekkin á M1 bílinn
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
M3 bílinn er sjúkur. Fallegasti 3 series sem ég hef séð En M1, aldrei séð svona bíl áður - vissi ekki einu sinni að þetta væri til (minnir á lamborghini Countach)
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
Eins og búið er að segja var hann teiknaður af Giugiaro. Lamborghini sá svo um að framleiða hlutina, en Baur (sem hafa verið í blæju og targa- top framleiðslu) setti svo dótið saman í þýskalandi.
Það gekk víst nokkuð á þegar þýsk nákvæmni átti að setja saman Ítalska framleiðslu ! Hurð á einum bíl passar víst ekki á næsta osfrv.
Motorsport deildin sá svo um "quality control" og skrifaði bílana út.
Alls voru ekki framleiddir nema 401 bílar fyrir götuna, og í heild 450 bílar (mismunurinn fyrir BMW racing deildina).
Svo eins gott að vera fljótur að ná sér í einn! Þeir eru merkilega ódýrir fyrir svona sjaldgæfa bíla, og eiga efalaust eftir að margfaldast í verði.