Page 1 of 3

Hvað segja menn um 540 ?

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 00:45
by 730
Sælir.

Ég er mikið að spá í því að færa mig yfir á BMW og ég er frekar heitur fyrir 540.
Hvað segja menn almennt um þessa bíla? eru þeir peningana virði ?

Þið megið endilega benda mér á eihverja sem eru til sölu og eru í topp standi eða einhverja sambærilega BMW ef þið nennið :oops:

Ein svona uppá grínið hvað eru þessir bílar að eyða innanbæjar(er eiginlega sama um það, bara forvitni:) )


Maggi

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 02:45
by Danni
Þeir eru peninganna virði. Búinn að eiga tvo, ætti að vita það :lol:

Varðandi eyðslu þá er minn að eyða svona 12-14 lítrum innanbæjar en getur farið mikið ofar, það fer bara eftir því hvernig bílar eru í kring :mrgreen:

Hef náð 540 til að sýna í tölvunni 8.5 í meðal eyðslu á langkeyrslu en ég hef aldrei reiknað það til að reyna almennilega á það, en ég veit að ég fyllti gamla á Borgarnesi og keyrði svo til Akureyrar og það fór ekki alveg hálfur tankur þá leið, enda krúsið stillt á mest 110 í það skiptið og sjaldan gefið eitthvað inn.

BMW 540 er að mínu mati það besta sem að maður getur fengið ef maður vill flottan og góðan krúser með mjög gott afl fyrir enga ofsa upphæð.

Ég er allavega í skýjunum með minn og hann er ekki til sölu :D

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 06:44
by Alpina
Danni wrote:Þeir eru peninganna virði. Búinn að eiga tvo, ætti að vita það :lol:

Varðandi eyðslu þá er minn að eyða svona 12-14 lítrum innanbæjar en getur farið mikið ofar, það fer bara eftir því hvernig bílar eru í kring :mrgreen:



BMW 540 er að mínu mati það besta sem að maður getur fengið ef maður vill flottan og góðan krúser með mjög gott afl fyrir enga ofsa upphæð.

Ég er allavega í skýjunum með minn:D


Danni heggur eins nærri sannleikanum og raun er..
MAGNAÐIR bílar

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 11:53
by íbbi_
mínir uppáhalds bimmar.. færð virkilega mikið fyrir lítinn pening, frábært combo afls lúxus og góðrar fjöðrunar, þeir 540 sem ég hef verið á eru að eyða frá 14-18

eini gallinn við 540 sem eg hef tekið eftir er að að bilanatíðnin er alveg yfir meðallagi, ég hef átt 1 svona sjálfur og haft þónokkra 540 bíla til daglegrar notkunar, ásamt flestum hinum týpunum af E39 og þeir hafa verið óttalegar bilanatíkur, en engu síður eitt bestu akstursbílar og ein bestainnréting á markaðinum

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 15:44
by Hannsi
Stæðsti gallin við þá að mínu mati er þessi bévítans vatnskældi generator :x

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 15:51
by Angelic0-
Hannsi wrote:Stæðsti gallin við þá að mínu mati er þessi bévítans vatnskældi generator :x


Ég tek undir þetta :!:

Algjört bögg ef að þeir fara... og þetta virðist vera TREND í þessum bílum :!:

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 16:00
by Kristjan
Geggjaðir bílar, en það er einn galli við þá. Þegar maður hefur prófað B10 4.6 þá er 4.4 hálf loppin mótor eitthvað. :lol:

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 17:28
by Eggert
Hannsi wrote:Stæðsti gallin við þá að mínu mati er þessi bévítans vatnskældi generator :x


Hvað kallið þið generator?

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 17:28
by Arnarf
Ekker smá gaman að keyra þetta

Ég geri að sjálfssögðu ráð fyrir að þú sért að tala um e34 þar sem þú tekur það ekki fram

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 17:49
by Alpina
íbbi_ wrote:mínir uppáhalds bimmar.. færð virkilega mikið fyrir lítinn pening, frábært combo afls lúxus og góðrar fjöðrunar, þeir 540 sem ég hef verið á eru að eyða frá 14-18

eini gallinn við 540 sem eg hef tekið eftir er að að bilanatíðnin er alveg yfir meðallagi, ég hef átt 1 svona sjálfur og haft þónokkra 540 bíla til daglegrar notkunar, ásamt flestum hinum týpunum af E39 og þeir hafa verið óttalegar bilanatíkur, en engu síður eitt bestu akstursbílar og ein bestainnréting á markaðinum


:shock: hvernig þá ??

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 19:08
by skaripuki
bilanatíkur :shock: :shock: :shock: hef ekki orðið var við það í bílum sem ég þekki til

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 19:10
by Angelic0-
Eggert wrote:
Hannsi wrote:Stæðsti gallin við þá að mínu mati er þessi bévítans vatnskældi generator :x


Hvað kallið þið generator?


Það sem að aðrir... sem ekki betur vita.... kalla Alternator...

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 19:16
by Danni
540 hjá mér hafa hingað til verið áreiðanlegir. Ég keyrði TZ-278 frá 186þús km í rúmlega 200þús og þá kom upp ein stórvægileg bilun svo ég gat ekki notað hann, alternatorinn (generator) fór og það var bara VESEN að skipta um hann! Meina á hversu mörgum bílum þarf maður að flæða allt vatnskerfið til að skipta um alternator? Tala nú ekki um að þessi stykki kosta alveg óhemju mikinn pening.

En það var bara gaman, var rétt rúm vika sem ég gat ekki keyrt bílinn (Finna varahluti á hagstæðum stað > bíða eftir að hann kom > 2 kvöld í að skipta aleinn því að ég gleymdi að kaupa kælivökva :oops: ) En það minnti mig bara á hvað þessir bílar eru alveg ÆÐISLEGIR þegar ég gat loksins keyrt aftur :D

Einn helsti galli sem mér finnst við þessa bíla er að þeir voru aldrei boðnir með læstu drifi, frekar en aðrir non-M BMW-ar frá E38 og upp.

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 19:41
by finnbogi
Arnarf wrote:Ekker smá gaman að keyra þetta

Ég geri að sjálfssögðu ráð fyrir að þú sért að tala um e34 þar sem þú tekur það ekki fram



ég giska á E39


því það er afar fáir E34 til og engir á sölu ;)


svo er líka svo gott verð á E39 m.v. E34

PostPosted: Fri 18. Apr 2008 21:11
by @li e30
Angelic0- wrote:
Eggert wrote:
Hannsi wrote:Stæðsti gallin við þá að mínu mati er þessi bévítans vatnskældi generator :x


Hvað kallið þið generator?


Það sem að aðrir... sem ekki betur vita.... kalla Alternator...


Veist þú muninn á Alternator og Generator .. ? þetta er ekki alveg sami hluturinn... annars hef ég ekki vit á því hvort það er alternator eða generator í þessum bíl .. en normið er að það sé alternator í bílum.