Page 1 of 4
Ert þú með lykteyði/ilmgaur í bílnum þínum?

Posted:
Sat 12. Apr 2008 14:31
by zazou
Hverjir nota svona dót sem hangir í baksýnisspeglinum?
Sjálfur vil ég meina að ef þörf er á þessu, þá þarf frekar að þrífa.

Posted:
Sat 12. Apr 2008 14:33
by Einarsss
neibb og ég fíla e30 lyktina


Posted:
Sat 12. Apr 2008 14:37
by ömmudriver
Ég þarf ekki svona í blæjunni og svo er bara góð lykt í sjöunni


Posted:
Sat 12. Apr 2008 14:38
by IceDev
ÉG HATA DANGLANDI DRASL Í BÍLUM!!!!
AAAAAAAAAAAAAAAAA:.....ÉG VERÐ SVO REIÐUR ÞEGAR AÐ ÉG SÉ ÞETTA!
Reyndar er ágætt þegar að það eru tengingar þarna, þá veit ég að ég ætla ekki að eyða tíma mínum í að ræða við þann kauða

Posted:
Sat 12. Apr 2008 14:50
by íbbi_
ég þoli ekki drasl hangandi í bílnum

Posted:
Sat 12. Apr 2008 14:55
by ValliFudd
Ég hakaði í "Nei" þar sem ég hef ekki lagt það í vana að hafa drasl hangandi í speglinum EN hins vegar er ástandið svipað á Yarisnum og á þessarri mynd hér að ofan


Posted:
Sat 12. Apr 2008 15:02
by zazou
ValliFudd wrote:Ég hakaði í "Nei" þar sem ég hef ekki lagt það í vana að hafa drasl hangandi í speglinum EN hins vegar er ástandið svipað á Yarisnum og á þessarri mynd hér að ofan

Keyptur notaður? Konubíllinn etv?
Sjálfum er mér sama um vísitölubílana sem ég á, veiti þeim það litla athygli að ég get í raun ekki svarað hvort svona hangi þar eður ei. En sammála E30 manninum, ég fíla bara svo vel Jaguar leðurlyktina - allt annað væri bara lögreglumál.

Posted:
Sat 12. Apr 2008 15:18
by BirkirB
Ég er ekki með hangandi drasl heldur ríf ég hengidraslið af tásunum og treð þeim í miðstöðina. en það er samt bara svo það komi einhver lykt í bílinn, annars finnst mér útsýnið versna ef það hangir eitthvað á speglinum...
En eitt sem ég var að pæla...Í mínum e36 kemur oft svona "bmwlykt" eins konar áreynslu-plast-hita-ilm-góðlykt....og það var alveg eins lykt í öðrum e36 sem ég var mikið inní...og þessi lykt yfirgnæfir oft tásulyktina...
Kannast einhver annar við svona??

Posted:
Sat 12. Apr 2008 15:27
by Steini B
Ég er nú vanalega ekki með svona...
En það var svona lyktartá í bílnum mínum þegar ég fékk hann og er þar enn....


Posted:
Sat 12. Apr 2008 16:10
by bjahja
ég fæ alveg

þegar ég fer í bíl með yfirþyrmandi "tásulykt"

Posted:
Sat 12. Apr 2008 16:12
by IngóJP
Fátt sem ég þoli jafn illa og tásur og drasl hangandi í speglum..

Posted:
Sat 12. Apr 2008 16:23
by Benzari
Jarðsprengja wrote:Ég er ekki með hangandi drasl heldur ríf ég hengidraslið af tásunum og treð þeim í miðstöðina. en það er samt bara svo það komi einhver lykt í bílinn, annars finnst mér útsýnið versna ef það hangir eitthvað á speglinum...
En eitt sem ég var að pæla...Í mínum e36 kemur oft svona "bmwlykt" eins konar áreynslu-plast-hita-ilm-góðlykt....og það var alveg eins lykt í öðrum e36 sem ég var mikið inní...og þessi lykt yfirgnæfir oft tásulyktina...
Kannast einhver annar við svona??
Einhver "hnetan" að grilla kúplinguna.


Posted:
Sat 12. Apr 2008 16:24
by Kwóti
ef það er ekki góð lykt í bílnum, þeas. ekki skítugur bara svona frá framleiðanda eða fyrri eigendum finnst mér það alveg í lagi.
er sterklega að íhuga að fá mér eitthvað svona shit í vw

Posted:
Sat 12. Apr 2008 16:28
by Gunni
bjahja wrote:ég fæ alveg

þegar ég fer í bíl með yfirþyrmandi "tásulykt"
Nákvæmlega, þessi "táfýla" er ÓGEÐSLEGA vond


Posted:
Sat 12. Apr 2008 16:33
by Angelic0-
Hvítar tásur.... svona 6 stykki... þá er ég góður...
GÆI á samt einkaréttinn á þessari hugmynd
fyrst voru það stýrin... sem að maður hengdi í miðstöðina... en svo þetta
