bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
besti bíllinn/bimminn sem þú hefur átt? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=28540 |
Page 1 of 6 |
Author: | íbbi_ [ Thu 03. Apr 2008 19:45 ] |
Post subject: | besti bíllinn/bimminn sem þú hefur átt? |
einn sona þráður uppá gamnið, það eru nú margir hérna sem hafa átt ansi áhugaverða bíla, og ekki færri sem eiga ansi áhugaverða bíla. mig leikur dáldil forvitni á að vita hvaða bílar það eru sem lifa hvað best í minninguni, þetta er ekki spurning um hvað sé dýrasti bímminn sem þið hafið átt, eða flottasti bíllinn, heldur bara hvaða bíll þið haldið að þið hafið verið ánægðastir með, verður maður ekki að starta sjálfur í eigin þræði.. sá bíll sem mér hefur þótt bestur af því sem ég hef átt er 2002 540mtech bíllinn sem ég átti í haust/vetur, ég veit ekki hvað það var sem gerði mig sona sáttann við "gamlann 540 bíl" en það var bara allt svo nákvæmlega eins og það átti að vera.. ég og annar meðlimur hérna sem átti 540mtech vorum einmitt að ræða þetta um daginn og vorum báðir ekkert smá sáttir við þessa bíla.. eina sem hefði mátt vera betra var bilanatíðnin... sem var umtalsverð, eins og reyndar flestum alvöru E39 og E38 sem ég hef komið nálægt ![]() sona sá bíll sem kemst svo hvað næst þessu er C32 amg 02, bara vanmetnir bílar finnst mér, fyrir mér var þetta hvað næst því að keyra benz sem hegðaði sér eins og bmw.. og alveg feiki vinsla.. gaf facelift E39 m5 sem ég var að leika við ekkert eftir á beinu köflunum, mesta surprice-ið hlýtur samt að vera datsunin í undirskriftini hjá mér.. prufið sona bíl, beinskiptann ........................................................................................................... bíð spentur eftir svörum frá sumra meðlimanna hérna ![]() |
Author: | ömmudriver [ Thu 03. Apr 2008 19:52 ] |
Post subject: | |
Úfffff ![]() Skemmtilegasti bíllinn > JS-554(E30 318i '88 m. M40) vegna þess að það var skítlétt að henda honum á hliðina þótt maður þurfti að hafa fyrir því, skítódýrt viðhald og engin eyðsla bara notkun. Þægilegasti bíllinn> TB-590(E46 318i '00) Get ekki útskýrt af hverju en hann var bara eitthvað svo kósý ![]() Og svo sjöan sem er bara ongoing love/hate realationship ![]() |
Author: | Einarsss [ Thu 03. Apr 2008 20:02 ] |
Post subject: | |
e39 m5 ... hefur allt ... power og þægindi ![]() |
Author: | bímer330ix [ Thu 03. Apr 2008 20:07 ] |
Post subject: | |
verð að segja að 545 bíllinn minn er sá allra besti sem ég hef átt bara eðall að keyra og eiga. og hingað til hef ég verið blessunarlega laus við viðhald 7-9-13. Nr2 330 ix e46 bíllinn minn var líka sweet ride Fyrir utan þetta þá hef ég átt helling af misgóðum vögnum frá skoda til mercedes b |
Author: | BMW_Owner [ Thu 03. Apr 2008 20:10 ] |
Post subject: | |
bmw 316 e-36 fyrsti bílinn ýkt eitthvað bara "gott í honum" bmw 357 e-36 geðveikur !!!! bmw 740 e-38 kosý ræd frá helvíti bmw m5 e-34 reiz tæki reiz tæki reiz tæki og síðan reiz tæki ![]() |
Author: | fart [ Thu 03. Apr 2008 20:13 ] |
Post subject: | |
Renault Espace IV 3.0dci Initiale Moviecar . Hands down IMO besti bíll í heimi, getur allt mjög vel. Besti bimminn.. erfiðara. Næstum allir bimmar sem ég hef eignast í "seinni tíð" hafa verið besti bimminn. E60M5 líklega toppurinn á þeim, en sá græni eins og hann er orðinn fylgir fast á eftir, hann er allavega sá sem veitir mér mesta akstursánægju af þeim bílum sem ég hef átt. Rosalega responsive á alla kanta, hröðun - bremsun - hægri og vinstri. |
Author: | Bjössi [ Thu 03. Apr 2008 20:18 ] |
Post subject: | |
VG-370 Z4 3.0l, langskemmtilegasti bíll sem ég hef átt, sennilega skemmtilegasti bíll sem ég hef ekið |
Author: | Thrullerinn [ Thu 03. Apr 2008 20:27 ] |
Post subject: | |
Bjössi wrote: VG-370 Z4 3.0l, langskemmtilegasti bíll sem ég hef átt, sennilega skemmtilegasti bíll sem ég hef ekið
OD-054 Z4 3.0l, langskemmtilegasti bíll sem ég hef átt, sennilega skemmtilegasti bíll sem ég hef ekið ![]() |
Author: | Vargur [ Thu 03. Apr 2008 20:28 ] |
Post subject: | |
Besti bíll sem ég hef átt er 750 e-38 ![]() Ég átti hann í tvö ár. Eyddi litlu. Bilaði aldrei. Frábær kraftur og togið endalaust. Gríðarleg þægindi og hljóðeinangrunin frábær. Mig langar bara í svona bíl aftur. |
Author: | Ingsie [ Thu 03. Apr 2008 20:50 ] |
Post subject: | |
Besti, þæginlegast, flottasti, skemmtilegasti og allt - Tvídí! Sakna hans líka gífurlega! Svo fannst mér gamla gli corollan min æði, veit ekki afhverju haha ![]() Já og wrxin hehe skemmtilegt að keyra hann sem og leika ser á honum ![]() |
Author: | ReCkLeSs [ Thu 03. Apr 2008 20:51 ] |
Post subject: | |
eini og besti bíllinn sem ég hef átt er 750 E32 ![]() [Vargur: Besti bíll sem ég hef átt er 750 e-38 Ég átti hann í tvö ár. Eyddi litlu. Bilaði aldrei. Frábær kraftur og togið endalaust. Gríðarleg þægindi og hljóðeinangrunin frábær. Mig langar bara í svona bíl aftur. Hvað var hann að eyða hjá þér?] |
Author: | saemi [ Thu 03. Apr 2008 21:02 ] |
Post subject: | |
Ég held að sá bíll sem ég sé hvað mest eftir, ef svo má segja sé gamli OU M5. Það var bara svo skuggalega heilt eintak og gaman að aka honum. Sexan mín er nátturulega það sem ég er ánægðastur með og mun alltaf eiga svoleiðis bíl. Ég bara tók ástfóstri við hann þegar ég sá svoleiðis bíl einu sinni þegar ég var að vinna sem bensíntittur. Ég elska útlínur bílsins og það er alltaf jafn gaman að aka honum ![]() M5 E39 er fullkomið tæki til að sameina transportation og entertainment. Það er bara of fullkominn bíll til daglegrar notkunar. X5-inn er það besta sem ég hef átt hingað til. Nýjast og þéttast. Ótrúlega kraftmikið og þægilegt tæki. E28 er bíll sem ég tengist sterkum böndum og á hvað sterkastar taugar til. Ég á örugglega eftir að elska minn M5 út af lífinu þegar ég loksins drattast til að koma honum í gang ![]() 745i E23 er líka hátt á listanum hjá mér, finnst það endalaust kúl bíll. Þetta er tríóið sem ég ætla alltaf að eiga. E23, E24 og E28 í topp lagi inni í skúr og ekið til skiptis. ![]() |
Author: | Dóri- [ Thu 03. Apr 2008 21:12 ] |
Post subject: | |
Bíllinn sem ég sakna mest er 320d 99árg ekinn 245.000 TT-755, þar að segja eftir að ég var búinn að taka hann í gegn, verst að viku eftir að ég var búinn að henda um 200kalli í hann þá var vinur minn á honum og keyrði á bíl og svo á gám. Sama hvað maður tók á honum komst hann aldrei nokkurntíman yfir 10l/100km Ef einhver veit hvar hann er niðurkominn þá væri ég til í að vita um hann og hvort hann fáist keyptur. dökkblár E46 TT-755 sem er með V far að framan. -Edit: virðist vera kominn á götuna, og í eigu pólverja ![]() |
Author: | Vargur [ Thu 03. Apr 2008 21:43 ] |
Post subject: | |
ReCkLeSs wrote: eini og besti bíllinn sem ég hef átt er 750 E32
![]() [Vargur: Besti bíll sem ég hef átt er 750 e-38 Ég átti hann í tvö ár. Eyddi litlu. Bilaði aldrei. Frábær kraftur og togið endalaust. Gríðarleg þægindi og hljóðeinangrunin frábær. Mig langar bara í svona bíl aftur. Hvað var hann að eyða hjá þér?] Hann var með 16.4- 16.6 á 16" felgunum en fór í 16.8-17 þegar hann fór á 20" felgurnar og ég keyrði eins og ljón. |
Author: | jens [ Thu 03. Apr 2008 21:57 ] |
Post subject: | |
E30 323i prefacelift ´84 |
Page 1 of 6 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |