einn sona þráður uppá gamnið,
það eru nú margir hérna sem hafa átt ansi áhugaverða bíla, og ekki færri sem eiga ansi áhugaverða bíla.
mig leikur dáldil forvitni á að vita hvaða bílar það eru sem lifa hvað best í minninguni,
þetta er ekki spurning um hvað sé dýrasti bímminn sem þið hafið átt, eða flottasti bíllinn, heldur bara hvaða bíll þið haldið að þið hafið verið ánægðastir með,
verður maður ekki að starta sjálfur í eigin þræði..
sá bíll sem mér hefur þótt bestur af því sem ég hef átt er 2002 540mtech bíllinn sem ég átti í haust/vetur, ég veit ekki hvað það var sem gerði mig sona sáttann við "gamlann 540 bíl" en það var bara allt svo nákvæmlega eins og það átti að vera.. ég og annar meðlimur hérna sem átti 540mtech vorum einmitt að ræða þetta um daginn og vorum báðir ekkert smá sáttir við þessa bíla.. eina sem hefði mátt vera betra var bilanatíðnin... sem var umtalsverð, eins og reyndar flestum alvöru E39 og E38 sem ég hef komið nálægt
sona sá bíll sem kemst svo hvað næst þessu er C32 amg 02, bara vanmetnir bílar finnst mér, fyrir mér var þetta hvað næst því að keyra benz sem hegðaði sér eins og bmw.. og alveg feiki vinsla.. gaf facelift E39 m5 sem ég var að leika við ekkert eftir á beinu köflunum,
mesta surprice-ið hlýtur samt að vera datsunin í undirskriftini hjá mér.. prufið sona bíl, beinskiptann
...........................................................................................................
bíð spentur eftir svörum frá sumra meðlimanna hérna
