Page 1 of 1

Enn og aftur ljósapælingar á E36

PostPosted: Sat 29. Mar 2008 15:31
by ValliB
Já í þetta sinn eru það afturljósin. Hvor afturljósin finnst mönnum svo flottari, eða bara passa betur við bílinn?

Image

VS.

Image

Sjálfum þykir mér nú orginallinn smekklegri, en það er auðvitað alltaf gaman að sjá að þeir eru ekki allir eins þessir E36 :wink:

PostPosted: Sat 29. Mar 2008 15:32
by Angelic0-
persónulega finnst mér orginalinn flottastur með OEM hvítu...

er samt mjög sáttur með svipað setup og þetta á mínum ;)

PostPosted: Sat 29. Mar 2008 16:23
by BirkirB
Mér finnst það fara mikið eftir eintakinu. Sumir bera original vel.
Ég er hot fyrir alveg rauðum eða original með oem hvítu sem er búið að smóka pínulítið...sá allavega þannig einhversstaðar.

En lexus/ricer ljós eru virkilega turnoff imo, sama á hvaða bíl þau eru á.

PostPosted: Sun 30. Mar 2008 22:15
by Axel Jóhann
Persónulega finnst mér neðri ljósin alls ekki flott.

PostPosted: Sun 30. Mar 2008 23:14
by Mazi!
efri eru alveg mun skárri en tælenskí ljósin þarna niðri :puker:

getur líka tekið þessi efri og gert þau alveg rauð, held það væri töff eða fá sér bara hvít og rauð

PostPosted: Mon 31. Mar 2008 11:21
by Höfuðpaurinn
ætli ég útskýri ekki afhverju ég skipti, vinstra afturljósið var ónýtt, bæði brotið og tengingarnar ónýtar í því, ég reyndi að koma því í lag og að fá annað orginal ljós, en þar sem það gekk ekkert, þá ákvað ég að splæsa í ný og vildi hafa þau með glærum stefnuljósum, þar sem stefnuljósin að framan eru svoleiðis.

Ég ákvað svo að dekkja þau aðeins, þar sem mér fannst þau vera alltof rauð, þá fyrst tók ég eftir því að það væru díóður í innri stöðuljósunum.

En mér finnst þetta koma ótrúlega vel út miðað við mikið af þessum "rice" ljósum sem maður hefur séð og ákvað því að halda þeim... en þykir ekki hverjum sinn fugl fagur??

en að sjálfssögðu er öllum frjálst að hafa sínar skoðanir á þessu og ef einhver getur ekki hugsað sér að bíllinn sé svona, þá bendi ég á að hann er til sölu og er því tilvalið fyrir þá að kaupa hann og skipta þessu út (geta meira að segja fengið gömlu ljósin með ) :wink: