bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
e32 730 L6 vs e32 730 V8 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=28305 |
Page 1 of 1 |
Author: | Tension Head [ Tue 25. Mar 2008 20:13 ] |
Post subject: | e32 730 L6 vs e32 730 V8 |
er bara svona að leita eftir reynslusögum. hef bara prufað V8 bílinn og fannst hann mjög skemmtilegur. alveg nóg afl fyrir mig. en ég hef enga reynslu af línu 6 vélinni. erum við að tala um alveg fáránlegan mun á bílunum eða? megið endilega koma með ykkar reynslu af þessum bílum ![]() |
Author: | 98.OKT [ Tue 25. Mar 2008 20:43 ] |
Post subject: | |
Ég átti 6.cyl. 730 BMW og af minni reynslu að þá mundi ég aldrei fá mér svona bíl aftur, þetta er haugmáttlaust, eyðir nánast ekki undir 17 á hundraði, og svo eru þetta auðvitað orðnir gamlir bílar sem þurfa oftast nær mikið viðhald. Þannig að ég segi allavega að ef menn hafa ekki efni á dýrari bíl en þessu að þá hafa þeir einfaldlega ekki efni á að reka svona bíl með góðu móti ![]() |
Author: | íbbi_ [ Tue 25. Mar 2008 20:50 ] |
Post subject: | |
i.m.o er l6 730 bara to slow, búnað eiga tvo |
Author: | Tension Head [ Tue 25. Mar 2008 20:55 ] |
Post subject: | |
er V8 sem sagt alveg töluvert sprækari??? mér fannst hann allavega bara ágætur! |
Author: | Hlynzi [ Tue 25. Mar 2008 21:00 ] |
Post subject: | |
Veit nú ekki hvort er sprækari. En V8 er betri kostur að mínu mati, gríðarlega smooth bíll. En ef 740 er í boði myndi ég taka þann kost. |
Author: | Steinieini [ Tue 25. Mar 2008 21:09 ] |
Post subject: | |
Ég á V8 bílinn og finnst hann bara fínn, ekkert þrusupower en hefur lítið fyrir venjulegum akstri og hefur þetta á ágætis togi. Tekur alveg þessa helstu e30 pjakka á ferðinni Er að brenna um 16L skv tölvunni í rólegum akstri |
Author: | sh4rk [ Tue 25. Mar 2008 22:10 ] |
Post subject: | |
Ég á 740i bsk og er allveg þrælskemmtilegur bíll, allveg fínt afl og nóg af togi og er ekkert að eyða neitt svakalega, mundi sennilega eyða minna með 6 gíra kassanum |
Author: | Vargur [ Tue 25. Mar 2008 22:34 ] |
Post subject: | |
Ég átti 730i með línu sexu og hann reyndist mér vel, ef hugsað er um að skipta um kerti osf eiðir slíkur bíll hóflega. 8 cyl. bíllinn er sennilega eitthvað skemmtilegri og væntanlega kostur að hafa nýrri hönnun. Línusexan er samt þrutreynd og fínasti mótor. Ef ég væri að spá í svona bíl þá mundi ég leita eftir besta eintakinu en ekki endilega láta mótorinn ráða. |
Author: | elli [ Tue 25. Mar 2008 22:56 ] |
Post subject: | |
Mér sýnist af því sem menn hér hafa sagt að M60 bílar eyði töluvert minna en M30. Og því gæti ég vel trúað. Ég er með M30B35 ('91 735) og hann er að fara með 14,8 í akstrinum Grafarholt-Garðabær á síðasta tanki. Hann fer reyndar upp í 15,5 í mestu kuldum. Hann hefur verið að detta niður í 13,5 á sumrin. Ég er búinn að keyra minn M30 mótor núna í eitt ár án þess að hann hafi svo mikið slegið feilpúst. Þetta eru mjög traustar vélar. Eins og áður hefur komið fram þá myndi ég líklega láta viðhald og ástand ráða þessu að mestu. Bílar með M30 vélar (I6) eiga það til að hafa útslitna kambása. Settið kostar um 50.000 fyrir utan vinnu. Athugaðu það áður en þú kaupir. Fyrir öllu prófaðu bílinn BARA kaldann, eða ég meina, þegar þú prófar hann gættu þess að hann sé "stone cold" þá ættirðu að geta verið sem vissastur um að ZF (sjálfsk.) sé OK. Bílar á þessum aldri (M30) bílar eiga það til að vera með tæpar skiptingar og það er bara vesen, en þó ekki óleysanlegt Varðandi viðhald á M60 veit ég ekki mikið. Ég hef þó heyrt að ventlalokspakkningar séu eitthvað veikar á þeim en það er barnaleikur að eiga við það. Það eru örugglega "hnetur" hér sem geta frætt þig frekar um M60 mótorana. Þó myndi ég álíta að varahlutir í M60 væru töluvert dýrari en í M30. Niðurstaða: Láttu viðhald og ástand ráða mestu, ef þú ert bara að leita að sjöu á góðu verði þá myndi ég líka skoða E38 það er hægt að fá þá nánast gefins. Annars ætla ég ekki að fara að dæma E32 Vs. E38 það eru of margir fletir á því máli. |
Author: | Lindemann [ Tue 25. Mar 2008 22:57 ] |
Post subject: | |
ég er búinn að eiga 530i með m30 mótornum og hef keyrt 730 með m60. M30 er gamall mótor, eldgömul hönnun - einfaldur og þrælsterkur. Ég myndi ekki fá mér svona mótor aftur nema þá í 3,5L útfærslunni til þess eins að blása inná hann. M60 er töluvert mikið nútímalegri, endast oftast 300þús km með góðu móti, hrikalega þýður gangur í þeim. 3,0L bíllinn hefur ekkert rosalegt afl, en er samt mörgum skrefum á undan gömlu 6cyl sleggjunni,,,,,skilar þessum flykkjum alveg ótrúlega vel áfram, ég gæti vel hugsað mér e32 bíl með m60, hvort sem er 3.L eða 4.L Mín niðurstaða -> ég mun alltaf taka m60 framyfir m30 í framtíðinni, þó svo að ég hafi ekkert nema góða reynslu af m30. |
Author: | saemi [ Tue 25. Mar 2008 23:00 ] |
Post subject: | |
M60 3.0 er svipuð og 3.5 m30. Þannig að 730i V8 er að virka eins og 735i L6 |
Author: | elli [ Tue 25. Mar 2008 23:10 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: ég er búinn að eiga 530i með m30 mótornum og hef keyrt 730 með m60.
M30 er gamall mótor, eldgömul hönnun - einfaldur og þrælsterkur. Ég myndi ekki fá mér svona mótor aftur nema þá í 3,5L útfærslunni til þess eins að blása inná hann. M60 er töluvert mikið nútímalegri, endast oftast 300þús km með góðu móti, hrikalega þýður gangur í þeim. 3,0L bíllinn hefur ekkert rosalegt afl, en er samt mörgum skrefum á undan gömlu 6cyl sleggjunni,,,,,skilar þessum flykkjum alveg ótrúlega vel áfram, ég gæti vel hugsað mér e32 bíl með m60, hvort sem er 3.L eða 4.L Mín niðurstaða -> ég mun alltaf taka m60 framyfir m30 í framtíðinni, þó svo að ég hafi ekkert nema góða reynslu af m30. Þetta er það gáfulegasta sem ég hef heyrt lengi. Ég er búinn að kemba netið töluvert varðandi SC á svona dót. Ætli það sé ekki það eina sem ég get gert af viti við bílinn minn. Sorglega verðlaust dót ![]() Þarf bara að fá mér einhvern annan daily driver áður en ég fer í þetta. Ég rétt missti af Eaton 90 á ebay um helgina, ég er að hugsa um að fara að sanka að mér dóti í svoleiðis hægt og rólega |
Author: | emilth [ Wed 26. Mar 2008 02:11 ] |
Post subject: | |
Quote: Bílar á þessum aldri (M30) bílar eiga það til að vera með tæpar skiptingar og það er bara vesen, en þó ekki óleysanlegt
Ég held að ég af öllum ætti að þekkja það...Fékk einmitt eina af mínum skiptingum hjá þér elli. Ég á 730i með línunni, mér finnst þetta fínn bíll. Auðvitað er hægt að fá meira afl og meira fjör og minni eyðslu, en þessir mótorar eru ótrúlega traustir. Minn bíll er keyrður 310 þúsund km, og hann gengur eins og klukka. Engin aukahljóð og ekki neitt. Eeeeeeeeeeen því miður er ég búinn með 3 skiptingar í honum, keypti 2 notaðar og þær reyndust ekki alveg þær bestu ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |