bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Jæja... allir að skíta á sig......???
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=28256
Page 1 of 6

Author:  saemi [ Fri 21. Mar 2008 23:00 ]
Post subject:  Jæja... allir að skíta á sig......???

Hvernig er það, eru allir að kúka í buxurnar eins og staðan er í dag?

Eru allir bílalánsbílarnir skyndilega yfirveðsettir um 20%????

Á enginn neitt í bílunum heldur skuldar síðustu afborgun (eða 3 síðustu) og þarf að losna við hann helst í gær???

Ég hef haft lúmskt gaman af því að sjá þetta. Í Nóvember voru allir bílar auglýstir með yfirtöku og 300 kall út.

Í desember var það yfirtaka á láni og málið dautt.

Í mars er það yfirtaka og 300 kall í hanskahólfinu!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég skal bara segja ykkur það... að á næsta Vökuuppboði og fram á sumar og haust verður hægt að gera FEIKNA góða díla!!!!!!!!!!!!!!!!!

Undirskrift:

Hrokafulli flugmaðurinn.

P.S. lánalöggan vildi vera með líka

/////////// Flamesuit on!!! ///////////////////////

Author:  Aron Fridrik [ Fri 21. Mar 2008 23:01 ]
Post subject: 

ég er ekki að finna fyrir þessu :lol:

Author:  íbbi_ [ Fri 21. Mar 2008 23:03 ]
Post subject: 

mér finnst alltaf jafn grátbroslegt að sjá hvernig sumir virðast hafa gaman af því að sjá hvað það er að fara illa fyrir fólki,

annars er ég góður, allt í skilum og hækkaði ekkertt

Author:  saemi [ Fri 21. Mar 2008 23:13 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
mér finnst alltaf jafn grátbroslegt að sjá hvernig sumir virðast hafa gaman af því að sjá hvað það er að fara illa fyrir fólki,

annars er ég góður, allt í skilum og hækkaði ekkertt


Bíðum þá bara fram á vor :lol:

Nei, þú ert að misskilja mig. Ég er ekki að hlakka yfir óförum annara. Ég bara skil ekki einfaldleika þeirra sem eiga bíla og bíla og lán og lán..

Hvað er ég og aðrir hér (reyndar ekki flestir, bara ákveðnir aðilar) búnir að segja í langan tíma varðandi þessi lán?

Það er frekar aumt að fara að kenna okkur um að hlakka í óförum annarra þegar við höfum verið að vara við þessu í rúmt ár!!!

Mér finnst það hálf hjákátlegt að vera að segja að ég sé að nudda salti í sárin. Fólk sem hefur tekið lán sem það stendur undir er bara í góðum málum og ekkert út á það að setja. En ... hinir, sem hafa ekki gert ráð fyrri skakkaföllum. Ég vorkenni þeim en get ekki sagt annað en:

I TOLD YOU SO!

Author:  ///M [ Fri 21. Mar 2008 23:16 ]
Post subject: 

saemi wrote:

Hvað er ég og aðrir hér (reyndar ekki flestir, bara ákveðnir aðilar) búnir að segja í langan tíma varðandi þessi lán?


hart að vera ... :lol:

Author:  Kristjan [ Fri 21. Mar 2008 23:54 ]
Post subject: 

Ég held að fáir skilji það hvað það var erfitt fyrir mig að neita mér um að kaupa mér bíl á síðastliðnu ári, mig langaði SVO mikið að fá mér flottan BMW og taka eitthvað sweet sounding erlent lán fyrir honum, en djöfull er ég feginn að hafa ekki gert það núna.

Stundum verður maður bara að vera harður við sjálfan sig.

Author:  srr [ Fri 21. Mar 2008 23:55 ]
Post subject: 

Ég er ánægður að eiga alla mína 7 bíla skuldlaust.
Enda ekki beint dýrir bílar :lol:

Author:  hlynurst [ Sat 22. Mar 2008 00:03 ]
Post subject: 

Ég fylgist með þróuninni af áhuga... maður ætti að geta gert góð kaup á næstu mánuðum.

Margir hafa bara verið að lifa miklu hærra heldur en þeir geta og nú er komið af skuldardögum.

Author:  srr [ Sat 22. Mar 2008 00:16 ]
Post subject: 

hlynurst wrote:
Margir hafa bara verið að lifa miklu hærra heldur en þeir geta og nú er komið af skuldardögum.

Svo satt!!!

Author:  IngóJP [ Sat 22. Mar 2008 00:20 ]
Post subject: 

Ég er með 2 bílasamninga samtals uppá sirka 4 milljónir og þetta hækkaði doldið hjá mér en ekkert þannig að þetta hrjái mig. Ætlaði að kaupa einn bíl í viðbót fyrir sirka 2 mánuðum og djöfull er ég feginn að hafa sleppt (konan bann bann) Tek undir með Sæma ég finn til með þeim sem ekki hafa reiknað með þessu og sitja nú í súpunni

Author:  Thrullerinn [ Sat 22. Mar 2008 00:24 ]
Post subject: 

G500 er allavega dýrari í dag... :evil:

Aldrei að vita nema að 997 Turbo, RR sport, 996 turbo o.fl. dúkki upp
á uppboðum í ár...

Author:  Kristjan [ Sat 22. Mar 2008 00:26 ]
Post subject: 

Ég ætla allaveganna að fara með eina kúlu eða svo á uppboð og reyna næla mér í nýrri bíl.

Author:  íbbi_ [ Sat 22. Mar 2008 01:03 ]
Post subject: 

já það verður forvitnilegt að fylgjast með þróun mála, ég ætla mér allavega að minka við mig þótt það sé engin brunaútsala, þeir fóru verst held ég sem hugsuðu minnst, flestir sem eru að braska með bíla steingleyma alltof fljótt útá hvað leikurinn gengur og fara kaupa bíla sem þá langar sjáfa í og eru svo ekketrt að drífa sig að selja svo þeir geti nú pikkað nokkrar upp í viðbót á glæsibifreiðirnar..

það fór einn af núverandi bílunum hjá mér all svakalega af stað og lánið rauk upp um milljón, það var bara lagað og hvílir það sama á honum núna og áður en það fór allt af stað.

ég veit mætavel hvað þú ert að segja sæmi, og er bæði sammála þér og ósammála,

Author:  BlitZ3r [ Sat 22. Mar 2008 01:49 ]
Post subject: 

Það eru bara sumir sem þurfa að læra þetta erfiðu leiðinna :(

Samt oriðið svo mikið rugl í kringum þetta bílabrask, halda sumir með að taka við láni + peningi og svo selja kannski á

yfirtöku sé svaka sniðugt (gengur kannski í nokkur skipti) og sita svo í spúpunni með bíl sem þeir gerðu engan vegin ráð fyrir að eiga svo lengi.

Þá er nú peningurinn fjótur að hverfa sem fylgdi bílnum og síðan kominn í bullandi mínus með hin "Svaka díl "

Annars hef ég nú aðeins tekið einu sinni lán og það var til að fjármagna einkaflugmannin og kláraði það borga lánið upp áður en ég fékk skírteinið.
8) 8) 8)

Author:  JOGA [ Sat 22. Mar 2008 02:20 ]
Post subject: 

Thetta er eflaust vont mal fyrir marga.
Eg hef alltaf verid mjog a moti thvi ad taka lan fyrir bilum sem kannski sest a thvi ad eg hef aldrei keyrt um a dyrum bilum.
Reyndar allt i lagi ef folk gerir thetta skynsamlega og tekur lan sem thad raedur mjog audveldlega vid.

Ef eg flyt heim i haust tha er ekkert oliklegt ad eg selji 328i, innleysi sma gengishagnad og maeti a vokuuppbod med aurinn :)

Vona ad allir her sem og allt gott folk komist agaetlega fra thessu :?

Veit ad mer finnst nogu slaemt ad skulda sma peninga vegna namsins. Hvad tha milljonir um fram virdi bila/husa :shock:

Page 1 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/