Page 1 of 1

Að kaupa BMW 3 !

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 10:06
by snikkari
Sælir drengir,
Ég er að fara að festa kaup á BMW 3, helst wagon, árg. 1998 - 2002
Eirrhvað las ég um að 1900 vélin væri slöpp, kannski maður ætti að forðast hana.

Allar ábendingar eru vel þegnar um hvað maður ætti að forðast, ég veit lítið um þessa bíla.

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 10:20
by birkire
Heeeellingur af 320d touring til sölu. Hrikalega skynsamar vélar.

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 12:16
by JonHrafn
Facelift 320d er málið, það er seinnihluti 2001. Mjög sprækar 2.0 vélar og ekki skemmir eyðslan fyrir :þ

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 13:52
by sigatli
Ég á flottan Bmw B3 ( 330 ) Alpina, 2001 handa þér ;)

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=27804

Hrikalega töff græja.

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 13:54
by snikkari
JonHrafn wrote:Facelift 320d er málið, það er seinnihluti 2001. Mjög sprækar 2.0 vélar og ekki skemmir eyðslan fyrir :þ


ok, flott að vita það...
Er þetta facelift ekki bara stefnuljósin, eða er það meira ?
Ef svo, hvað felst í facelift-inu.

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 14:21
by finnbogi
facelift 320d er 150hö en fyrir facelift er bara 120hö


ss meira power í facelift díselbílnum

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 20:14
by Dóri-
finnbogi wrote:facelift 320d er 150hö en fyrir facelift er bara 120hö


ss meira power í facelift díselbílnum


Rangt prefacelift er 136hö



Annars þegar þú kaupir svona bíl þarftu helst að athuga þjónustusögu bílsins.

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 20:29
by finnbogi
Nd2Spd wrote:
finnbogi wrote:facelift 320d er 150hö en fyrir facelift er bara 120hö


ss meira power í facelift díselbílnum


Rangt prefacelift er 136hö



Annars þegar þú kaupir svona bíl þarftu helst að athuga þjónustusögu bílsins.


vó sorry var bara slumpa á þetta

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 21:02
by FinnurKarls
sama með pre facelift bensínbílana, þeir eru 120 hö, á einn svoleiðis fínasti bíll samt finnst hann frekar kraftlaus, en facelift bíllinn er 140 hö og eyðir minna sem er bara gott mál :wink:

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 22:18
by JonHrafn
E46
1998-2001 320d - 1951 cc, 136 hp (100 kW)

2001-2006 320d - 1995 cc, 150 hp (110 kW)

E90
320d - 2.0 L turbo diesel I4, 163 PS (161 hp/120 kW), from 2008 177 PS (175 hp/130 kW)

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 23:53
by JIS
Ef þú ert að skoða með Diesel get ég f. mitt leiti mælt með þeim. Ég skoðaði þetta mikið áður en ég keypti minn f. 2 árum.
Ég sendi m.a. póst á Leó M. Jónsson iðnaðar- og vélatæknifræðing sem mér finnst vita sitthvað(sumir deila um það) um bílvélar og fylgist vel með, hann bar BMW dieselvélunum góða söguna og mælti með þeim, sagði þær mjög sterkar og mun sterkari en t.d. vélar í Diesel Passat og nýjum Skoda bifr. sem seljast þónokkuð í dag. http://leoemm.com/disilvelin.htm
Síðan er e-ð að upplýsingum um diesel vélar einhversstaðar í "Brotajárns-þáttum" hans.

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 08:40
by Einarsss
Ég er alveg hrikalega sáttur með 2 L dieselinn í 2004 e46 sem ég er með.... argasta snilld hvað hann vinnur vel og togar skemtilega

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 11:16
by Fandango
Er með 330xi touring skráðan á götuna 09.2001, hrikalega skemmtilegur bíll, 230hö og mjög vel búinn (leður, rafmagn í öllu, minni í sætum, lúga, harman kardon, regnskynjari ofl ofl). Fæst á góðu staðgreiðsluverði. Kæmi hann til greina?

PostPosted: Mon 17. Mar 2008 12:28
by snikkari
Fandango wrote:Er með 330xi touring skráðan á götuna 09.2001, hrikalega skemmtilegur bíll, 230hö og mjög vel búinn (leður, rafmagn í öllu, minni í sætum, lúga, harman kardon, regnskynjari ofl ofl). Fæst á góðu staðgreiðsluverði. Kæmi hann til greina?


Blessaður, Ég er eiginlega ekki að leita mér að X bíl, en takk samt.