Ef þú ert að skoða með Diesel get ég f. mitt leiti mælt með þeim. Ég skoðaði þetta mikið áður en ég keypti minn f. 2 árum.
Ég sendi m.a. póst á Leó M. Jónsson iðnaðar- og vélatæknifræðing sem mér finnst vita sitthvað(sumir deila um það) um bílvélar og fylgist vel með, hann bar BMW dieselvélunum góða söguna og mælti með þeim, sagði þær mjög sterkar og mun sterkari en t.d. vélar í Diesel Passat og nýjum Skoda bifr. sem seljast þónokkuð í dag.
http://leoemm.com/disilvelin.htm
Síðan er e-ð að upplýsingum um diesel vélar einhversstaðar í "Brotajárns-þáttum" hans.