bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Að tengja síma í 520i
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=27785
Page 1 of 1

Author:  byrjandinn [ Wed 27. Feb 2008 10:58 ]
Post subject:  Að tengja síma í 520i

Daginn.

Ég er með BMW 520i, 2004 og sé í tölvuskjánum eitthvað sem heitir communications og einnig eru svona hnappar í stýrinu til þess að svara í síma og svoleiðs.

Ég sé ekki betur en að það sé enginn bluetooth stuðningur í bílnum og ég er heldur ekki að sjá neina "dokku" fyrir farsíma þannig að ég var að pæla hvort einhver viti hvort ég geti verslað mér bluetooth stuðning sem hægt er að tengja við skjáinn og stýrið eða hvort ég verði að fá mér dokku og þá hvort menn viti hvort að það séu til dokkur með support fyrir Nokia E65?

Author:  byrjandinn [ Wed 27. Feb 2008 14:13 ]
Post subject: 

Ég svara þessu bara sjálfur.

Bíllinn minn er ekki með neinu "símkerfi" þrátt fyrir að það líti út fyrir það.

Ég heyrði í umboðinu og þeir sögðu mér að það væri hægt að koma upp bluetooth kerfi í bílinn fyrir ca 250.000kr. Þá mundu s.s. takkarnir í stýrinu og svoleiðis verða virkt.

en er einhver með góðar tillögur að 3rd party bluetooth fítus í bíla?

Author:  Alpina [ Wed 27. Feb 2008 19:36 ]
Post subject: 

250k :shock: :shock: :shock:

Author:  Djofullinn [ Wed 27. Feb 2008 20:09 ]
Post subject: 

Ertu ekki með síma í hólfinu á milli sætanna?

Author:  Einarsss [ Wed 27. Feb 2008 20:31 ]
Post subject: 

er þetta ekki bara af því bíllinn var pantaður með lögn fyrir símann?

Author:  totihs [ Wed 27. Feb 2008 20:45 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
er þetta ekki bara af því bíllinn var pantaður með lögn fyrir símann?

hmm.. minn er líka með einhverja símatakka í stýrinu og á spilaranum samt stendur ekkert um neitt símatengt í fæðingarvottorðinu.

Er þetta ekki bara eitthvað standard í stýrinu og á spilaranum ? Ég meina, varla færu þeir að gera margar gerðir af tökkum fyrir stýrið ?

Author:  byrjandinn [ Wed 27. Feb 2008 21:33 ]
Post subject: 

Djofullinn: Nei það er enginn sími á milli sætana og ekkert sem gefur til kynna að það sé í boði.

En það kostar víst 100.000kr að fá bluetooth kittið sjálft og restin fer í að setja þetta í bílinn en það þarf að draga þetta í alla enda á bílnum.

Maðurinn á verkstæðinu sagði einmitt að þetta væri bara standard stýri með svona símatökkum og þess háttar, svoldið leim en samt :?

Author:  ReCkLeSs [ Thu 28. Feb 2008 02:59 ]
Post subject: 

Án þessa að hafa prófað þetta sýnist mér þetta vera sniðug lausn fyrir þig.

http://www.aukaraf.is/product_info.php?cPath=77&products_id=525&osCsid=ab61cd8b66c79bccd154c123a885d78d

vá svoldið dýrt að setja símalögn í :?
frekar myndi ég fá mér svona unit allavegana.
eða jafnvel svona.

http://www.aukaraf.is/product_info.php?cPath=77&products_id=467&osCsid=ab61cd8b66c79bccd154c123a885d78d

Author:  byrjandinn [ Thu 28. Feb 2008 10:01 ]
Post subject: 

Takk fyrir þetta, þetta er eitthvað sem maður gæti skoðað.

Author:  íbbi_ [ Thu 28. Feb 2008 10:51 ]
Post subject: 

ég nýjum benzum er þetta þannig að þeir koma flestir með símalöng orginal, svo kaupir maður bara vögguna í hólfið á milli sætana, kveikir á bluetooth í símanum og þá finnur símkerifð í bílnum síman og gemsinn manns er alltí einu kominn inn í allt kerfið.. takkana í stýrinu nav skjáin og flr, mjög þægilegt, en vitið til.. úrelt á no time,

ég var alltaf mjög ánægður með að bmw skyldu bara hafa gsm síma með korti, benz fóru að flækja þessi símkerfi sín ógurlega fyrir nokkrum árum, sem skilar sér í einhverju megakúl þegar bíllin er nýr og svo megaúrelt stuttu seinna,

95 E38 bíllinn minn var með gsm með korti sem virkaði perfect, gat lesið sms í mælaborðinu og flr,

02 540 bíllin var með sama kerfi bara nýrra símtóli,

02 amg benzinn minn er með einhevrju raddstýrðu gsm kerfi sem er með handffrjálsan motorola síma sem er týndur.. og gangi mér vel að finna 02 árg af síma í dag.. nýlegur bíll en símkerfið úrelt

Author:  Einsii [ Thu 28. Feb 2008 13:58 ]
Post subject: 

ReCkLeSs wrote:
Án þessa að hafa prófað þetta sýnist mér þetta vera sniðug lausn fyrir þig.

http://www.aukaraf.is/product_info.php?cPath=77&products_id=525&osCsid=ab61cd8b66c79bccd154c123a885d78d

vá svoldið dýrt að setja símalögn í :?
frekar myndi ég fá mér svona unit allavegana.
eða jafnvel svona.

http://www.aukaraf.is/product_info.php?cPath=77&products_id=467&osCsid=ab61cd8b66c79bccd154c123a885d78d

Ég sá sambærilegt kerfi að mig minnir frá Alpine, þar sem skjárinn og takkinn vöru ekki á sama stikkinu.
Þá gat maður haft þennann scroll takka á milli sætana svona einsog I-Drive takkinn er og skjárinn var settur á stað sem þægilegt var að lesa af honum.
Það þykir mér mikið skynsamlegra heldur en að þurfa alltaf að fikta í einhverjum takka sem er ofarlega í innréttinguni og erfiðara að finna án þess að horfa.

Author:  Einsii [ Thu 28. Feb 2008 14:10 ]
Post subject: 

Einsii wrote:

Nei það var frá Nokia
Image

Vinur minn var með svona og þetta var alger snilld.
Já og gott ef þetta var ekki bæði Standalone sími og bluetooth "headset" fyrir símann í vasanum.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/