bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Norræna innflutningur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=27607 |
Page 1 of 2 |
Author: | bjornod [ Mon 18. Feb 2008 22:07 ] |
Post subject: | Norræna innflutningur |
Hæ Ég er að fara að flytja inn bíl í vor. Ég stefndi að því að taka Norrænu í maí og fékk uppgefið pakkaverð fyrir tvo í klefa með einn bíl. Verðið er um 80.000 kr. Þegar bókunarstofan heyrði að ég væri með útlendan bíl, þ.e að flytja inn, þá ætla þeir að rukka 40.000 kr flat rate ofan á allan pakkan. Við erum þá að tala um 120Þ. kr. Ég var ekki að kyngja þessu og bað um frekari útskýringar: "Sæll, Þessi auka 40.000.- ISK er ekki miðað við frakt - frakt verð er líklegast miklu dýrara en þú getur ath það hjá Smyril-Blue-Water í síma 470-2800 en þeir sjá um alla frakt og geta þá gefið þér upp frakt verð. En ef þú vilt gera þetta í gegnum ferðaþjónustuna (okkur) hér á skrifstofunni að þá er þetta verðið. Þú verður þú alltaf að greiða þennann reikning - Tollurinn á Seyðisfirði mun stoppa þig við koma á Seyðisfirði þar sem þeir sjá auðvitað að bíllinn er á erlendum númerum og þá munu þeir einnig vilja sjá þennenn reikning, sem bara við getum útbúið fyrir nú eða frakt skrifstofan en þá verður þú auðvitað að senda bílinn með frakt. + " Er þetta e-ð nýtt? Vitið þið í hverju þessi 40Þ kall liggur?? |
Author: | Svessi [ Mon 18. Feb 2008 23:32 ] |
Post subject: | |
WHAT!!! Ég get nú ekki svarað spurningu þinni en bara eitt enn dæmið um hvað er alltaf verið að taka okkur í það skræfþurt. Peningplokk dauðans. Ekki nóg með að maður þurfi þá að borga þessar 40 þús kr aukalega heldur legst þetta ofaná verðið sem innflutningstollar eru reiknaðir út frá. |
Author: | Bjarkih [ Tue 19. Feb 2008 00:07 ] |
Post subject: | |
Sýnir bara í hnotskurn hvað þjónustan hjá Smyril-line er ömurleg. Ætti ekki að vera erfitt fyrir þá að sundurliða pakkareikninginn til að fá raunverulegann flutningskostnað á bílnum hingað. |
Author: | saemi [ Tue 19. Feb 2008 01:09 ] |
Post subject: | |
Akkurrat. Þetta er peningaplokk. Ég lenti í þessu á sínum tíma. Það er ódýrara að senda bíinn sem frakt heldur en að einhver taki hann sem er að fara hvort eð er með ferjunni! Þetta eru bara rugludallar! |
Author: | sh4rk [ Tue 19. Feb 2008 02:57 ] |
Post subject: | |
Ég þurfti að borga 36000 kall að mig minnir fyrir flutning á bimmanum mínu þegar Bjarki flutti hann inn fyrir mig með Smyrill-Line frá Dk |
Author: | bjornod [ Tue 19. Feb 2008 11:58 ] |
Post subject: | Tilboð frá Atlantsskipum |
Tilboðið frá Atlantsskipum hljóðar upp á 115Þ frá Rotterdam. " Eftirkrafa: EUR € 275 Flutningur: EUR € 500 Öryggisgjald: EUR € 13,75 Staðsetningargjald: EUR € 37,5 Olíuálag: USD $ 175 Uppskipun: 18.125 kr. Afgreiðslugjald: 895 kr. Tollskýrsla: 3.550 kr. ATH: tilboð miðast við að billinn komist í gám" Reiknivélin gerir ráð fyrir 65Þ krónum fyrir flutningsgjald. Þetta er e-ð sem þarf að endurskoða. |
Author: | saemi [ Tue 19. Feb 2008 12:50 ] |
Post subject: | |
jebb. Mætti alveg uppfæra þetta, þetta hefur hækkað GÍFURLEGA. |
Author: | bjornod [ Tue 19. Feb 2008 13:50 ] |
Post subject: | AF ÞVÍ BARA |
"Sæll Björn, Það er bara eitt verð engin sundurliðun - verðið er 40.000.- per reikning og reiknngurinn kallast innflutnings reikningur. Og fyrir það færðu semsagt númeraðan reikning með nákvæmri skýringu á því farartæki sem þú ætlar að flytja inn: Gerð, týpa, árgerð, lengd, hæð, breidd, egin þyngd, verksmiðjunúmer og svo útbúum við sendingarnúmer sem er líka stundum kallað farmskrárnúmer sem fer einnig á reikninginn. Það er skráð á reikninginn hvenar það kemur til landsins, hvernig það kemur til landsins og hver innflytjandi og eigandi fararækis er. Því þetta eru jú allt atriði sem þurfa að vera á sér pappír fyrir bæði þig sem innflytjanda, toll og umferðastofu. Nei þetta er nú ekkert nýtt svosem og hefur verið útbúið síðan 2004 en það hefur verið verðhækkun í þessum málum hjá okkur Þar sem sá hópur sem flytur inn með sér farartæki fer sífellt stækkandi og þar sem það fer dagóður tími í það að útbúa þessa reikninga fyrir fólk að þá höfum við verðlagt þessa þjónustu svona. Þegar fólk flytur inn bíla, húsbíl eða hjólhýsi er verðið 40.000.- ISK á hvern innflutning. Ef fólk vill flytja inn með sér mótorhjól, kerru eða tjaldvagn/fellihýsi þá er verðið á reikningnum 25.000.- ISK Verðið er ekki breytilegt eftir tímabilum eins og verð ferða. " ÞÁ ER ÞAÐ KOMIÐ Á HREINT...... |
Author: | siggik1 [ Tue 19. Feb 2008 13:58 ] |
Post subject: | |
bíddu, 40 þús fyrir þetta .... getur maður ekki bara útvegað þessar uppls sjálfur og gert þetta sjálfur ? og látið eftilvill umboð úti stimpla og kvitta um að þetta sé rétt ? |
Author: | saemi [ Tue 19. Feb 2008 13:59 ] |
Post subject: | |
Bööööööhhhh. Hversu mikill tími fer í að setja þetta á blað: Gerð, týpa, árgerð, lengd, hæð, breidd, egin þyngd, verksmiðjunúmer. Fyrir utan að það þarf bara þyngd og gerð fyrir tollinn. og svo útbúum við sendingarnúmer sem er líka stundum kallað farmskrárnúmer sem fer einnig á reikninginn. Það er skráð á reikninginn hvenar það kemur til landsins, hvernig það kemur til landsins og hver innflytjandi og eigandi fararækis er. Hvaða fyrirtæki gefur ekki út reikning. Ég sé nú ekki mikinn mun á þessu og venjulegum reikningi. Að útbúa sendingarnúmer... uhh þetta eru engin geimvísindi, bara spurning um að setja á blað hluti sem eru fyrir framan mann. Ég væri alveg til í að rukka 40.000.- fyrir svona lagað. Þetta tekur 5 mínútur að gera. Hvernig er hægt að réttlæta 40.000.- fyrir þetta!!!!!!!1 |
Author: | saemi [ Tue 19. Feb 2008 14:02 ] |
Post subject: | |
Af hverju er gjaldið 25.000.- fyrir mótorhjól? Er ódýrara að standa í þessu fyrir mótorhjól? Það sjá allir að þetta er ekkert nema svívirðileg gjaldtaka sem ætti ekki að vera leyfileg. Þetta t.d. leyfist ekki hjá hinu opinbera, þar er bannað að rukka inn gjald fyrir svona pappír sem er hærra en sem nemur kostnaðinum sem þarf að standa af við útgáfuna! |
Author: | _Halli_ [ Tue 19. Feb 2008 14:05 ] |
Post subject: | |
Þetta er algjörlega fáránlegt að hægt sé að rukka fyrir þetta, ég myndi nú samt ekki æsa mig yfir 1.500 kalli eða einhverju álíka... en 40 þúsund er náttúrulega bara út í hött!! Og þessi maður hjá Bluewater (Jói held ég að hann heiti) er gjörsamlega óhagganlegur í þessum málum. Hann veit alveg hvernig hann á að ríða fólki í rassinn. |
Author: | bjornod [ Tue 19. Feb 2008 14:11 ] |
Post subject: | Neytendasamtökin-samkeppniseftirlitið |
Hæ Ég mæli með því að flestir sendi bréf á neytendasamtökin og samkeppniseftirlitið. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir þá sem hafa áhuga á að flytja með sér bíla frá Evrópu. Því fleiri bréf, því meiri líkur á að þetta verði tekið fyrir. Þetta er rán um miðjan dag!!! |
Author: | _Halli_ [ Tue 19. Feb 2008 14:23 ] |
Post subject: | Re: Neytendasamtökin-samkeppniseftirlitið |
bjornod wrote: Hæ
Ég mæli með því að flestir sendi bréf á neytendasamtökin og samkeppniseftirlitið. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir þá sem hafa áhuga á að flytja með sér bíla frá Evrópu. Því fleiri bréf, því meiri líkur á að þetta verði tekið fyrir. Þetta er rán um miðjan dag!!! Slow day at work.... er í bréfasmíðum ![]() |
Author: | 20"Tommi [ Tue 19. Feb 2008 14:50 ] |
Post subject: | |
Þetta er mjög einfalt mál ... Þú kaupir pakka ferð án bils og kaupir svo fragt fyrir bilinn |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |