bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Þrif á bíl að innan.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=27468
Page 1 of 1

Author:  Brútus [ Wed 13. Feb 2008 03:27 ]
Post subject:  Þrif á bíl að innan.

Hvaða efni finnst ykkur best að nota til að þrýfa bílinn að innan ?
Langar að fara að taka í gegn hjá mér bílinn að innan og er að leita að efnum á til dæmis hurðarspjöldin og sætin, mælaborðið , miðjustokkinn og svona. Er samt ekki með leður.
Hvað eru menn að nota ?

Author:  kelirina [ Wed 13. Feb 2008 09:38 ]
Post subject: 

Ég notast við Poorboy's World Natural Look Dressing

Image sjá nánar hér.

Skilur eftir sig matta og flotta áferð með tyggjókúlulykt.

Author:  Geysir [ Wed 13. Feb 2008 10:19 ]
Post subject: 

Kaupir bara þennann pakka af Steina:
Steini B wrote:
Langaði bara að minna á þennann flotta pakka...
Á reyndar engann hérna á Íslandi en ekkert mál að panta :D


Flottur pakki með öllu því helsta sem þarf í bílaþrif

17 hlutir á 20.000kr. :wink:
(allt þetta kostar hátt í 50.000kr. hérna heima...)


NXT Tech Wax 18 oz.
NXT Speed Detailer 24 oz.
NXT Glass Cleaner 24 oz.
NXT Car Wash Soap 64 oz.
Hot Rims Mag & Aluminum Polish 8 oz.
NXT Insane Shine Tire Spray 24 oz.
Quik Detailer Interior 16 oz.
Quick Out Carpet Stain Remover 22 oz.
Hot Rims All Wheel Cleaner 24 oz.
Small Clay Bar
Supreme Shine Microfiber Towel 3-Pack
Water Magnet Microfiber Drying Towel
Microfiber Super Thick Wash Mitt
Hi-Tech Applicator 2-Pack
1 Grit Guard Bucket Screen
3 16" x 16" Heavy Duty Microfiber Glass Towels
3 16" x 16" Premium Microfiber Towels


Og svo fylgir með svona taska

Image


http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 944bbee29d


Eða ferð og kaupir eftirfarandi vörur hjá Málningarvörum (minnir að staðurinn heiti það sem er með umboðið fyrir Meguiars á Íslandi)

Þessa hér til að bera á:
http://www.meguiars.com/?vinyl-rubber-p ... ch-Protect

Þetta hér til að vera með í hanskahólfinu eða skottinu og bera á ef þú vilt fríska snöggt upp á innréttinguna.

Síðan þetta hér á blettina í teppinu/sætunum:
http://www.meguiars.com/?cloth-carpet-c ... ry-Cleaner

Og þetta á
http://www.meguiars.com/?vinyl-rubber-p ... r-Detailer


Og síðan fyrir góðu lyktina og loka touchið:
http://www.meguiars.com/estore/product_ ... 's%20Brand)>Car%20Interior%20Care>Car%20Odor%20Elimination&sectionID=12401



Annars er alltaf hægt að nota Son Of A Gun eða álíka vörur, draga bara heldur of mikið ryk.

Author:  Brútus [ Wed 13. Feb 2008 10:30 ]
Post subject: 

Það er ekki að spyrja af því að Geysir veit hvernig maður á að þrýfa. Takk fyrir þetta og fleiri hugmyndir vel þegnar.

Author:  Aron Andrew [ Thu 14. Feb 2008 01:53 ]
Post subject: 

Get samt ekki mælt með Meguiars innréttinga efninu, það er algjör vibbi!

Author:  Stanky [ Thu 14. Feb 2008 09:28 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Get samt ekki mælt með Meguiars innréttinga efninu, það er algjör vibbi!


Mér finnst það virka vel... en vond lykt!

Author:  Aron Andrew [ Thu 14. Feb 2008 10:18 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Aron Andrew wrote:
Get samt ekki mælt með Meguiars innréttinga efninu, það er algjör vibbi!


Mér finnst það virka vel... en vond lykt!


Það er bara svo þykkt, gerir svo ljótann glans á innréttinguna, ég allavegana fíla það ekki.

Author:  Knud [ Thu 14. Feb 2008 13:22 ]
Post subject: 

Á innréttingu sem er ekki mött finnst mér autoglym super sheen vera algjör snilld

Author:  . [ Thu 14. Feb 2008 17:51 ]
Post subject: 

ég nota nú bara viskustikki og smá sápuvatn eins og mamma gerir

:)

Author:  Hlynzi [ Thu 14. Feb 2008 18:09 ]
Post subject: 

Nota nú bara ryksugu og autoglym car interior shampoo (ótrúlega gott efni)

Það er ekki að dekkja innréttinguna, (þá getur maður notað leather care cream eða vinyl and rubber care..)
en það safnar í sig ryki.


Til að halda bílnum góðum er fínt að vera bara með microfiber tusku og strjúka reglulega af mælaborðinu, þá sér enginn rykið í honum.

Author:  Lindemann [ Thu 14. Feb 2008 19:36 ]
Post subject: 

ég bara blæs innanúr zetornum mesta rykið með loftspíss svona fyrir jól og páska............

Author:  FinnurKarls [ Thu 14. Feb 2008 22:57 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
ég bara blæs innanúr zetornum mesta rykið með loftspíss svona fyrir jól og páska............


hahahaha góður :D:D:D já til þess að ná blettum úr áklæði og öðru er snilld að nota útþynntan leysigeisla frá mjöll/frigg semsagt þynntur í 50/50 og svo er það bara mín reynsla að allt dregur í sig ryk, svo að vaskaskinnið er komið í staðinn fyrir öll þessi fawkin' efni, verð samt að viðurkenna að á e30 mælaborði er geðveikt að hafa flottan gljáa :D stenst ekki að setja smá sjæn á það

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/