Sælir strákar og Ingsie,
eins og einhverjir hafa tekið eftir er sjöan mín núna stödd inní B&L þar sem að hún var send í bilunargreiningu. En það er víst eitthvað að kjallaranum í mótornum þ.e.a.s. mótorinn var þjöppumældur og er mótorinn ekki að þjappa nógu mikið en samkvæmt B&L þá þýðir það að stangar- og eða höfuðlegurnar séu orðnar slappar.
Nú þarf ég að borga tæpar níutíuogfjögurþúsund krónur fyrir þessa bilanagreiningu þeirra sem ég er ekkert svakalega heitur fyrir.
Ástæðan fyrir því er jú að ég er búinn að eyða alveg meira en nóg í þennan mótor/ bíl en áfram heldur ruglið.
Vandamálið er það að ég vill ekki gera við þetta öðruvísi en bara 110% þ.e.a.s. rífa allt í sundur og skipta um allar legur, stimpilhringi og svo pakkningar og pakkdósir, en það munu þá vera OEM varhlutir uppá ca. 100 þ.kr. + vinna + tími + reikningurinn hjá B&L = ca. 250-300þ.kr.
Þessi skrautlega upphæð er eitthvað sem ég er bara ekki tilbúinn í að eyða í þennan bíl þar sem ég er bara kominn á það stig þar sem að maður segir bara einfaldlega STOP.
Þannig að spurningin er: Hvað myndir þú gera ef þú værir í mínum sporum??





