bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hver er besti framleiðandinn á bónum fyrir bíla? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=2730 |
Page 1 of 2 |
Author: | BMW 318I [ Sun 21. Sep 2003 14:21 ] |
Post subject: | Hver er besti framleiðandinn á bónum fyrir bíla? |
Ég var að pæla hvað framleiðandi hafi reynst ykkur best? |
Author: | gstuning [ Sun 21. Sep 2003 14:51 ] |
Post subject: | |
Sá sem er almennt talað um er Zymol ekki til á Íslandi |
Author: | saemi [ Sun 21. Sep 2003 14:58 ] |
Post subject: | |
Jamm, ég keypti mér zymöl í vor, hef bara ekki prufað það ennþá! Það er mjög feitt (svipað og mjallarbónið) en á víst ekki að skilja eftir sig nein ský (ásamt því að vera ekki eins skemmtilegt að vinna og mjallarbónið ![]() Annars ef ég er að bóna, þá er ég farinn aftur að nota gamla mjallarbónið, ber það bara á og svo eitthvað annað bón yfir það. þá er sæmilegt að vinna þetta og endingin er alveg 4-6 mánuðir. Ég nenni ekki að bóna í hverri viku sko. Er líka nokkuð ánægður með auto-glym. Það er tiltölulega endingargott og skilur ekki eftir sig lit á gúmmí og þessháttar eins og sum bón sem eru hvít og maður þarf að nudda af öllu gúmmí og plasti ![]() Nota líka color back (massabón) mikið þegar ég er að vinna eitthvað í bílum sem eru mikið skítugir eða í lakkviðgerðum. Sæmi |
Author: | Alpina [ Sun 21. Sep 2003 14:59 ] |
Post subject: | |
Ég held að ég sé FULLKOMNLEGA sammála gst+saemi þetta er með því bezta sem völ er á Sv.H |
Author: | SE [ Tue 23. Sep 2003 00:14 ] |
Post subject: | |
Það besta sem ég hef notað er Auto Glym. Ég nota Auto Glym - Super Resin Polish ( með rauðum miða ) og svo Auto Glym - Extra Gloss Protection yfir ( með gylltum miða ). Árangurinn er mjög flott háglans áferð - mæli með því. |
Author: | Duce [ Tue 23. Sep 2003 00:21 ] |
Post subject: | |
Concept og Kent |
Author: | jth [ Tue 23. Sep 2003 00:56 ] |
Post subject: | |
Það er almennt talið að gervi- og fjölliðuefni endist betur heldur en hreint Carnauba vax. Félagar okkar á bmwm5.com virðast mjög hrifnir af Zaino efnum (flókið ferli, mörg efni) og "Klasse All in one". http://www.m5board.com/vbulletin/showthread.php?s=&threadid=30661 Þetta kemur sjálfsagt að litlu gagni þar sem ég efast stórlega um að þessi efni fáist heima á Íslandi. Ég hef prófað mig heilmikið áfram með AutoGlym, fór sömu leið og SE (Super Resin Polish og fylgdi eftir með Extra Gloss Protection). Næst mjög góður árangur með því, en öfugt við marga aðra fannst mér ekki sérstök ending á því. Ágæt, en alls ekkert sérstök (og alls ekki miðað við verðið á AutoGlym vörunum). Til að halda svörtu stuðaralistinum góðum var reyndar mjög gott að nota AutoGlym "Bumper Care". Gerið grín að mér eins og þið viljið ![]() Ég var vanur að nota þetta bón í miklu magni, og bóna oft. Þó svo að AutoGlym hafi verið "milt" bón þá var TurtleWax-ið nánast algjörlega laust við hreinsiefni, ekki vottur af terpentínu eða annari leysiefnalykt af því. Mér fannst það skipta miklu máli að nota milt bón á nýtt lakk og hélt mig því við TW með ágætis árangri. Bíllinn var handþveginn a.m.k. 1 sinni í viku og sjaldnast liðu meira en 3 vikur milli bón-áferða. |
Author: | bebecar [ Tue 23. Sep 2003 09:46 ] |
Post subject: | |
Ég bónaði um helgina með Turtle Wax Extreme og það kom verulega á óvart... frekar auðvelt að vinna það og perlar eins og maður hafi sonaxað bílinn. Svo er mér sagt að það endist vel og við sjáum til með það. En það er frekar ódýrt bón þannig að ég mæli með því og ég held ég muni halda mig við það frekar en Sonax þegar ég er að flýta mér. |
Author: | hlynurst [ Tue 23. Sep 2003 10:32 ] |
Post subject: | |
Það besta sem ég hef prufað hingað til er Concept bónið... ótrúlega gott bón. En ég hef samt ekki prufað allar þær tegundir sem þið teljið upp þannig að maður getur nú ekki sagt að það sé besta bónið að svo stöddu. ![]() |
Author: | Leikmaður [ Tue 23. Sep 2003 10:56 ] |
Post subject: | |
...concept bónið virkar tussuvel (þetta bleika sem fæst hjá íslakk)!! Veit ég líka til þess að maður sem að á stóra bónstöð í bænum notar það sem algjöra undirstöðu!! Síðan er ekkert eins og´að nota sonax þegar maður er í tímaþröng ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 23. Sep 2003 13:00 ] |
Post subject: | |
Hvar fæst þetta Concept bón? Já Sonax er náttúrulega súper þegar maður er að flýta sér... Svo hef ég líka notað BMW bón og það er nokkuð gott bón, veit ekki hvaða tegund það er samt. Ég hef líka notað leðurhreinsi frá BMW og hann var súper! |
Author: | Benzari [ Tue 23. Sep 2003 13:07 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Hvar fæst þetta Concept bón?
Já Sonax er náttúrulega súper þegar maður er að flýta sér... Svo hef ég líka notað BMW bón og það er nokkuð gott bón, veit ekki hvaða tegund það er samt. Ég hef líka notað leðurhreinsi frá BMW og hann var súper! Minnir að Concept fáist hjá Orku - Snorra.G. ,einnig Meguillars( or something like that) |
Author: | Logi [ Tue 23. Sep 2003 13:45 ] |
Post subject: | |
Ég hef nú notað Sonax nokkuð reglulega á mína bíla og verið ánægður með það. Mér hefur hins vegar ekki fundist það vera eins auðvelt í vinnslu á M5 eins og á öðrum bílum sem ég hef átt. Það er kannski svarti liturinn ég veit það ekki. Ég hef síðan notað Ultra-Gloss annað slagið, mér hefur alltaf fundist það vera svona ALVÖRU bón. Síðast þegar ég bónaði M5 þá byrjaði ég á að fara með Sonax lakkhreinsi á hann. Síðan setti ég á'ann Mjallarbón (notaði þriggja tusku aðferðina) og er mjög sáttur við útkomuna ![]() |
Author: | Svezel [ Tue 23. Sep 2003 14:09 ] |
Post subject: | |
Ég var farinn að nota Meguars Gold Class en fór að nota Turtle Wax fyrir tveimur mánuðum og er bara mjög sáttur við það bón. Kostaði heldur ekki nema 1kr brúsinn ![]() |
Author: | jth [ Tue 23. Sep 2003 14:48 ] |
Post subject: | |
E34 M5 wrote: Ég hef nú notað Sonax nokkuð reglulega á mína bíla og verið ánægður með það.
Ég er langt í frá fróður um lakk á bílum - en að nota Sonax reglulega getur ekki verið gott f.endingu lakksins. Sonax er eitt almesta hreinsibónið, þ.e.a.s. langmest af leysiefnum í því. Jú, það hreinsar vel, sérstaklega þegar maður þarf að losna við litla tjörubletti - en það hlýtur að vera líklegra til að slíta lakkinu. Hér í Ameríku eru menn iðnir við að nota leir á bílana sína. http://www.autogeek.net/motcalgolcla.html Leirinn segja þeir hjálpa til við að ná óhreinindum og eldra bóni af. Þeir fullyrða að leirinn eigi ekki að slípa af lakkið sjálft, hef hvorki séð almennilegar greinar sem sanna það eða afsanna. Reyndar verður að taka tillit til þess að bílar verða ekki fyrir jafn miklum óhreinindum og heima á Íslandi, svona almennt séð. Vandinn við flestar gæða vax- og bóntegundir er að þær reyna að njá sem mestri dýpt og gljáa, og það oftast á kostnað endingarinnar. Á Íslandi er hinsvegar erfitt að halda bílum hreinum án þess að þvo oft og þ.a.l. menn hugsanlega hrifnari af fjölliðuefnunum, TurtleWax, Concept o.þ.h. . |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |