Page 1 of 1
Z3 roadster/coupe

Posted:
Tue 05. Feb 2008 12:07
by Rán
Ég var að velta því fyrir mér hvort að það væri ekki einhver hérna sem að gæti frætt mig aðeins um z3 roadsterana og coupe bílana sem að eru til á landinu.
Ég er búin að leita á þessu spjalli og öðrum en ekki búin að finna mikið nema gamla þræði og eflaust annað ástand á flestum bílunum þá en núna...
Veit að það eru allavegana 2 coupe, 1 svartur og annar blár, sá seinni í frekar vafasömu ástandi...
Þessa hef ég líka séð á netinu...:
1x svartur M
1X M AC-Schnitzer
Grár M í eigu Svezel
2X svartir
1X blár
Allar upplýsingar eru vel þegnar, gæti vel hugsanlega haft hug á að eignast eina af þessum elskum.

Posted:
Tue 05. Feb 2008 12:27
by IceDev
Eftir margra ára leit og búinn að prufa ótal mikið af þessum z3 bílum þá ákvað ég að þú finnur ekki skemmtilegt eintak hér á landi (þ.e.a.s non-M eða þá non-coupe )
Ég var svo lengi að finna þann rétta að ég átti orðið pening fyrir z4 þegar að ég gafst upp
Plús að þessir bílar eru furðulega yfirverðlagðir, sérstaklega í ljósi þess að þeir eru að slaga í 10 ára aldurinn
Þú vilt ekki kaupa þér z3 undir 2 lítra, það er bara ekki gaman
Plús ég er ekki algjörlega viss um safety á þessum bílum án roll-bars ef að maður veltur honum
Reyndu að fá að prufa z4 og z3 á stuttu tímabili og finndu muninn, hann er gríðarlegur
Kv
Óskar

Posted:
Tue 05. Feb 2008 13:46
by DiddiTa
Eru ekki bara 4 coupe bílar? Minn svarti, grár sem einhver eldri maður á, gamli svezel og ///M bíllinn með einkanúmerið 200
Með verðið Óskar, ertu þá að tala um bara yfirhöfuð eða einungis hér á Íslandinu góða?
Það sem ég myndi vilja fá fyrir minn bíl í fínu standi er allavega töluvert undir innflutningsverði sýnist mér miðað við verðin á mobile.de en núna er ég bara að tala um coupe bílana, veit ekkert um verðin á blæjunum.

Posted:
Tue 05. Feb 2008 14:50
by Benzer
Þetta er gamli minn seldi hann síðasta sumar á 1.050.000 sem mér finnst bara sanngarnt verð fyrir svona bíla..


Posted:
Tue 05. Feb 2008 15:05
by Leikmaður
Benzer wrote:Þetta er gamli minn seldi hann síðasta sumar á 1.050.000 sem mér finnst bara sanngarnt verð fyrir svona bíla..

Overpriced, en sitt sýnist hverjum


Posted:
Tue 05. Feb 2008 15:28
by Angelic0-
Leikmaður wrote:Benzer wrote:Þetta er gamli minn seldi hann síðasta sumar á 1.050.000 sem mér finnst bara sanngarnt verð fyrir svona bíla..

Overpriced, en sitt sýnist hverjum

Ég verð að vera sammála.... þetta er 1800cc, það er ekkert LSD og þetta hreyfist ekki baun
Ég myndi gúddera þetta verð á 1900cc bíl... en ekki þessum


Posted:
Tue 05. Feb 2008 17:18
by Spiderman
Verðin á þessum bílum eru oft á tíðum bull eins og á öðrum roadsterum
Það hafa nokkrir farið á 600-800, það er eðilegt verð í mínum huga


Posted:
Tue 05. Feb 2008 23:15
by Rán
Þakka kærlega.
Er alveg sammála því að margir þeirra eru yfirverðlagðir hérna...
Þarf að skoða þetta aðeins, takk. :)