bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Stefnir í rosareikning... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=272 |
Page 1 of 3 |
Author: | Svezel [ Mon 04. Nov 2002 12:07 ] |
Post subject: | Stefnir í rosareikning... |
Ég fór með bílinn minn inn í B&L í morgun í skoðun (Inspection II) og ætlaði að láta yfirfara fyrir veturinn.. Núna var verkstæðið að hringja og þeir sögðu mér að framdempari væri sprunginn, það þyrfti að skipta um balanstangir, diska að framan og klossa og svo væri legur að aftan orðnar slappar. Stefnir í 150 þús kr reikning ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 04. Nov 2002 12:20 ] |
Post subject: | |
ÚFFFFF.... déskoti er það dýrt maður! Hvað er hann ekinn hjá þér? |
Author: | Kull [ Mon 04. Nov 2002 12:24 ] |
Post subject: | |
Þetta er ansi dýrt en þú getur nú fengið hlutina mun ódýrar en hjá B&L. Gætir t.d. athugað hjá Fálkanum með demparann eða hjá Tækniþjónustu bifreiða. Til dæmis er kúpling í minn bíl 17 þús krónum dýrari hjá B&L en hjá Fálkanum. |
Author: | Svezel [ Mon 04. Nov 2002 12:31 ] |
Post subject: | |
Hann var að renna yfir 100þús um daginn hjá mér. Það er svo rosaleg bið eftir að fá tíma að ég nenni ekki að taka bílinn og þurfa svo að keyra í mánuð með bílinn í þessu ástandi. Það væri líklega hægt að spara eitthvað með því að kaupa dempara annars staðar en ég vil hafa þetta allt orginal og svoleiðis. Ég ætla sko að heimta staðgreiðsluafslátt á þessu ![]() |
Author: | íbbi [ Mon 04. Nov 2002 15:15 ] |
Post subject: | |
ótrúlegt í ekki eldri bíl.. ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 04. Nov 2002 15:20 ] |
Post subject: | |
Hvaða árgerð er þetta aftur? |
Author: | Guest [ Mon 04. Nov 2002 15:32 ] |
Post subject: | |
Ég hef einmitt hugsað mér að kaupa svona E39 BMW bráðum. En ef þetta er eitthvað sem er með þessa bíla, að eitt stykki dempari sé að springa í 4-5 ára gömlum bíl og það þurfi að skipta um allt draslið í hjólabúnaðinum og það kostar rétt innan við 150 þ kr að skipta um þetta, þá ætla ég ekki að kaupa mér svona bíla. Hvað með hina dempara, hvenær springa þeir þá? Kannski er það bara rétt að BMW bili alltof mikið. Segjum svo að einhver hafi áhuga á að kaupa BMW E39 og það sé stutt í að svona dempari springi og að það væri allt svona í óstandi í hjólabúnaði, væri þá hægt að koma auga á það í söluskoðun svo maður lendi ekki í svona?? |
Author: | Kull [ Mon 04. Nov 2002 15:43 ] |
Post subject: | |
Fyrst bíllinn er keyrður yfir 100 þús km er kannski ekkert óeðlilegt að eitthvað fari að gefa sig. Síðan verður að athuga að sjálfsagt er allaveganna þriðjungur af þessum reikningi fyrir Inspection II. Það ætti að vera hægt að sjá flest svona í söluskoðun, t.d. fara demparar yfirleitt að smita út frá sér áður en þeir gefa sig alveg. |
Author: | Bjarki [ Mon 04. Nov 2002 16:33 ] |
Post subject: | |
Það er ekki það sama BMW og BMW það er dýrt að gera við þessa bíla og menn fara misjafnlega vel með þá. Besta tryggingin er að skoða bílana mjög vel áður en maður kaupir þá, ef maður á ekki þeim mun meira af peningum. |
Author: | saemi [ Mon 04. Nov 2002 17:12 ] |
Post subject: | |
Já, ef maður á BMW verður maður að sætta sig við að borga aðeins meira fyrir varahluti en ef maður ætti Toyota! Það er nú líka aðeins skemmtilegra að keyra þá en Toyota! En eins og segir fyrir ofan, þá er 150.000 náttúrulega ekki bara demparinn, heldur helling af vinnu við annað í Inspection II |
Author: | Svezel [ Mon 04. Nov 2002 19:15 ] |
Post subject: | |
Þegar ég keypti þennan bíl af B&L í febrúar sögðu þeir að þetta væri toppbíll sem hefði alltaf verið þjónustaður af þeim. Mér fannst keyrslan dálítið mikil fyrir '98 módel af bíl en þeir fullyrtu að þetta væri toppbíll og ég heillaðist af aksturseiginleikum og þægindum bílsins. Ég er sko enginn böðull á bílum og hugsa alltaf mjög vel um bílinn minn svo þetta kemur mér mjög á óvart. Einnig fann ég ekkert að bílnum í akstri en hafði tekið eftir því að kominn var tími á klossana að framan. Ég er nú ekki alveg viss um að balanstangirnar og legurnar að aftan séu farnar því mér fannst maðurinn sem hringdi í mig ekki alveg með þetta á hreinu. Auk þess var ekkert að finna að stýrinu og ég keyrði dálítið greitt í gær og þá var ekkert að stýrinu. Inspection II er nú um þriðjungur af verðinu eins og Kull sagði en samt finnst mér þetta dýrt. Þegar ég næ í bílinn á morgun þá ætla ég að berja í borðið og heimta afslátt þar sem ég er stuttu búinn að kaupa bílinn sem er nú frekar nýlegur í mínum augum. Ég ætla sko að láta þá vita af því að ég muni sko ekki eiga viðskipti við þá í framtíðinni ef mér verður ekki rétt einhver hjálparhönd. Það er þó eitt gott við þetta; hann var djöfull ljúfur í akstri fyrir svo hann hlýtur að verða alger draumur á eftir ![]() |
Author: | Gunni [ Mon 04. Nov 2002 19:31 ] |
Post subject: | |
ég er nú samt nokkuð viss um að þeir eru bara að ýkja með að diskarnir séu ónýtir ! mér var sagt að diskarnir í mínum væru ónýtir en það er bara allt í lagi með þá. ertu ekkert búinn að spjalla við yfirmann verkstæðisins in person svona til að hafa þetta allt saman á hreinu og fá hann til að sýna þér þetta og annað slíkt ?? þetta er allavega ansi sver fjárhæð! |
Author: | Gummi [ Mon 04. Nov 2002 19:42 ] |
Post subject: | |
Ég var að velta því fyrir mér hvort það sé nokkuð mál að skipta um klossa að framan á 320i E-46. Nú er nefnilega ljósið komið og ég leit á þetta og sá að borðarnir eru nánast farnir. Ég hef skipt um klossa á öðrum bílum t.d. ryðguðum fíat og var að velta því fyrir mér hvort það væri eitthvað sem ég þyrfti að passa mig á. Svo er ég að spá hvar best sé að kaupa klossa? ég vil hafa orginal klossa og var að spá hvort þeir séu eingöngu til hjá B&L. Veit einhver hvernig þetta kemur að ábyrgðinni? |
Author: | Kull [ Mon 04. Nov 2002 22:19 ] |
Post subject: | |
Klossar eiga nú ekki að koma ábyrgðinni neitt við. Þú getur athugað hjá Tækniþjónustu bifreiða. Annars mæli ég með Mintex klossum, helmingi ódýrari og miklu minna bremsuryk. |
Author: | bebecar [ Mon 04. Nov 2002 22:51 ] |
Post subject: | |
Ég held ég mæli með þeim líka án þess að hafa prófað þá. Það er þvílíkur munur á bílunum okkar Kull - allt svart hjá mér!!! ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |