bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

e34 530
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=26681
Page 1 of 1

Author:  JoeJoe [ Wed 09. Jan 2008 05:36 ]
Post subject:  e34 530

Veit einhvern hérna eitthvað um þennann bíl?
Hér
Er þetta einhver héðan af spjallinu kanski?

Author:  Steinieini [ Wed 09. Jan 2008 09:29 ]
Post subject: 

http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=26201&sid=6c3f5ebff1113d66f27d13f41da9eb56

Mjög solid bíll fyrir utan mótorinn sem hljómar eins og það sé möl í stað stimpla.

100þúsund+ viðgerð hjá landbúnaðarvélum í tímaverki.

Author:  98.OKT [ Wed 09. Jan 2008 17:29 ]
Post subject: 

félagi minn á þennan bíl, ef þú villt bjalla beint í hann þá get ég látið þig hafa númerið hans :wink:

Author:  íbbi_ [ Wed 09. Jan 2008 17:37 ]
Post subject: 

þegar menn reyna afla sér upplýsinga um 530 v8 fá þeir yfirleitt minna af svörum varðandi 530 og meira af ábendingum um að taka bara 540,

540 og 530 v8 E34 eru ekki beint í massavís hérna heima,

það er engin lygi að það "renna öll vötn að 540" en ég skal alveg lofa þér því að 530 bíllin veldur þér engum vonbrigðum, hann er 218hö með einum mýksta og þýðasta mótor sem finnst í bíl. E34 bíll með þessari vel er bara mjög skemmtilegur, vinnur fínt og á alltaf nóg inni, stæðsti gallin við 530 er eiginlega 540..

passaðu þig samt á því að skoða vélina vel.. ég hef lent í v8 bmw með vélarvesen.. og þessir mótorar eru ekkert grín að eiga við.. kostnaðarsamt og sona frekar flóknir mótorar að eiga við.. athuga með olíuleka, rafmagn, og ef þú athugar með þennna 530 bíl.. finndu út hvað er að mótornum..

Author:  Alpina [ Wed 09. Jan 2008 18:46 ]
Post subject: 

GAMLI minn ..... :loveit:

tímakeðju-búnaðurinn er líklega farinn,, $$$$$

Virkilega gott eintak,,,

Author:  Lindemann [ Wed 09. Jan 2008 18:52 ]
Post subject: 

það er rétt........þetta er enginn 540, en samt sem áður mjög skemmtilegar vélar og vinna bara alveg ágætlega.

Það þarf bara að skipta um tímakeðju og meðfylgjandi hluti í þessum tiltekna bíl og þá hugsa ég að hann sé góður.

Author:  íbbi_ [ Wed 09. Jan 2008 19:54 ]
Post subject: 

ef þetta er tímakeðjan þá er það ekkert heimsendir, jú að rífa framan af sona m60 er pain.. en ekkert ógeranlegt, um að gera að nota tækifærið til að skipta um ventla og tímalokspakningar

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/