Page 1 of 3

Steðjaplötur vs Nýju númerin á bílinn minn

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 02:15
by srr
Mig langaði að forvitnast um álit ykkar Kraftsmeðlima.
Eins og komið hefur fram á ég 1982 módel af E28, 518 bíl.
Hann hafði verið án númera í 5-6 ár þegar ég fékk hann í ágúst 2007.
Til þess að ég gæti farið að keyra hann, vantaði mig númeraplötur á hann í haust.
Ég ákvað að panta á hann bara nýtt sett af nýju plötunum og fékk hann númerið LA-212, eins og hann á að bera.
Sökum þess að hann er orðinn 25 ára og er núna skráður fornbíll,
þá er ég aðeins farinn að hallast í áttina að breytingu hvað númerið varðar og langar því að fá álit ykkar.
Það eru þrír möguleikar í stöðunni fyrir mig,

1. Halda mig við núverandi LA-212 númer á nýjum plötum.
2. Fá á hann steðjaplötur hjá Fornbílaklúbbnum og þá gamla númerið sem þessi bíll bar alla tíð, A-2050
3. Fá á hann steðjaplötur hjá Fornbílaklúbbnum og númer sem var á gömlu bílunum hans pabba, Ö-2000

Endilega deilið með mér skoðunum ykkar á málinu :wink:

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 02:18
by basten
Flott að setja original númerið á hann 8)

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 04:19
by SteiniDJ
Gömlu plöturnar!

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 04:44
by zazou
Hvernig lúkka gömlu? Alveg eins og original? Ef svo, go for it.

Mér finnst þó fátt eins anal og 'gömlu' númerin á nýjum plötum. Gamalmennafastheldnisháttur sem maður sér helst á Honda CR-V og þesslegum slyddujeppum.

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 07:25
by jon mar
Steðjaplötur með upprunalega númerinu eru málið á svona fornbíl 8)

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 07:41
by Alpina
,,,,,,,,,,,,,,,,, Ö-2000 ,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 11:52
by gstuning
Alpina wrote:,,,,,,,,,,,,,,,,, Ö-2000 ,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,


Fyndið að þú skulir nefna þetta, því að við áttum einu sinni benzann sem þetta númer var á ;)
Það var cosy ride.

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 15:40
by Vargur
Mér finnast allir kostirnir góðir. Ég sé td ekkert að því að hafa nýjar plötur á fornbíl, sérstaklega ef bíllinn er ekki eldri en þetta.
Ef þú velur nýju plöturnar (af því þú ert búinn að panta þær) þá getur þú alltaf skipt yfir í gamlar er það ekki ?

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 15:48
by bimmer
Er E-28 til/laust?

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 17:08
by zazou
bimmer wrote:Er E-28 til/laust?

Mundir þú setja E-39 á þinn ef hann væri ekki nú þegar merktur? :wink:

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 17:38
by srr
Dúfan wrote:Mér finnast allir kostirnir góðir. Ég sé td ekkert að því að hafa nýjar plötur á fornbíl, sérstaklega ef bíllinn er ekki eldri en þetta.
Ef þú velur nýju plöturnar (af því þú ert búinn að panta þær) þá getur þú alltaf skipt yfir í gamlar er það ekki ?

Þær eru á honum nú þegar, LA-212 þaes :)

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 18:21
by Alpina
zazou wrote:
bimmer wrote:Er E-28 til/laust?

Mundir þú setja E-39 á þinn ef hann væri ekki nú þegar merktur? :wink:


Bæta við M5 þá erum við góðir

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 18:44
by bimmer
zazou wrote:
bimmer wrote:Er E-28 til/laust?

Mundir þú setja E-39 á þinn ef hann væri ekki nú þegar merktur? :wink:


Nei en ég var nú að meina gömlu steðjaplöturnar - gleymdi að
taka það fram.

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 18:54
by Danni
Ég segi Ö-2000

PostPosted: Fri 04. Jan 2008 19:22
by hjaltib
ein spurning ég er með ma 310 á bmwinum mínum hann er 81' árgerð, ég hringdi í tryggingarnar og þeir sögðu að ég yrði að setja hann á steðjanúmer til að hafa fornbílatryggingu er þetta ekki bara bull?