bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

xenon perur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=2637
Page 1 of 3

Author:  Jss [ Fri 12. Sep 2003 21:28 ]
Post subject:  xenon perur

Hvernig hafa xenon perur og annað slíkt reynst hjá ykkur (ending, ljósmagn o.s.frv.), er nefnilega að spá og sömuleiðis vinur minn sem er að spá í að setja þannig í Hyundai Getz.

Author:  Bjarki [ Fri 12. Sep 2003 21:54 ]
Post subject: 

Ekki kaupa þær í 12volt, félagi minn átti þannig og þær endust varla í mánuð. Svo keypti hann frá aukaraf og þær eru ennþá í notkun.

Author:  BMW 318I [ Sat 13. Sep 2003 00:25 ]
Post subject: 

ertu að tala um svona "xeon" eða alvurur sem þurfa spenni og eithvað og kosta minstakosti 50þús kall

Author:  Jss [ Sat 13. Sep 2003 01:23 ]
Post subject: 

Ég er að tala um "Xeon" þ.e. "platperur"

Bjarki: Veistu hversu gamlar perurnar eru, þ.e. notkunartími?

Author:  Benzari [ Sat 13. Sep 2003 02:24 ]
Post subject: 

Philips hafa fengið bestu umsagnirnar af því sem ég hef lesið

http://suvlights.tripod.com/suvlightsco ... vision.htm

Author:  íbbi_ [ Sat 13. Sep 2003 05:03 ]
Post subject: 

ég er einmitt með philips blue vision í aðaljósum,pakrljósum,og kösturunum, lýsingin frá þeim er vægast sagt frábær, eru búnar að endast mér síðan snemma í vetur, var með super xenon white einhverntíman og þær lytu nú "xenon" legra út, en lýsingin frá þeim var ekkert í lýsingu við blue vision perurnar, og þær sprungu báðar innan mánaðar,

Author:  Bjarki [ Sat 13. Sep 2003 09:57 ]
Post subject: 

Jss wrote:
Bjarki: Veistu hversu gamlar perurnar eru, þ.e. notkunartími?


Það er komið hálft ár núna.

Author:  SER [ Sat 13. Sep 2003 10:53 ]
Post subject: 

Ég er með svona perur í Polonum mínum og þær hafa endst núna í rúm 2 ár, keypti þær í aukaraf að mig minnir.

Author:  Jss [ Sat 13. Sep 2003 14:20 ]
Post subject: 

Þakka góð svör, ætli maður skelli sér ekki á philips, ætla að skoða þetta aðeins betur.

Author:  Jss [ Sat 13. Sep 2003 15:02 ]
Post subject: 

Hvað kosta svona perur annars, þ.e. Philips blue vision og eru þær bara seldar í aukaraf?

Author:  Dinan [ Sat 13. Sep 2003 16:22 ]
Post subject: 

Þær fást í Stillingu veit ég

Author:  Benzari [ Sat 13. Sep 2003 16:34 ]
Post subject: 

Jss wrote:
Þakka góð svör, ætli maður skelli sér ekki á philips, ætla að skoða þetta aðeins betur.


Stilling voru einmitt að auglýsa perurnar í tímaritinu Birtu um síðustu helgi(Sveppi á forsíðu)

Author:  GHR [ Sat 13. Sep 2003 18:58 ]
Post subject: 

Ég mæli með Cool blue perum!!
Er með svoeliðis og birtan er mjög hvít og góð :shock:

Author:  Jss [ Sat 13. Sep 2003 21:14 ]
Post subject: 

Frá hverjum eru þessar cool blue perur?

Eða ertu að tala um philips perurnar?

Author:  Jss [ Sat 13. Sep 2003 21:15 ]
Post subject: 

Man einhver hvað þetta kostar, svona um það bil 4000, 5000, 6000 fyrir parið?

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/