Page 1 of 1

Öryggisbúnaður bifreiða sem ekki er í lagi

PostPosted: Fri 07. Dec 2007 16:20
by zazou
Þekkir það einhver, ef bíll sem er með bilaðan ólögskylda öryggisbúnaða, segjum ABS lendir í tjóni, er þá hægt að sakast við ökumann/eiganda?

Þá er ég að hugsa um málshöfðun/leiðindi/niðurfellingu bóta vegna þess að öryggisbúnaður bifreiðar, þó svo hann sé valkvæður virkaði ekki.

PostPosted: Fri 07. Dec 2007 16:50
by Leikmaður
...þó að ég þekki ekki sérstaklega til...

Þá myndi ég halda að t.d. hvað bætur úr trygginum varðar, að það sé ekki hægt að fella þær niður að nokkru leyti, nema sýnt sé fram á, að óhappið sem slíkt megi rekja til þess að öryggisbúnaður hafi ekki verið í lagi.

T.d. það eitt að ökumaður sé ölvaður í umferðinni verður ekki til þess að hann eigi aldrei rétt á bótum, ef það er t.d. ekið á hann.