Hann er dunkelblau metalic en hellblau að innan. Þ.e. dökkblár að utan og ljós að innan. Draumurinn var náttúrlega grár eða svartur og svart leður en þegar svona lítið eknir bílar bjóðast þá hugsar maður sig tvisvar um.
Ekki leður í þessum en sportsæti, topplúga, kastarar, boardcomputer, check control og e-ð fleira. Ásamt þessum BBS felgum.
Það er nú ekki alveg sjálfgefið að kaupa bíla í þýskalandi. Maður þarf að kunna eitthvað í þýsku og helst að þekkja einhvern í þýskalandi.
Þýskur félagi minn keypti þennan bíl fyrir mig, þannig ég var bara maðurinn á bak við tjöldinn
Ég hef leitað á ETK disknum en ekkert fundið, Sæmi veit þetta númer en held að hann sé ekki á landinu þessa stundina og ég þarf að panta þetta á morgun.