bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 31. May 2025 12:26

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Að sækja bimman
PostPosted: Wed 28. Nov 2007 20:06 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 21. Jul 2007 21:54
Posts: 12
Ég og vinur minn höfum verið mikið að spá í að fara til dojtsland og kaupa bimma, keyra hann upp til danmörku og fara með ferju heim, er eitthvað ódýrara að gera þetta svona eða kaupa´bara hérna heima??

Svo langar mig allveg rossalega að vita tollinn, ég kaupi bílinn á settu verði þarna úti, tek hann með ferju frá dk sem kostar kanski 60 þúsund, en svo er það sem mig langar mest að vita að hvað kostar mikið að skrá hann inní landið og fá númer á hann.

einhverstaðar heyrði ég að maður þyrfti að borga 45% toll og svo 24,5 virðisauka :S ókei vá


Last edited by aron18 on Thu 29. Nov 2007 10:03, edited 4 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 28. Nov 2007 20:08 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Posts: 844
Location: Akureyri
kauptu uti, fáðu smára til að flytja hann inn, "innflutningur" í leitinni mun hjálpa mikið..


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 28. Nov 2007 20:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 22. Mar 2005 12:31
Posts: 1770
Location: Vesturbæ Reykjavíkur
fer þetta bara ekki eftir því hvernig bil þú ert að leitast eftir, oft eru verð á bílum hérna á betra verði en influtings í gegnum Germany.

þó það sé sennilega gaman að fara ut og velja ur ollu urvalinu og krúsa til DK!!!

_________________
AggiM5 wrote:
hi eg a felgur sem passa undid 39 . crom 8.5 brei mer miðiju ringgin og mer dekk lika vittur komma ad skoda?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 28. Nov 2007 20:22 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Getur eflaust verið ódýrara og getur verið dýrara.. fer bara eftir hvernig bíl þú ert að leita að :)

En ef ég væri að spá í bíl sem væri ekki til hérna heima, bara í de eða eitthvað þá myndi ég ekki hika við að gera þetta svona.... eflaust algjört stuð! :)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 28. Nov 2007 20:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
Ég væri einmitt til í að fá gróft verð á hversu mikið kostar það skrá bíl inní landið, og þó svo að bíllinn sem ég myndi kaupa myndi vera til hérna á Íslandi, myndi ég frekar fara út bara til að keyra líka aðeins úti. 8)

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 28. Nov 2007 21:15 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
notið bara reiknivélina á kraftinum hér og þá eruð þið komnir með verðið!

Bætið svo 15þús við fyrir númer og tryggingu úti í 10 daga.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 28. Nov 2007 23:34 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sun 26. Jun 2005 21:41
Posts: 148
Gerðum þetta ég og félagi minn. Flutningskostnaðurinn í ferjunni er 16k eða var(þarft bara að fá sér reikning yfir flutninginn á bílnum).
Þarft samt að reikna inní þetta að tíminn sem þú tekur í að vera þarna úti kostar sitt í atvinnutapi. Nema að þú sért í launuðu fríi að sjálfsögðu.

Tryggingarnar kosta ekkert svo mikið, fer bara eftir hvernig númer þú færð þér. Eina vandamálið er að þú færð ekki að keyra inní danmörku á venjulegu þýsku bráðabyrgðarnúmerunum(föttuðum þetta á landamærunum). Það reddast með því að kaupa miða hjá lögreglunni sem leyfir þér að keyra í 1 dag í dk.

Og já. Þú munt vera fastur í færeyjum í 2 daga bara svo að þú vitir :(

Ef þú telur þig nenna að kaupa bílinn í þýskalandi þá verðuru að vera með allt á hreinu gagnvart tollinum, forskráningu og öllum pappírum sem fylgir því áður en þú leggur af stað. Annars gistiru á Seiðisfirði í nokkra daga.

Axel Jóhann wrote:
Ég væri einmitt til í að fá gróft verð á hversu mikið kostar það skrá bíl inní landið, og þó svo að bíllinn sem ég myndi kaupa myndi vera til hérna á Íslandi, myndi ég frekar fara út bara til að keyra líka aðeins úti. 8)


Flutningskostnaðurinn legs við verðið á bílnum(0-2.0L) þegar hann er reiknaður í tollinnum. Svo að ef hann fer með gámi á 65.000 kr þá hækkar það verð uppí 127k(samkvæmt reiknivél)
Ef það fer með ferjunni þá var það 16.000kr (í den) sem fer uppí 48.000kr.

Það er eini munurinn á milli þessa tveggja leiða. Með báðum aðferðum er skráninginn eins og kostar jafn mikið


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 00:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Þegar ég hef farið með Norrænu þá var nú bara stoppað í nokkra klukkutíma í Þórshöfn. Hinsvegar eru engir farþega flutningar til Íslands í vetur með dallinum, þannig að allt svona þarf að bíða fram á vor.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 00:55 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sun 26. Jun 2005 21:41
Posts: 148
Bjarkih wrote:
Þegar ég hef farið með Norrænu þá var nú bara stoppað í nokkra klukkutíma í Þórshöfn. Hinsvegar eru engir farþega flutningar til Íslands í vetur með dallinum, þannig að allt svona þarf að bíða fram á vor.


Fer auðvitað eftir því hvar er farið í ferjuna. En ef maður fer frá Hanstholm til Seiðisfjarðar er gist í færeyjum í 2 daga. Ferjan fer til Noregs á leiðinni til Seiðisfjarðar. Þessvegna þarftu að vera í Færeyjum í 2 daga.

Hvað er stoppað lengi í Færeyjum? Svar: Þegar siglt er til Danmerkur og heim frá Danmörku, er stoppað tvær nætur í Færeyjum á heimleið. Þegar siglt er til Danmerkur og heim frá Noregi er einungis 3,5 kl. viðkoma í Færeyjum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 10:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
xzach wrote:
Bjarkih wrote:
Þegar ég hef farið með Norrænu þá var nú bara stoppað í nokkra klukkutíma í Þórshöfn. Hinsvegar eru engir farþega flutningar til Íslands í vetur með dallinum, þannig að allt svona þarf að bíða fram á vor.


Fer auðvitað eftir því hvar er farið í ferjuna. En ef maður fer frá Hanstholm til Seiðisfjarðar er gist í færeyjum í 2 daga. Ferjan fer til Noregs á leiðinni til Seiðisfjarðar. Þessvegna þarftu að vera í Færeyjum í 2 daga.

Hvað er stoppað lengi í Færeyjum? Svar: Þegar siglt er til Danmerkur og heim frá Danmörku, er stoppað tvær nætur í Færeyjum á heimleið. Þegar siglt er til Danmerkur og heim frá Noregi er einungis 3,5 kl. viðkoma í Færeyjum.


Þeir hljóta að hafa breytt þessu því ég hef farið nokkrum sinnum með norrænu (því miður) bæði að vetri og sumri og aldrei stoppað nema í nokkra tíma í færeyjum. Þetta reyndar skiptir engu máli þangað til í vor því það eru engir farþegaflutningar til Íslands núna þannig að maður kemst bara til Færeyja.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Dec 2007 10:06 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 30. Oct 2007 16:26
Posts: 2
Er engin leið að svindla á kerfinu ?

_________________
Subaru Legacy 1.8 1989


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Dec 2007 10:55 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sun 26. Jun 2005 21:41
Posts: 148
Lambi wrote:
Er engin leið að svindla á kerfinu ?


Jú jú. Fáðu þér stóran pappakassa útí bónus, 4 laufabrauðshringi og skæri. Restinn er sjálfútskýrandi.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Dec 2007 04:48 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56
Posts: 930
Svindlað á kerfinu.
Jú getur auðvitað bitað bílinn í sundur með því að láta saga hann í einhverri verkesmiðju í dk í parta og flutt hann svo inn bara í litlum bútum. Gætir svo farið hérna á kraftinn og fengið einhverja til að sjóða hann saman aftur með þér einhver kvöld og kvöld svona . . . gott suðuverkefni fyrir fólk með frítíma. svo alltaf hægt að segja að þetta sé ekkert bíll heldur bara eftirlíking sem að þú ætlir að hafa til skrauts í innkeyrslunni. Gætir náttúrulega líka bara brætt bílinn úti og flutt hann inn sem bara einn feitann járnbrakkubb og dúddað svo eitthvað í honum þegar að þú kæmir heim. Svo margar leiðir til að svindla á kerfinu sko . . Gætir líka þóst vera Forsetinn. Þá væri þú örugglega ekki rukkaður.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Dec 2007 05:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08
Posts: 3377
Brútus wrote:
Svindlað á kerfinu.
Jú getur auðvitað bitað bílinn í sundur með því að láta saga hann í einhverri verkesmiðju í dk í parta og flutt hann svo inn bara í litlum bútum. Gætir svo farið hérna á kraftinn og fengið einhverja til að sjóða hann saman aftur með þér einhver kvöld og kvöld svona . . . gott suðuverkefni fyrir fólk með frítíma. svo alltaf hægt að segja að þetta sé ekkert bíll heldur bara eftirlíking sem að þú ætlir að hafa til skrauts í innkeyrslunni. Gætir náttúrulega líka bara brætt bílinn úti og flutt hann inn sem bara einn feitann járnbrakkubb og dúddað svo eitthvað í honum þegar að þú kæmir heim. Svo margar leiðir til að svindla á kerfinu sko . . Gætir líka þóst vera Forsetinn. Þá væri þú örugglega ekki rukkaður.

þarf ekki bara að setja mute á þig.
það er hægt að laga kaupverð þannig að tollurinn og vsk ríði þér ekki , þetta gera senilega flestir.nema þeir sem kunna þetta ekki

_________________
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Dec 2007 13:31 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 30. Oct 2007 16:26
Posts: 2
Er það ekki þannig að ef tollurinn sér að maður er hugsanlega að svindla skoða þeir verð á svona bílum og meti það þ.a. þá borgi maður ef til vill hærra ? Þarf þá ekki að vera ástæða fyrir ótrúlega lágu verði eins og einhver bilun eða tjón sem maður getur hugsanlega logið um eins og að segja að hann leki olíu eða sé með bilaðar legur eða eitthvað ?

_________________
Subaru Legacy 1.8 1989


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group