'23 Rolls
Rolls Royce gamlinginn er/var fyrir utan Hótel Esju kl.16:30
Tekið af fornbíll.is,
"Áttræður Rolls Royce í Íslandsheimsókn!!
Í morgun renndi Rolls Royce árgerð 1923 í hlaðið hjá Sverri Ingólfssyni safnstjóra á Ystafelli. Að vonum hélt Sverrir að um ofsjón væri að ræða, enda ekki á hverjum degi sem slíkur eðalvagn rennir þar í hlað. Um er að ræða blæjubíl af Silver Ghost gerð í eigu Bandaríkjamannsins Frederich Brown. Er hann hér í viku heimsókn ásamt dóttir sinni og voru þau að koma frá Seyðisfirði, en ætlunin er að keyra hringinn. Eru mæðginin í hnattferð á þessum forláta fornbíl og er Ísland fertugasta landið sem þau heimsækja. Reikna má með því að bíllinn komi suður til Reykjavíkur nú um helgina og eru fornbílamenn beðnir um að hafa augun opin og reyna að festa gripinn á filmu. Að sögn Sverris er bíllinn blár á litinn með drapplita blæju. Munu væntanlega birtast myndir af honum hér á heimasíðunni í næstu viku. [05.09] "